|
Eru allar ríkisstjórnin eins? Það er eins og Framsókn sé enn í stjórn11. ágúst 2008
|  Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknar voru búnar að vera í 12 ár við völd þegar þær fóru frá við síðustu alþingiskosningar.Framsókn sætti harðri gagnrýni meðan hún var í stjórn með Sjálfstæðisflokknum,svo mjög ,að hún hafði nær þurrkast út.Kjósendur bjuggust við mikilli breytingu við valdatöku Samfylkingarinnar.En hefur orðið einhver breyting? Ég held ekki,a.m.k. ekki enn.Samfylkingin boðaði stóriðjustopp og miklar kjarabætur til handa öldruðum og öryrkjum. En hvort tveggja lætur á sér standa. Stóriðjan,áliðjan,virðist halda áfram alveg eins og gamla stjórnin væri áfram við völd.Að vísu úrskurðaði umhverfisráðherra á dögunum,að allar framkvæmdir tengdar álverksmiðju við Bakka við Húsavík ættu að fara í sameiginlegt umhverfismat.Álsinnar ruku upp til handa og fóta og sögðu,að þetta gæti tafið álverksmiðjuna við Bakka mjög mikið..En umhverfisráðherra taldi,að þessi ákvörðun hennar þyrfti ekki að tefja framkvæmdir við álverksmiðju meira en um nokkra mánuði og verksmiðjan gæti eftir sem áður hugsanlega tekið til starfa 2012.
Kjarabætur aldraðra og öryrkja hafa ekki náð fram að ganga enn.Ríkisstjórnin hefur verið að draga úr tekjutengingum,einkum hjá þeim,sem eru á vinnumarkaðnum.En kjör eldri borgara,sem ekki geta unnið,hafa enn ekkert verið bætt.Það er eins og Framsókn sé enn í stjórn.Hvað er að gerast? Er verið að gera grín að kjósendum? Er það Sjálfstæðisflokkurinn sem ræður og velur sér fylginauta eftir" behag".Það var mikið rætt eftir kosningar,að Vinstri græn hefðu verið reiðubúin til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.Það er ekki von á góðu á meðan Sjálfstæðisflokkurinn ræður ferðinni og getur valið sér samstarfsflokka,sem ráða litlu sem engu.Er ekki kominn tími til,að breyting verði hér á?
Björgvin Guðmundsson
blog.gudmundsson.is
www.gudmundsson | | Deila á Facebook |
Nýjustu pistlarnir: Órólega deildin í VG stefnir ríkisstjórninni í hættu, 28.8.2010 AGS: Góður árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, 23.8.2010 Hefur "félagshyggjustjórnin " brugðist?, 5.6.2010 Félagsmálaráðherra stingur ályktunum eldri borgara undir stól, 20.5.2010 Ísland á heima í samfélagi Evrópuþjóða, 8.5.2010 Mistök að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007, 20.4.2010 Góður árangur ríkisstjórnarinnar við endurreiisn efnahagslífsins, 8.4.2010 Ríkisstjórnin telst ekki félagshyggjustjórn enn, 23.1.2010 Bankar og eftirlitstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010 Bankar og eftirlitsstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010 Ríkisstjórnin skerti kjör lífeyrisþega að óþörfu, 20.12.2009 Mannréttindabrot að skerða lífeyri aldraðra og öryrkja, 10.10.2009 Innköllun veiðiheimilda á 20 árum alger nauðsyn, 10.10.2009 Tillögur um nýskipan almannatrygginga rýrar í roðinu, 28.9.2009 Kreppan á ekki að bitna á öldruðum og öryrkjum, 18.6.2009 Kosningarnar voru sigur félagshyggjuaflanna, 17.6.2009 Ekkert nema gömlu íhaldsúrræðin, 8.5.2009 Stjórnvöld hundsa samtök aldraðra, 12.4.2009 Það á að innkalla allar veiðiheimildir, 24.2.2009 Ríkisstjórnin lækkar laun (lífeyri) aldraðra og öryrkja!, 7.2.2009 Það á að kjósa til alþingis í vor, 6.1.2009 Þjóðin á að eiga bankana, 9.12.2008 Breytt landslag í íslenskum stjórnmálum, 28.11.2008 Verjum velferðarkerfið, 20.11.2008 Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008 Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008 Á Ísland að taka upp evru?, 25.9.2008 Það er verið að hlunnfara eldri borgara, 17.9.2008 Stöðva verður mannréttindabrot kvótakerfisins, 12.9.2008 Hvað er Samfylkingin að gera í þessari ríkisstjórn?, 26.8.2008
|
|