Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip



Stöðva verður mannréttindabrot kvótakerfisins

12. september 2008

 
 
Sjávarútvegsráðherra hefur lofað  Mannréttindanefnd Sþ. því að kvótakerfið verði endurskoðað. Nefndin segir, að mannréttindi séu brotin á Íslandi með framkvæmd kerfisins.Ekkert er þó farið að gera enn varðandi endurskoðun kerfinsins.Óánægja með kerfið eykst nú. Sjómaður,Ásmundur Jóhannsson frá Sandgerði, réri kvótalaus til þess að  mótmæla ranglæti kerfisins. Hann verður sjálfsagt ákærður. Hann segir,að það sé í góðu lagi. Hann muni kæra niðurstöðu dómsins hér til Mannréttindadómstóls Evrópu. Búist er við að margir muni á næstunni fylgja fordæmi sjómannasins frá Sandgerði og róa kvótalausir til þess að mótmæla ranglátu kerfi. Er búist við að hreyfing muni myndast og  landsmenn rísa upp gegn hinu rangláta kerfi. Ég fagna  því ,ef svo verður. Kvótakerfið er ranglátt. Það var sett á með ranglátum hætti og framkvæmt á ósanngjarnan hátt samkvæmt úrskurði Mannréttindanefndar Sþ.
 
Mesta ranglæti Íslandssögunnar
 
 
Kvótakerfið og framkvæmd þess er mesta ranglæti Íslandssögunnar. Það  er verið að úthluta tiltöklulega fáum útvöldum fríum gæðum,sem þeir hafa síðan geta braskað með og selt fyrir milljarða króna. Margir hafa gengið út úr greininni með fullar hendur fjár  enda þótt þeir hafi fengið gæðin frí.Þetta eru mannréttindabrot.Það eiga allir þegnar að sitja við sama borð og  það jafnrétti er stjórnarskrárvarið.Ég tel,að með því að mismuna þegnunum eins og gert er  í kvótakerfinu sé verið að brjóta stjórnarskrána.
 
Kvótamálinu ítt út af borðinu í kosningunum
 
Í þingkosningunum 2003  lagði Samfylkingin höfuðáherslu á kvótakerfið og nauðsynlegar breytingar á því. Flokkurinn setti þá  fram tillögur um svonefnda fyrningarleið til þess að  afnema kerfið smátt og smátt. Æ fleiri hafa séð,að það er skynsamleg leið. Samfylkingin náði ágætum árangri í kosningunum 2003 en þó var sagt,að gagnrýnin á kvótakerfið hafi ekki fengið nægilegan  hljómgrunn. Ég er ekki sammmála því. Í kosningunum 2007 minntist Samfylkingin varla á kvótakerfið.Hvað hafði gerst? Jú  flokkurinn ítti málinu út af borðinu til þess að greiða fyrir ríkisstjórn með íhaldinu.Þetta var forkastanlegt. Það var búið að boða félagshyggjustjórn en síðan fengu landsmenn ríkisstjórn með íhaldinu áfram. Breytingin var aðeins sú,að Samfylkingin kom inn í stað Framsóknar.Þetta voru mikil vonbrigði. En það hefði mátt réttlæta það ,ef Samfylkingin fengi einhver mikilvæg stefnumál framkvæmd. Það hefur ekki orðið enn en vonandi verður svo. Það var hvergi samþykkt í Samfylkingunni að íta kvótamálinu út af borðinu. Ákvörðun um það virðist hafa verið tekin af forustu flokksins.Ég er mjög óánægður með það og mótmæli því hér með sem félagsmaður í Samfylkingunni og frambjóðandi í síðustu kosningum.
 
Ég vænti þess samt,að Samfylkingin sjái til þess að gerðar verði róttækar  breytingar á kvótakerfinu í samræmi við óskir Mannréttindanefndar Sþ. Það verður að  breyta kerfinu þannig,að hætt verði að brjóta  mannréttindi.Það er lágmarks breyting.
 
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Fréttablaðinu 11.sept.  2008


Nýjustu pistlarnir:
Órólega deildin í VG stefnir ríkisstjórninni í hættu, 28.8.2010
AGS: Góður árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, 23.8.2010
Hefur "félagshyggjustjórnin " brugðist?, 5.6.2010
Félagsmálaráðherra stingur ályktunum eldri borgara undir stól, 20.5.2010
Ísland á heima í samfélagi Evrópuþjóða, 8.5.2010
Mistök að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007, 20.4.2010
Góður árangur ríkisstjórnarinnar við endurreiisn efnahagslífsins, 8.4.2010
Ríkisstjórnin telst ekki félagshyggjustjórn enn, 23.1.2010
Bankar og eftirlitstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010
Bankar og eftirlitsstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010
Ríkisstjórnin skerti kjör lífeyrisþega að óþörfu, 20.12.2009
Mannréttindabrot að skerða lífeyri aldraðra og öryrkja, 10.10.2009
Innköllun veiðiheimilda á 20 árum alger nauðsyn, 10.10.2009
Tillögur um nýskipan almannatrygginga rýrar í roðinu, 28.9.2009
Kreppan á ekki að bitna á öldruðum og öryrkjum, 18.6.2009
Kosningarnar voru sigur félagshyggjuaflanna, 17.6.2009
Ekkert nema gömlu íhaldsúrræðin, 8.5.2009
Stjórnvöld hundsa samtök aldraðra, 12.4.2009
Það á að innkalla allar veiðiheimildir, 24.2.2009
Ríkisstjórnin lækkar laun (lífeyri) aldraðra og öryrkja!, 7.2.2009
Það á að kjósa til alþingis í vor, 6.1.2009
Þjóðin á að eiga bankana, 9.12.2008
Breytt landslag í íslenskum stjórnmálum, 28.11.2008
Verjum velferðarkerfið, 20.11.2008
Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008
Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008
Á Ísland að taka upp evru?, 25.9.2008
Það er verið að hlunnfara eldri borgara, 17.9.2008
Stöðva verður mannréttindabrot kvótakerfisins, 12.9.2008
Hvað er Samfylkingin að gera í þessari ríkisstjórn?, 26.8.2008



Vefstjórn