Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip



Stjórnvöld hundsa samtök aldraðra

12. apríl 2009

Það veldur eldri borgurum og öryrkjum miklum áhyggjum hve stjórnvöld hafa verið neikvæð gagnvart þessum hópum á  yfirstandandi  ári.Kjör aldraðra og öryrkja voru skert  verulega 1.júlí sl.. Landssamband eldri borgara og Öryrkjabandalag Íslands mótmæltu kjaraskerðingunni harðlega en stjórnvöld hafa skellt skollaeyrum við þeim mótmælum.Ríkisstjórnin situr löngum á fundum með aðilum vinnumarkaðarins,ASÍ og SA og tekur mikið mark á óskum þessara aðila,einkum verkalýðshreyfingarinnar enda hafa verkalýðsfélögin verkfallsrétt en ríkisstjórnin hundsar samtök eldri borgara og samtök öryrkja.Þessir aðilar hafa ekki verkfallsrétt og ríkisstjórnin virðist ekki hafa miklar áhyggjur  af þessum hópum.Þó var það yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar að hún vildi hafa samráð við   hagsmunasamtök um þær ráðstafanir sem þyrfti að gera, t.d. í ríkisfjármálum.

 

Beita verður nýjum baráttuaðferðum

 

Eldri borgarar hafa að undanförnu rætt það í sinn hóp að nauðsynlegt sé að fara nýjar leiðir í kjarabaráttunni.Eldri borgarar ætla ekki  að sætta sig við það,að stjórnvöld valti yfir þá.Þessi mál hafa verið rædd í stærstu félögum eldri borgara,Félagi eldri borgara í Reykjavík og Félagi eldri borgara í Kópavogi. Menn vilja fara  nýjar leiðir í kjarabaráttunni. Málið hefur einnig verið rætt í Landssambandi eldri borgara. Aðilar eru sammála um nauðsyn þess að breyta baráttuaðferðum.Kurteislegar ályktanir og mótmæli duga ekki lengur. Ráðherrar stinga þeim ofan í skúffur og gera ekkert með þær.Heitstrengingar stjórnmálamanna fyrir kosningar  um ný og betri vinnubrögð virðast hafa gleymst.Hefur ríkisstjórnin gleymt búsáhaldabyltingunni? Hefur ríkisstjórnin gleymt því að það átti að hlusta á almenning, fólkið í landinu og taka tillit til þess.Það er ekki nóg að ræða við verkalýðshreyfingu og atvinnurekendur.Forseti ASÍ og framkvæmdastjóri  SA  eru ekki fulltrúar alls fólksins í landinu. Það þarf að hlusta á aldraða og öryrkja og fleiri hagsmunasamtök og ekki bara hlusta. Það þarf að taka tillit til þessara hagsmunasamtaka.

 

Launþegar hækka  í launum–aldraðir ekki

 

Verkafólk hefur nú fengið kauphækkanir tvívegis á þessu ári, 1.júlí og 1.nóvember.Á sama tíma hafa aldraðir og öryrkjar orðið að sæta kjaraskerðingu. Þeir þurftu raunar einnig að þola kjaraskerðingu 1.janúar sl. þegar þorri aldraðra og öryrkja fékk aðeins 9,6% verðlagsuppbót á lífeyri,en verðlagsuppbótin átti að vera 20%. Aðeins þeir, sem voru á "strípuðum bótum" fengu fulla uppbót. Í lögum um almannatryggingar segir, að breyting á lífeyri aldraðra og öryrkja eigi að taka mið af launabreytingum en einnig af verðlagsþróun.Ég tel, að samkvæmt því eigi lífeyrir að hækka í samræmi við hækkanir á kaupgjaldi 1.júlí og 1.nóvember. Í lögum um  málefni aldraðra segir,að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við  aðra.Það getur ekki talist jafnrétti að skerða kjör aldraðra á sama tíma og launþegar fá kauphækkun.Þetta kallast að beita aldraða misrétti.. Ekki veit ég hve margir launþegar fengu kauphækkun 1.júlí og 1.nóv. sl. En það hafa verið margir tugir  þúsunda,sennilega 40-50 þús.Það þýðir ekki að vísa í það í þessu sambandi,að nokkuð hundruð eldri borgara hafi fengið góða hækkun á lífeyri 1.september 2008.  Það er ekki nóg.

 

Munu ekki sitja aðgerðarlausir

 

 Stjornvöld munu komast að raun um til hvaða barattuaðferða eldri borgarar ætla að gripa.Þeir ætla ekki að sitja aðgerðalausir.Eldri borgarar vilja fá þær kjarabætur,sem þeir eiga  rétt  á..

 

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu 3.desember 2009

 



Nýjustu pistlarnir:
Órólega deildin í VG stefnir ríkisstjórninni í hættu, 28.8.2010
AGS: Góður árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, 23.8.2010
Hefur "félagshyggjustjórnin " brugðist?, 5.6.2010
Félagsmálaráðherra stingur ályktunum eldri borgara undir stól, 20.5.2010
Ísland á heima í samfélagi Evrópuþjóða, 8.5.2010
Mistök að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007, 20.4.2010
Góður árangur ríkisstjórnarinnar við endurreiisn efnahagslífsins, 8.4.2010
Ríkisstjórnin telst ekki félagshyggjustjórn enn, 23.1.2010
Bankar og eftirlitstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010
Bankar og eftirlitsstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010
Ríkisstjórnin skerti kjör lífeyrisþega að óþörfu, 20.12.2009
Mannréttindabrot að skerða lífeyri aldraðra og öryrkja, 10.10.2009
Innköllun veiðiheimilda á 20 árum alger nauðsyn, 10.10.2009
Tillögur um nýskipan almannatrygginga rýrar í roðinu, 28.9.2009
Kreppan á ekki að bitna á öldruðum og öryrkjum, 18.6.2009
Kosningarnar voru sigur félagshyggjuaflanna, 17.6.2009
Ekkert nema gömlu íhaldsúrræðin, 8.5.2009
Stjórnvöld hundsa samtök aldraðra, 12.4.2009
Það á að innkalla allar veiðiheimildir, 24.2.2009
Ríkisstjórnin lækkar laun (lífeyri) aldraðra og öryrkja!, 7.2.2009
Það á að kjósa til alþingis í vor, 6.1.2009
Þjóðin á að eiga bankana, 9.12.2008
Breytt landslag í íslenskum stjórnmálum, 28.11.2008
Verjum velferðarkerfið, 20.11.2008
Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008
Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008
Á Ísland að taka upp evru?, 25.9.2008
Það er verið að hlunnfara eldri borgara, 17.9.2008
Stöðva verður mannréttindabrot kvótakerfisins, 12.9.2008
Hvað er Samfylkingin að gera í þessari ríkisstjórn?, 26.8.2008



Vefstjórn