Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip



Félagsmálaráðherra stingur ályktunum eldri borgara undir stól

20. maí 2010

Frá því félagsmálaráðherra ákvað að skerða kjör aldraðra og öryrkja á sl. ári eru nú liðnir 10 mánuðir.Lög um skerðinguna tóku gildi 1.júlí 2009. Áður en lögin tóku gildi mótmælti Landssband eldri borgara kjaraskerðingunni og sambandið hefur ítrekað þessi mótmæli síðan.Einnig hefur sambandið óskað eftir því, að eldri borgarar fengju jafnmikla hækkun á lífeyri sínum eins og nam hækkun á launum verkafólks 1.júlí sl. og 1.nóvember sl .Sams konar mótmæli og kjarakröfur hafa borist ráðherra frá 60+ ,samtökum eldri borgara í Samfylkingunni svo og frá Félagi eldri borgara í Reykjavík. En félagsmálaráðherra hefur algerlega hundsað ályktanir eldri borgara í þessu efni.Öllum ályktunum samtaka eldri borgara hefur verið stungið undir stól .Svo mjög hefur stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík ofboðið framkoma ríkisstjórnarinnar og ráðherra við eldri borgara, að stjórnin ákvað að fara nýjar leiðir í kjarabaráttunni og leita samstarfs við verkalýðsfélög í Reykjavík um kjaramál.Þegar hefur verið rætt við VR og Eflingu um málið og er samkomulag við VR í burðarliðnum.Efling vildi hins vegar, að málið- yrði á forræði ASÍ.Félag eldri borgara í Reykjavík mun ræða við fleiri verkalýðsfélög í Rvk. um samstarf. Afnema þarf allar skerðingar tryggingabóta hér Kjaraskerðing eldri borgara og öryrkja felst einkum í auknum tekjutengingum vegna atvinnutekna og tekna úr lífeyrissjóði.Einnig var skerðingarhlutfall tekjutryggingar hækkað.Félagsmálaráðherra lét lögleiða 1.júlí, að lífeyrissjóðstekjur ættu að skerða grunnlífeyri aldraðra frá almannatryggingum.Var það í fyrsta sinn,sem grunnlífeyrir skerðist vegna tekna úr lífeyrissjóði.Þar er um algera stefnubreytingu að ræða.Lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir til þess að vera viðbót við bætur almannatrygginga og þeir áttu því ekki og eiga ekki að skerða lífeyri frá almannatryggingum. Í rauninni eiga ekki að eiga sér stað neinar skerðingar á bótum lífeyrisþega frá almannatryggingum.Engar skerðingar eru í Svíþjóð og mjög litlar skerðingar í hinum norrænu löndunum.Í Noregi fá t.d. allir eldri borgarar grunnlífeyri án tillits til tekna.Afnema þarf allar skerðingar hér á landi og færa almannatryggingar hér í sama horf og í hinum norrænu löndunum. Niðurskurður lífeyris aldraðra var óþarfur Ríkisstjórnin lýsti því yfir, þegar hún tók við völdum, að hún ætlaði að koma hér á norrænu velferðarsamfélagi.En fyrstu skref ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum lofa ekki góðu í því efni. Ríkisstjórnin steig skref til baka á þessu sviði og færði íslenska velferðarkerfið lengra frá norræna velferðarsamfélaginu en ekki nær því.Ég tel líklegt, að með því skera niður almannatryggingar og stíga skref til baka í velferðarmálum hafi ríkisstjórnin framið mannréttindabrot .Ísland er aðili að ýmsum mannréttindasáttmálum, hjá Sameinuðu þjóðunum og Evrópuráðinu.Þar er m.a. talað um að tryggja eldri borgurum mannsæmandi líf og mannréttindi.Ákvæði eru um það, að ríkisstjórnir megi ekki stíga skref til baka í velferðarmálum þó fjárhagsvandræði séu nema athuga áður aðrar leiðir til sparnaðar og fjáröflunar.Áður en félagsmálaráðherra skar niður almannatryggingar kannaði hann ekki hvort aðrar leiðir til sparnaðar væru færar.Ef hann hefði gert það hefði hann fundið 4 milljarða annars staðar ,einmitt þá upphæð,sem skorin var niður hjá öldruðum og öryrkjum.Auknar fjármagnstekjur lífeyrisþega, miðað við fyrri áætlanir, leiddu til þess að unnt var að skera niður tryggingabætur þeirra um 4 milljarða,þ.e. um sömu upphæð og nam niðurskurði lífeyris.Lækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja var því óþörf.Sparnaður náðist eftir öðrum leiðum. Ríkisstjórnin lofaði samráði við hagsmunasamtök Ríkisstjórnin lofaði því að hafa samráð við hagsmunasamtök í landinu um niðurskurð ríkisútgjalda.Það er ekki nóg að tilkynna slíkar ráðstafanir rétt áður en þær taka gildi.Samráð felst í því að taka eitthvað tillit til þeirra,sem samráð er haft við. Það hefur ríkisstjórnin ekki gert í málefnum lífeyrisþega.Framkoma félagsmálaráðherra við eldri borgara og öryrkja er óafsakanleg.Ráðherrann hefur algerlega hundsað samtök þeirra.Slík vinnubrögð tilheyra gömlum tíma og verða ekki liðin. Björgvin Guðmundsson í kjaranefnd Landssambands eldri borgara og Félags eldri borgara í Rvk. Birt í Morgunblaðinu 20.mai 2010


Nýjustu pistlarnir:
Órólega deildin í VG stefnir ríkisstjórninni í hættu, 28.8.2010
AGS: Góður árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, 23.8.2010
Hefur "félagshyggjustjórnin " brugðist?, 5.6.2010
Félagsmálaráðherra stingur ályktunum eldri borgara undir stól, 20.5.2010
Ísland á heima í samfélagi Evrópuþjóða, 8.5.2010
Mistök að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007, 20.4.2010
Góður árangur ríkisstjórnarinnar við endurreiisn efnahagslífsins, 8.4.2010
Ríkisstjórnin telst ekki félagshyggjustjórn enn, 23.1.2010
Bankar og eftirlitstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010
Bankar og eftirlitsstofnanir bera höfuðsök á hruninu, 6.1.2010
Ríkisstjórnin skerti kjör lífeyrisþega að óþörfu, 20.12.2009
Mannréttindabrot að skerða lífeyri aldraðra og öryrkja, 10.10.2009
Innköllun veiðiheimilda á 20 árum alger nauðsyn, 10.10.2009
Tillögur um nýskipan almannatrygginga rýrar í roðinu, 28.9.2009
Kreppan á ekki að bitna á öldruðum og öryrkjum, 18.6.2009
Kosningarnar voru sigur félagshyggjuaflanna, 17.6.2009
Ekkert nema gömlu íhaldsúrræðin, 8.5.2009
Stjórnvöld hundsa samtök aldraðra, 12.4.2009
Það á að innkalla allar veiðiheimildir, 24.2.2009
Ríkisstjórnin lækkar laun (lífeyri) aldraðra og öryrkja!, 7.2.2009
Það á að kjósa til alþingis í vor, 6.1.2009
Þjóðin á að eiga bankana, 9.12.2008
Breytt landslag í íslenskum stjórnmálum, 28.11.2008
Verjum velferðarkerfið, 20.11.2008
Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008
Einkavæðing bankanna mistókst, 21.10.2008
Á Ísland að taka upp evru?, 25.9.2008
Það er verið að hlunnfara eldri borgara, 17.9.2008
Stöðva verður mannréttindabrot kvótakerfisins, 12.9.2008
Hvað er Samfylkingin að gera í þessari ríkisstjórn?, 26.8.2008



Vefstjórn