Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Olíufélögin spilltu frjálsri samkeppni.Bónus hefur lækkað vöruverð

sunnudagur, 9. október 2005

 

Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði á síðasta starfsdegi sínum sem utanríkisráðherra,að  hann horfði á það með hryllingi hvernig Baugur misnotaði fjölmiðla sína. Einnig sagði formaðurinn,að   hann hefði haft  áhyggjur af  Baugi,þar honum hafi fundist, það stefndi í heilbrigð samkeppni yrði  eyðilögð í landinu,þar ákveðnir aðilar sölsuðu allt undir sig.Þetta eru gamalkunnar staðhæfingar,sem forusta Sjálfstæðisflokksins  viðhafði,þegar deilan um fjölmiðlafrumvarpið stóð sem hæst.En er þetta rétt? Er Baugur eyðileggja frjálsa samkeppni í landinu?Lítum á það.

 

Samsæri gegn Baugi segir Hreinn

 

 Ekki er sjá,að Baugur misnoti Stöð 2 á nokkurn hátt. Enginn munur er á fréttaflutningi ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2. En  hvað þá með Fréttablaðið? Er það misnotað í þágu eigenda sinna?Þess verður heldur ekki vart. Eina dæmið sem mætti ef til vill nefna í því sambandi er þegar Fréttablaðið birti einkaviðtöl  við Jón Ásgeir Jóhannesson og föður hans Jóhannes um ákærurnar í svonefndu Baugsmáli. En varla telst það alvarleg  misnotkun”.Birting Fréttablaðsins á tölvupósti,sem leiddi í ljós hverjir hrundu af stað lögreglurannsókn hjá Baugi er stórfrétt,sem allir fjölmiðlar hefðu birt ( nema ef til vill Mbl.)Þessi  tölvupóstur leiddi í ljós,að áhrifamiklir menn í Sjálfstæðisflokknum komu við sögu,þegar ákvörðun var tekin um kæra eigendur Baugs og hrinda af stað  lögreglurannsókn. Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs kallar samráð þessara áhrifamiklu Sjálfstæðismanna  um aðgerðir gegn Baugi samsæri gegn fyrirtækinu í þeim tilgangi   koma því á  kné.

 

 Bónus með lægsta vöruverðið

 

En hvað um þá fullyrðingu,að frjáls samkeppni í hættu vegan stærðar og ofurvalds Baugs og Bónus í íslensku viðskiptalífi. Þessi fullyrðing er algerlega út í hött og stenst ekki.Samkeppnisyfirvöld hafa fylgst náið með markaðshlutdeild Bónus í smásöluversluninni. Þegar eigendur Bónus keyptu 10-11 verslanirnar var málið sent Samkeppnisstofnun og hlaut það  blessun hennar.Viðurkennt er einnig,að Bónus verslanirnar hafa verið með lægsta vöruverðið í smásöluversluninni og tilkoma Bónus hefur fært öllum almenningi mikla kjarabót í lækkuðu vöruverði. Öll fyrirtæki Baugs á Íslandi eru í mikilli samkeppni við önnur sambærileg fyrirtæki. Þetta á við Bónus,þetta á við Stöð 2,þetta á við Og Vodafone og þetta á við Fréttablaðið og DV. Einu fyrirtækin,sem hafa ógnað og spillt frjálsi samkeppni á Íslandi eru olíufélögin,sem eru uppvís ólöglegu verðsamráði,sem  valdið hefur neytendum ómældum skaða.Sjálfstæðisflokkurinn hefur lokað augunum fyrir brotum olíufélaganna.Flokkurinn gerir aðeins athugasemdir við þau fyrirtæki sem ekki eru flokknum þóknanleg.

 

Baugur hefur aukið samkeppni

 

 Af því,sem hér hefur verið sagt er ljóst,að hvorki Bónus Baugur hafa ógnað frjálsi samkeppni í íslensku viðskiptalífi. Í rauninni hafa þessi fyrirtæki aukið samkeppnina.Hins vegar hafa olíufélögin spillt frjálsi samkeppni samkvæmt úrskurði samkeppnisstofnunar. Tryggingafélögin hafa einnig dregið úr samkeppni með nánu samráði sín á milli.Önnur fyrirtæki,sem hafa haft yfirburðastöðu á íslenskum markaði á undanförnum árum eru Eimskipafélag Íslands,Flugleiðir og Morgunblaðið.Þess hefur ekki orðið vart,að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft áhyggjur af markaðsráðandi stöðu þessara fyrirtækja.

 Það er hárrétt,sem Ingibjörg Sólrún hefur sagt,að Sjálfstæðisflokkurinn skiptir  íslenskum fyrirtækjum í lið  eftir því hvort þau eru Sjálfstæðisflokknum þóknarleg eða ekki. Það er mál til komið slíkri liðskiptingu fyrirtækja linni.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu 8.oktober 2005

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn