Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Synjunarheimild forseta verði áfram í stjórnarskrá

þriðjudagur, 8. júní 2004

 

Utanríkisráðherra,formaður Framsóknarflokksins,skýrði frá því,5.júní,að hafin væri endurskoðun stjórnarskrárinnar,m.a. í því skyni að afnema ákvæðið um heimild fyrir forseta Íslands til þess að synja lagafrumvarpi staðfestingar og vísa til þjóðaratkvæðagreiðslu.Össur Skarphéðinsson,formaður Samfylkingarinnar,kom af fjöllum er hann heyrði þessa frétt og sagði,að ekkert samráð hefði verið haft við Samfylkinguna um þessa endurskoðun.Virðast formenn stjórnarflokkanna hafa ákveðið að afnema þyrfti  synjunarheimild forseta vegna óánægju yfir því,að forseti skyldi nýta umrædda heimild.Þeir formennirnir eiga erfitt með að sætta sig við það, að þeir geti ekki ráðið öllu sjálfir.Þeir eiga erfitt með að sætta sig við það, að forseti Íslands geti neitað að staðfesta lög,sem þeir hafa þvingað gegnum alþingi með offorsi.

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar lýstu því yfir,að þeir væru andvígir því,að umrætt ákvæði stjórnarskrárinnar yrði afnumið.

 

 Ákvæðið verði áfram  í stjórnarskrá

 

 Ég tel enga ástæðu til þess að fella brott umrætt ákvæði um synjunarvald forseta.Reynslan sýnir,að forsetar hafa farið mjög varlega með það vald,sem felst í umræddu ákvæði.En  ákvæðið hefur verið til staðar og verið einskonar öryggisventill.Forseti Íslands getur gripið til hans,ef mikið liggur við.Forseti getur vísað málum til þjóðarinnar í sérstökum undantekningartilvikum.Best er að halda ákvæðinu um synjunarvald forseta óbreyttu en bæta jafnframt við í stjórnarskrá frekari heimildum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum,t.d. ef ákveðinn hluti þjóðarinnar óskar þess og ef ákveðinn hluti þingsins samþykkir það.

 

Fjölmiðlamálið er mikilvægt

 

Fjölmiðlalögin eru mjög mikilvægt mál. Samkvæmt lögunum á að skerða tjáningarfrelsið,t.d. prentfrelsið.Í fyrsta sinn eru nú settar takmarkanir á það hverjir megi gefa út prentað mál,hverjir megi gefa út blað. Sá,sem á ljósvakamiðil má ekki gefa út blað. En lögin fela ekki  aðeins í sér skerðingu á tjáningarfrelsinu heldur einnig á eignarrétti.Telja margir  lögfræðingar að lögin  gangi af þessum  sökum í berhögg við stjórnarskrána.Lögin varða grundvallar réttindi landsmanna.Af þeim ástæðum er eðlilegt að forseti Íslands hafi viljað vísa málinu til þjóðarinnar.

 

Einfaldur meirihluti ráði

 

Nokkrar umræður hafa orðið undanfarna daga um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu og hvaða reglur eigi að gilda um hana. Ég tel eðlilegt,að einfaldur meirihluti ráði. Það er yfirleitt venjan og svo hefur verið í fyrri þjóðaratkvæðagreiðslum.Það er ekki eðlilegt að láta aukinn meirihluta gilda. Hugsanlegt er að setja einhver ákvæði um lágmarksþáttöku en þó er það ekki  nauðsynlegt. Hugsa má einnig málið þannig,að þeir kjósendur sem mæta á kjörstað eigi að ráða málinu hvort sem þeir eru margir eða fáir.Ef  kynning er sæmilega góð á málinu má telja víst,að kjörsókn verði góð. Leggja ber því aðaláherslu á góða kynningu fremur en ákvæði um lágmarksþáttöku.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu  8.júní  2004

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn