Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin svíkur aldraða

föstudagur, 25. október 2013

Stærsta kosningaloforðið, sem núverandi stjórnarflokkar gáfu öldruðum og öryrkjum í síðustu þingkosningum,var að kjaragliðnunin, sem þessir hópar urðu fyrir á krepputímanum,yrði leiðrétt strax kæmust þeir til valda.Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar 2013 var eftirfarandi samþykkt: Ellilífeyrir sé leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir, sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009.Svipuð ályktun var samþykkt á flokksþingi Framsóknar.Þar var eftirfarandi samþykkt: Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjaragliðnunar) á krepputímanum.Með kjaragliðnun er átt við, að lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur ekki hækkað samsvarandi og kaup láglaunafólks en tilskilið er í lögum, að svo skuli vera. Kjaragliðnunin ekki leiðrétt í fjárlagafrumvarpinu Þess var beðið með nokkurri eftirvæntingu, hvort fjárveiting til leiðréttingar á kjaragliðnun lífeyrisþega yrði í fjárlagafrumvarpinu, einkum þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins var orðinn fjármálaráðherra og samþykkt landsfundar flokksins um leiðréttingu strax var afdráttarlaus.En það var ekki að finna eina krónu í frumvarpinu til leiðréttingar á umræddri kjaragliðnun.Það er því ljóst, að ríkisstjórnin ætlar að svíkja aldraða um leiðréttingu á lífeyrinum. Lífeyrir þarf að hækka um 20% Hækka þarf lífeyrinn um a.m.k. 20% til þess að leiðrétta hann vegna kjaragliðnunarinnar.Kaup láglaunafólks hefur hækkað um 40% frá ársbyrjun 2009 en lífeyrir aldraðra ( þeirra,sem búa einir og hafa aðeins tekjur frá TR) hefur aðeins hækkað um 17% á sama tíma.Öryrkjabandalag Íslands telur að hækka þurfi lífeyri öryrkja meira en 20% til þess að leiðrétta að fullu vegna kjaraskerðingar krepputímans.Með því að hækka lífeyri um 20% nú væri aðeins verið að hækka hann í dag, mörgum árum síðar, til samræmis við hækkun,sem láglaunafólk hefur fengið fyrir mörgum árum og mest á fyrri hluta krepputímans.Í því fælist hins vegar engin leiðrétting fyrir liðinn tíma.Sumir frambjóðendur stjórnarflokkanna gáfu mjög róttækar yfirlýsingar um að leiðrétta þyrfti kjör aldraðra og öryrkja til baka. Aðeins hluti skerðinga afturkallaður Ríkisstjórnin afturkallaði á sumarþinginu tvær skerðingar á kjörum lífeyrisþega: Frítekjumark vegna atvinnutekna var hækkað á ný úr 40 þúsund á mánuði í 120 þúsund á mánuði og þeir,sem misstu grunnlífeyri sinn árið 2009 vegna greiðslna úr lífeyrissjóði, fengu hann á ný.Þessi afturköllun var góð svo langt, sem hún náði en hún var því marki brennd, að hún kom aðeins þeim lífeyrisþegum til góða,sem höfðu tiltölulega góð kjör svo sem góðan lífeyrissjóð.Ekkert var gert fyrir þá lífeyrisþega, sem illa voru staddir.Til dæmis afturkallaði sumarþingið ekki kjaraskerðingu þeirra,sem urðu fyrir barðinu á því, að skerðingarhlutfall tekjutryggingar var hækkað 2009 úr 38,35% í 45%.Við það urðu 28000 lífeyrisþegar fyrir kjaraskerðingu.Fyrrverandi ríkisstjórn tekur hins vegar ómakið af núverandi stjórn í því efni: Lögin um skerðingarhlutfall tekjutryggingar falla sjálfvirkt úr gildi um næstu áramót.Þau voru tímabundin. Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík hafa ítrekað ályktað að leiðrétta verði lífeyrinn vegna kjaragliðnunar krepputímans.Þess er krafist, að staðið verði við kosningaloforðið í því efni og að það verði gert strax eins og lofað var fyrir kosningar.Það hefur verið níðst á kjörum lífeyrisþega.Nú er komið að því að leiðrétta kjörin. Björgvin Guðmundsson formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík. Birt í DV 25.oktober 2013


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn