Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Eldri borgarar eiga að lifa með reisn

miðvikudagur, 22. apríl 2015

Hvað þurfa eldri borgarar mikinn lífeyri á mánuði til þess að þeir geti lifað með reisn síðasta æviskeið sitt? Um þetta eru menn ekki á eitt sáttir.Hagstofan kannar ekki framfærslukostnað eldri borgara.En Hagstofan rannsakar reglulega meðaltalsútgjöld heimilanna í landinu til neyslu.Þessi rannsókn er nefnd neyslukönnun.Hún var síðast birt í desember 2013.Samkvæmt henni eru meðaltalsútgjöld einhleypinga til neyslu miklu meiri en sá lífeyrir,sem Tryggingastofnun skammtar eldri einhleypingum. Nánasarlega skammtað til aldraðra Neyslukönnun Hagstofunnar segir okkur, að sá lífeyrir,sem Tryggingastofnun ríkisins skammtar eldri borgurum hrekkur hvergi nærri fyrir brýnustu útgjöldum. Einhleypir eldri borgarar, sem einungis hafa tekjur frá Tryggingastofnun, hafa aðeins 192 þúsund krónur í lífeyri á mánuði eftir skatt frá TR.Miðað við neyslukönnun Hagstofunnar vantar 129 þúsund krónur á mánuði til þess að það dugi.Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar þarf 321 þúsund á mánuði fyrir einhleyping.Þetta er nánasarlega skammtað til eldri borgara hjá Tryggingastofnun en að sjálfsögðu bera stjórnvöld ábyrgð á þessari skömmtun.Það er engin leið fyrir eldri borgara að lifa með reisn á 192 þús.kr á mánuði.Með þessari skömmtun er verið að halda kjörum aldraðra niðri.Það verður að stórhækka þessar lífeyrisgreiðslur.Það má byrja á því að fara með lífeyrinn í 300 þúsund krónur á mánuði í áföngum.En síðan þarf lífeyririnn að hækka í 321 þúsund á mánuði í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar. Misjafn hagur aldraðra Hagur eldri borgara er mjög misjafn.Hann fer einkum eftir tvennu: Lífeyrissjóði og húsnæðiskostnaði.Það er tiltölulega lítill hópur eldri borgara, sem hefur góðan lífeyrissjóð. Þorri launþega, t.d ófaglært verkafólk og iðnaðarmenn hafa fremur lágan lífeyri mánaðarlega úr lífeyrissjóði. Og síðan gerist sú ósvinna, að tryggingabætur eru skertar mjög mikið vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Það er eins og eignaupptaka.Þeir eldri borgarar,sem eiga skuldlítið eigið húsnæði eru mun betur settir en þeir aldraðir sem eiga mjög skuldsett húsnæði eða verða að taka húsnæði á leigu. Húsaleiga í Reykjavík er í dag 130-170 þúsund krónur á mánuði fyrir litla íbúð.Þegar slík leiga hefur verið greidd, er lítið eftir af lífeyrinum frá Tryggingastofnun fyrir öðrum útgjöldum. Grunnlífeyrir 125 þúsund í Noregi Hvergi á Norðurlöndum er svona naumt skammtað til eldri borgara eins og hér.Þetta er skammarlega lágt hérna.Á hinum Norðurlöndunum er grunnlífeyrir miklu hærri og ekki tíðkast þar eins miklar skerðingar á tryggingabótum og hér.Í Noregi er grunnlífeyrir 125 þúsund kr á mánuði. Allir eldri borgarar fá hann séu þeir norskir ríkisborgarar og hafa búið nægilega lengi í Noregi.Það tíðkast ekki þar slík hungurlús og hér fyrir aldraða.Hér er Grunnlífeyrir aðeins 36 þús.kr á mànuði. Björgvin Guðmundsson formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Rvk. Birt í Fréttablaðinu 22.apríl 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn