Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Barátta aldraðra nær eyrum ráðamanna

mánudagur, 2. janúar 2006

 

                    

Barátta aldraðra fyrir bættum kjörum og betri aðbúnaði er nú að byrja að skila árangri. Barátta samtaka aldraðra og  einstaklinga úr hópi eldri borgara hefur náð eyrum ráðamanna þjóðarinnar.Forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson,gerði þessi mál að umtalsefni í nýársávarpi sínu  til þjóðarinnar.Hann sagði m.a.: “Það er til marks um siðmenningu  hverrar þjóðar  hvernig hún býr öldruðum ævikvöldið og gerir þeim kleift að njóta áranna,sem eftir eru,tryggir öryggi og aðhlynningu.” Einnig sagði forseti Íslands: “Aðkoma og aðbúnaður aldraðra þarf að færast einna fremst í forgangsröð.” Morgunblaðið tók undir þessi orð forseta í forustugrein 2.janúar sl. Stjórnmálaflokkarnir hafa allir fjallað um málefni aldraðra að undanförnu og hafa margir þeirra ályktað að gera  þurfi átak til þess að bæta hag þeirra og aðbúnað.

 

Þurfum aðgerðir-ekki nefndir

 

 Þess gætir að  vísu nokkuð,að stjórnvöld hafi tilhneigingu til þess að vísa þessum brýnu málefnum   til umfjöllunar nefnda. En það er engin þörf á  slíku.Það er búið að kanna málefni aldraðra nægilega mikið á undanförnum árum.Samtök aldraðra hafa unnið mikið starf á því sviði,m.a. hagfræðingur samtakanna,Einar Árnason.Það liggja fyrir nægilegar upplýsingar um breytingu á kaupmætti ellilífeyris frá árinu 1988,sömuleiðis upplýsingar um skattlagningu  tekna aldraðra frá sama tíma og miklar og ítarlegar upplýsingar liggja fyrir um  hag og aðbúnað aldraðra í grannlöndum okkar.Einnig liggja frammi upplýsingar um kannanir Hagstofu Íslands á neysluútgjöldum almennings í landinu.Stjórnvöld hafa aðgang að öllum þessum upplýsingum. Þeim er því ekkert að vanbúnaði að leggja fram tillögur um breytingar á kjörum ellilífeyrisþega. Það sem nú liggur fyrir er að taka pólitíska ákvörðun um að bæta kjör aldraðra.Það þarf engar nefndarskipanir.

 

Nokkrar leiðir færar

 

 Nokkrar leiðir eru færar,þegar taka á ákvörðun um að bæta kjör aldraðra: 1) Hækka má greiðslur aldraðra frá almannatryggingum þannig,að þær nái  þeirri upphæð,sem þær ættu að vera í, miðað við að ekki hefði verið skorið á sjálfvirk tengsl milli  lágmarkslauna og tryggingabóta. Landssamband eldri borgara  telur að hækka þurfi mánaðargreiðslur um 17 þús. kr. til þess að ná þessu marki.2) Hækka má mánaðargreiðslur svo mjög,að þær dugi fyrir framfærslukostnaði aldraðra.Það mundi þýða a.m.k. 60 þús kr. hækkun á mánuði hjá einstaklingum, sem einungis hafa bætur frá almannatryggingum.  3) Afnema má tekjutengingu tryggingabóta aldraðra. 4) Gera má allan  ellilífeyri skattfrjálsan.5) Byggja má fleiri hjúkrunarheimili fyrir aldraða og stórefla heimaþjónustu eldri borgara.

 

Nógir peningar til

 

 Framangreindar tillögur má framkvæma strax,eina eða fleiri, ef vilji er fyrir hendi hjá  ríkisstjórn og alþingi.Það er ekki nóg að tala fallega á hátíðarstundu.Það þarf framkvæmdir. Það eru  nógir peningar til í þjóðfélaginu.Tekjuafgangur fjárlaga var það mikill, að það er þegar unnt að taka af honum drjúga upphæð til þess að hækka lífeyri aldraðra.Eldri borgarar munu fylgjast grannt með ráðamönnum á næstunni.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn