Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!

fimmtudagur, 25. maí 2017

Fyrrverandi ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks gumaði mikið af því, að húni gerði einhver ósköp fyrir aldraða og öryrkja frá áramótum.Lífeyrir þeirra eldri borgara, sem voru í hjónabandi og sambúð hækkaði þá um 12 þúsund krónur á mánuði og um 23 þúsund á mánuði hjá einhleypum öldruðum.Hér er átt við þá,sem hafa eingöngu tekjur frá TR. .Ég hef kallað þessar „kjarabætur“ hungurlús. Töldu hungurlúsina of mikla kjarabót! En stjórnvöld töldu þessa hungurlús of mikla kjarabót.Hún var því tekin strax til baka,m.a. með skerðingu húsaleigubóta.Fyrir áramót var hámark húsaleigubóta 22.000 kr. Þeir sem voru með tekjur sínar eingöngu eða að stærstum hluta frá TR voru með óskertar húsaleigubætur, þar sem greiðslur skv. lögum um almannatryggingar skertu ekki bæturnar. Því var breytt frá áramótum.Þá var farið var að reikna allar greiðslur frá Tryggingastofnun til lífeyrisfólks með tekjum við útreikning húsaleigubóta. Öll áramótakjarabótin tekin aftur! Í dag er upphæð húsaleigubóta 31.000 kr. fyrir einn í heimili. Tekjuskerðing byrjar við 281.083 kr. á mánuði. Eldri borgari hafði samband við mig og skýrði mér frá stöðunni hjá sér.Hann hækkaði í 230 þúsund á mánuði frá TR um áramót ( um 23 þús).Auk þess hefur hann greiðslu úr lífeyrissjóði sem eru talsvert innan við 100 þúsund á mánuði.Maður þessi var með húsaleigubætur en vegna aukinna skerðingar frá áramótum sætti hann niðurskurði húsaleigubótanna,þannig að ríkisvaldið tók alla „kjarabótina“ af honum.Þannig fór um áramótakjarabótina hans. Vaxtabætur (og barnabætur) lækkaðar um 57,7 milljarða! Ákvæði um hærri vaxtabætur féllu úr gildi 1.janúar 2014.Alls lækkuðu vaxtabætur (og barnabætur) um 57,7 milljarða 2014.Framangreindar breytingar hafa leitt til þess, að fjölmargir aldraðir og öryrkjar hafa orðið fyrir mikilli kjaraskerðingu og miklu meiri en nemur þeimi litlu kjarabótum sem þeir hafa fengið.Sem dæmi má nefna,að lífeyrisþegi var með tæpar 200 þúsund í vaxtabætur en í dag fær hann engar vaxtabætur.Þær hafa verið þurrkaðar út.Þetta er veruleg kjaraskerðing hjá honum. Það,sem hér hefur verið rakið um aukna skerðingu húsaleigubóta og lækkun vaxtabóta hefur valdið öldruðum verulegri kjaraskerðingu. Auk þess hafa komugjöld í heilbrigðisþjónustu aukist,meira að segja eftir að nýtt greiðsluþak tók gildi.i Dæmi um slíka hækkun : Eldri borgari þurfti að greiða 6600 kr. Fyrir viðtal við sérfræðing og blóðrannsókn eftir að nýja kerfið tók gildi. Það var 77% hækkun frá því hann fékk síðast slíka þjónustu. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 25.mai 2017


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn