Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Skammta öldruðum og öryrkjum þriðjung af því,sem launþegar fá

fimmtudagur, 23. júlí 2015

Í grein minni " Kjör aldraðra og öryrkja ítrekað skert" sýndi ég fram á, að stjórnvöld hafa um langt skeið hlunnfarið eldri borgara og öryrkja.Stjórnvöld láta lífeyrisþega aldrei fá hliðstæðar kjarabætur og launþegar fá. Það er alltaf klipið af launauppbótum og verðlagsuppbótum til aldraðra og öryrkja. Stjórnvöld telja, að lífeyrisþegar hafi breitt bak! Þessi saga er nú enn einu sinni að endurtaka sig. Fjármálaràðherra boðar, að aldraðir og öryrkjar eigi að fá hækkun á lífeyri næsta ár, ekki sömu hækkun og launþegar, heldur þriðjungshækkun af launahækkun láglaunafólks! Og lífeyrisþegar eiga ekki að fá hækkun frá sama tíma og launþegar, þ.e 1.mai sl.Nei þeir eiga að fá hana 8 mánuðum síðar. Það er engu líkara en stjórnvöld telji, að aldraðir og öryrkjar hafi svo góð kjör, að þeim liggi ekkert á. Yfirlýsing Davíðs sem forsætisráðherra gildir Fjármálaráðherra virðist hafa tekið lífeyrismál aldraðra og öryrkja í sínar hendur en lítið heyrist frá tryggingamálaràðherranum, Eygló Harðardóttur.Fjármálaráðherra var áður búinn að segja á alþingi, að ekki væri unnt að hækka bætur lífeyrisþega vegna nýrra kjarasamninga.Það er vissulega jákvætt,að fjármálaráðherra skuli hafa endurskoðað þá neikvæðu afstöðu sína.En betur má ef duga skal.Forveri Bjarna Benediktssonar, í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson þá forsætisráðherra, sagði þegar ákvæðum laga um ákvörðun lífeyris aldraðra var breytt, að nýja ákvæðið, nýja orðalagið,yrði lífeyrisþegum hagstæðara en það eldra.Áður stóð í lögunum ,að breyta ætti lífeyri aldraðra í samræmi við breytingar á lámarkslaunum.Þegar þessu var breytt og ákveðið að segja,að taka ætti mið af launaþróun við breytingu lífeyris, en þó aldrei að hækka minna en neysluverð, gaf Davíð Oddsson framangreinda yfirlýsingu.Núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins getur ekki ómerkt yfirlýsingu fyrirrennara síns og forsætisràðherra í þessu efni. Yfirlýsing Davíðs hlýtur að gilda og því á lífeyrir að hækka nákvæmlega eins og lægstu laun og frá sama tíma. Lífeyrisþegum dugar ekkert minna.Þetta er lágmark Kjarni málsins er sá, að 255 þúsund króna lífeyrir á mánuði er algert lágmark og í rauninni of lítið til þess að lifa af.Lífeyrir þeirra eldri borgara,sem hafa einungis tekjur frá TR er í dag 225 þúsund krónur fyrir skatt. ( 192 þúsund eftir skatt).Bjarni Benediktsson vill hækka þessa upphæð um 8,9% frá næstu áramótum. Það er alltof lítið og of seint.Láglaunafólk fèkk 30 þúsund króna hækkun 1.mai sl. og fær 27-28% hækkun næstu 3 ár.Launin hækka í 300 þúsund krònur á mánuði.Ekkert heyrist frá stjórnvöldum um, að eldri borgarar og öryrkjar eigi jafnframt að fá slíka hækkun.Lífeyrisþegar virðast eiga að fara bónarveg að stjórnvöldum til þess að fá frekari hækkun bóta. Enda þótt það sé í stjórnarskrá og lögum,að ríkið eigi að aðstoða aldraða og öryrkja svo þeir geti lifað eðlilegu lífi og tekið þátt í þjóðfélaginu telja stjórnarherrarnir, að þeir geti sett sig á háan hest og látið eins og það sé undir miskunn þeirra komið hvort aldraðir fái sómasamlegan lífeyri,sem dugi fyrir framfærslu og eðlilegu lífi.En svo er ekki. Stjórnarherrarnir hafa enga heimild til þess að halda lífeyri aldraðra og öryrkja niðri og meðhöndla lífeyrisþega á annan hátt en láglaunafólk er meðhöndlað.Það eru sömu rök fyrir nauðsyn þess að hækka lífeyri eins og fyrir þörfinni á að hækka kaup láglaunafólks. Birt í Fréttablaðinu 23.júlí 2ö15 Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara Í Reykjavík og nágrenni


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn