Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldid verndarhendi sinni yfir einokun

sunnudagur, 30. október 2005

 

 

Sjálfstæðisflokkurinn undir forustu Ólafs Thors kom á einokun við útflutning saltfisks.Aðeins einn aðili mátti flyja út allan saltfisk,SÍF. einokun hélst áratugum saman og naut verndar Sjálfstæðisflokksins.Svipað ástand var um langt skeið í útflutningi freðfisks. Tveir hringar höfðu allan útflutninginn í sínum höndum,SÍS og SH. Aðrir fengu ekki flytja  út freðfisk. Sjálfstæðisflokkurinn verndaði þessa fákeppni ( einokun).Eimskipafélag Íslands hafði um langt skeið yfirburðastöðu í skipaflutningum. Eimskip naut verndar Sjálfstæðisflokksins. Olíufélögin þrjú störfuðu áratugum saman eins og einokunarfyrirtæki,hækkuðu alltaf verð á olíu í takt og höfðu samráð sín á milli við útboð og  verðlagningu. Þau skiptu hagnaðinum af takmörkun útboða bróðurlega sín á milli.Neytendur báru skaðann. Sjálfstæðisflokkurinn verndaði  olíufélögin og  vildi ekki blaka við þeim. Sama er ð segja um tryggingafélögin Þar hefur. samkeppni  verið takmörkuð verulega með samráði.Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa verndað það ástand.Flugleiðir hafa um langt skeið haft yfirburðastöðu á markaði  fyrir samgöngur í lofti og notið mikilla sérréttinda eftir Flugfélag Íslands og  Loftleiðir voru sameinuð.Þar hefur verið á ferðinni mikil takmörkun á samkeppni.

 

Sjálfstæðismenn talsmenn einokunar

 

Það var ekki fyrr en við gerðumst aðilar EES og  reglur  um frelsi í flugi tóku gildi,   samkeppni jókst í millilandaflugi.Sjálfstæðisflokkurinn gerði aldrei athugasemdir við þessa fákeppni,sem nálgaðist einokun. Morgunblaðið bar ægishjálm yfir alla prentmiðla hér um langt skeið. Ekkert annað  blað gat veitt Morgunblaðinu neina verulega samkeppni.Hvað eftir annað  var blaðið misnotað í þágu  eigenda sinna og Sjálfstæðisflokksins. Blaðið hefur verið eign  sjálfstæðismanna og var lengi vel  rekið eins og það væri gefið út af Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn lét sér þetta vel líka..Eina blaðið sem veitir Mbl. verulega samkeppni í dag er Fréttablaðið,sem í dag er útbreiddara en Mbl. Ef Fréttablaðið hefði lognast út af eins og hætta var á, væri engin samkeppni í dag á  blaðamarkaðnum. Það því þakka Fréttablaðinu,að í dag er heilbrigð samkeppni  á dagblaðamarkaðnum. Sjálfstæðisflokurinn  hefur alltaf haldið verndarhendi yfir Mbl og áður yfir Vísi og Dagblaðinu.Öll  þessi blöð studdu Sjálfstæðisflokkinn,leynt og ljóst Þess varð ekki vart,að Sjálfstæðisflokkurinn hefði neinar  áhyggjur af þessari fákeppni  á blaðamarkaðnum. Þannig mætti áfram telja, Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf haldið verndarhendi yfir einokunarfyrirtækjum á Íslandi og viðhaldið einokun í vissum greinum. Það er því hlálegt þegar foringjar Sjálfstæðisflokksins þykjast hafa verið einhverjir baráttumenn gegn einkun og auðhringjum. Sjálfstæðismenn hafa verið talsmenn einokunar.

 

Alþýðuflokkurinn hóf baráttuna gegn einokun

 

 Alþýðuflokkurinn barðist alla tíð gegn einokun og fákeppni og flutti margar tillögur á Alþingi um ráðstafanir gegn skaðlegum fyrirtækjasamtökum. Ein fyrsta tillagan  um það mál var flutt af Unnari Stefánssyni,varaþingmanni Alþýðuflokksins.Sjálfstæðisflokkurinn var andvígur þeirri tillögu.Alþýðuflokkurinn flutti margar fleiri tillögur um sama efni en Sjálfstæðisflokkurinn var alltaf andvígur þeim. Flokkurinn var og er varðhundur einokunar. koma foringjar flokksins fram og þykjast vera berjast gegnauðhringumog einokun. Þetta er hlægilegt. Einar Olgeirsson talaði mikið um auðhringa og barðist gegn þeim.Honum var alvara. En þetta orð hefur tæpast heyrst síðan fyrr en er foringjar Sjálfstæðisflokksins taka sér þetta orð í munn.Þeir nota orðið  í neikvæðri merkingu. Það á vera slæmt fyritæki stækki mikið,eflist og dafni. Þetta er kenning hjá íhaldinu. Eða er það ef til vill þannig,að þetta á aðeins  við, ef fyrirtækin eru ekki Sjálfstæðisflokknum þóknanleg. Ég held svo .

 

Fyrirtæki mega stækka og eflast

 

Það er allt í lagi,að fyrirtæki stækki,eflist og blómgist,ef þau fara settum reglum og  ástunda ekki skaðlegar samkeppnishömlur.Það skiptir engu máli hvaða orð stjórnmálamenn kjósa nota um stór fyrirtæki.Hér hafa ýmsir efnamenn átt hluti í mörgum fyrirtækjum og  fyrirtæki hafa átt í öðrum fyrirtækjum.Talað var um “kolkrabbanneignarhald íhaldsmanna á fjölmörgum fyrirtækjum. Ekki töluðu foringjar íhaldsins þá um auðhringi.Þeir Björgúlfsfeðgar  eignuðust Landsbankann,Eimskip og mörg önnur fyrirtæki en  foringjar Sjálfstæðisflokksins tala ekki um auðhringi,þegar þeir fjalla um eignir þeirra feðga. KB banki er orðinn gríðarlega öflugt fyrirtæki með  miklar eignir í Evrópu. Íhaldið kallar það ekki auðhring.Sömu sögu era ð segja um Íslandsbanka. EnSjálfstæðisflokkurinn notar ekki orðið auðhringur þegar rætt er um Íslandsbanka og fjárfestingar hans. Ekki einu sinni fjárfestingar Bakkavararbræðra þettaheiðursorðauðhringur,ekki einu sinni þó þeir hafi bætt Símanum í eignasafn sitt. Nei,það er aðeins Bónus og Baugur sem fær þettaheiðursyrðifrá foringjum Sjálfstæðisflokksins. Bónus og Baugur er auðhringur,sem er skaðlegur íslensku þjóðfélagi,sagði  foringi  íhaldsins á nýafstöðnum landsfundi flokksins. Er það vegna þess, Bónus er hið eina af þessum fyrirtækjum,sem hér hafa verið talin upp,sem hefur lækkað vöruverð í landinu og fært öllum almenningi mikla lífskjarabót?Hvorki Bónus Baugur hafa ástundað skaðlegar samkeppnishömlur. Tal Sjálfstæðisflokksins um Bónus og Baug er flokknum  til skammar. Flokkurinn níðir fyrirtæki þessi niður vegna þess fyrrum foringja flokksins er persónulega í nöp við fyrirtækið. Þó veit enginn hvað þessi fyrirtæki gerðu á hlut foringjans. Þau gerðu ekkert,nema það   bera ekki undir foringjann það sem þau tóku sér fyrir hendur! Þegar Jón Ásgeir Jóhannesson keypti ásamt Jóni Ólafssyni hlut í Fjárfestingarbanka atvinnulífsinsgleymduþeir leyfi hjá foringjanum! Fyrir bragðið hlutu þeir útskúfun hjá foringjanum. Jón Ólafsson hrökklaðist úr landi en hinn Jóninn sæta ofsóknum innan lands.Var einhver tala um frjálst atvinnulíf og frjálsa samkeppni!

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt i Morgunbladinu 25.nov.2005 (örlitid breytt)

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn