Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins

miðvikudagur, 12. júlí 2017

Almannatryggingar voru stofnaðar 1946.Ríkisstjórn Alþýðuflokksins,Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokksins, svo kölluð nýsköpunarastjórn, kom tryggingunum á fót. Forsætisráðherra var Ólafur Thors,formaður Sjálfstæðisflokksins.Hann lýsti því þá yfir, að almannatryggingarnar ættu að vera fyrir alla, án tillits til stéttar eða efnahags.Og hann sagði, að almannatryggingarnar ættu að vera í fremstu rök slíkra trygginga í Vestur-Evrópu.Þetta voru skýr og ákveðin markmið. Almannatryggingarnar áttu því ekki að vera nein fátækraframfærsla.Þær áttu að vera fyrir alla.Almannatryggingarnar voru fyrsta stoð velferðar- og lífeyriskerfis á Íslandi. En ýmsir stjórnmálamenn á Íslandi hafa viljað breyta þessu.Þeir hafa viljað breyta almannatryggingum í einhvers konar fátækraframfærslu og eftir að lífeyrissjóðirnir efldust tala þeir um að lífeyrissjóðirnr eigi að vera fyrsta stoð lífeyriskerfisins og almannatryggingar önnur stoðin.Einn þeirra, sem talar á þessum nótum, er félagsmálaráðherra Viðreisnar , Þorsteinn Víglundsson.En það hefur ekki verið samþykkt á alþingi, að lífeyrissjóðirnir eigi að vera fyrsta stoð lífeyriskerfisins.Upphaflegt markmið almannatrygginga er enn í fullu gildi.Almannatryggingar eiga að vera fyrir alla. Þeir,sem eru eldri borgarar í dag,byrjuðu að greiða til almannatrygginga 16 ára gamlir.Þá var lagt á sérstak t tryggingagjald, sem rann til almannatrygginga.Síðan greiddu þeir einnig til almannatrygginga gegnum skattakerfið.Þeir,sem greitt hafa til almannatrygginga alla sína starfsævi, eiga það inni að fá greitt úr almannatryggingum, þegar þeir fara á eftirlaun.En stjórnvöld felldu niður grunnlífeyrinn um síðustu áramót og strikuðu þar með 4500 manns út úr almannatryggingum. Hvers vegna vilja misvitrir stjórnmálamenn, að lífeyrissjóðirnir verði fyrsta stoð lífeyriskerfisins en ekki almannatryggingar ? Það er vegna þess, að þeir vilja láta eldri borgara greiða sinn lífeyri sjálfa.Tölfræði sýnir,að nú þegar er það svo, að eldri borgarar á Íslandi greiða meiri hluta lífeyris síns sjálfir gegnum lífeyrissjóðina og mun stærri hluta en gerist á hinum Norðurlöndunum.Samt leggur ríkið á Íslandi miklu minna til almannatrygginga en gerist á hinum Norðurlöndunum. Og tekjutengingar eru miklu meiri í tryggingakerfinu hér en gerist á hinum Norðurlöndunum.En hægri mönnum hér finnst ekki nóg að gert i þessu efni. Þeir vilja að eldri borgarar sjálfir greiði allan pakkann. Stórfelld skerðing á tryggingalífeyri þeirra eldri borgara,sem fá greiðslur úr lífeyrissjóði, er liður í því að koma allri eftirlaunabyrðinni yfir á eldri borgara sjálfa.Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir var gert ráð fyrir því,að þeir yrðu viðbót við almannatryggingar.Það var ekki inni í myndinni, að þeir myndu valda skerðingu tryggingalífeyris.Það var óskráð samkomulag stjórnvalda og lífeyrissjóða að lífeyrissjóðirnir yrðu viðbót við almannatryggingar.Stjórnvöld hafa svikið þetta samkomulag með því að seilast bakdyramegin í lífeyrissjóðina. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 12.júlí 2o17


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn