Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Aldraðir: Erum mörgum áratugum á eftir hinum Norðurlöndunum

mánudagur, 7. nóvember 2005

 

 

 

Fram kom í kastljósi sjónvarpsins 25.oktober sl.,að  Ísland er mörgum áratugum á eftir hinum Norðurlöndunum í vistunarmálum aldraðra.Formaður Félags eldri borgara í Reykjavík,Margrét Margeirsdóttir, benti á þetta í kastljósi.Í þættinum var einkum rætt um ástandið  varðandi hjúkrunarrými fyrir aldraða en í þeim málum ríkir  algert öngþveiti.Rætt var um hjúkrunarheimilið  Sólvang í Hafnarfirði en þar  eru tvöfalt fleiri vistmenn en ættu vera. Margir eru saman í hverju herbergi,allt upp í

 4 vistmenn. Heilbrigðir aldraðir eru hafðir í herbergi með heilabiluðum en það er lögbrot..Ekkert einkalíf er hjá öldruðum við þessar aðstæður. Þegar aðstandendur aldraðra koma í heimsókn á Sólvang er hvergi afdrep til þess setjast niður og ræða saman  einkamál. Forstöðukona Sólvangs sagði,að vegna þrengsla og vandræðaástands yrði  oft gefa öldruðum svefnlyf,sem komast mætti hjá, ef aðstæður væru í lagi.

 

 Aðeins 1 á vera í hverju herbergi

 

 Á hinum Norðurlöndunum er aðeins einn vistmaður í  hverju herbergi og það er krafa samtaka eldri borgara hér,að þannig verði það einnig hér á landi. En það vantar mikið á,að  það markmið náist hér.1000 aldraðir deila herbergi með ókunnugum á vistheimilum fyrir aldraða hér á landi. Margrét Margeirsdóttir sagði í kastljósi: Þetta ástand er ekki bjóðandi eldri borgurum.Þetta eru  skilaboð frá stjórnvöldum um,að  þetta  nógu gott fyrir aldraða.

 Það hefur verið lengi á dagskrá byggja við Sólvang til þess bæta aðstöðu  vistmanna þar.Sólvangur var byggður um miðja síðustu öld sem sjúkrahús og því ekki  hannaður sem hjúkrunarheimili fyrir aldraða.Sl. 20 ár hefur verið rætt um byggja við heimilið og  hefur teikning verið til allan þann tíma. En framkvæmdum er alltaf frestað. er rætt um byggja við árið 2008. Forráðamenn heimilisins og fulltrúar  eldri borgara telja það allt of seint.Málið er í höndum ríkisins. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra sagði í viðtali við sjónvarpið 27.oktober,að  ástæðan fyrir því framkvæmdir hefðu enn ekki hafist við viðbyggingu við Sólvang væri sú,að ástandið í þessum málum væri enn verra annars staðar en í Hafnarfirði eins og t.d. í Reykjavík  en þar eru meira en 300 aldraðir  á biðlista eftir rými á hjúkrunarheimili.70 heilabilaðir eldri borgarar bíða eftir rými á viðeigandi sjúkrastofnun. Framkvæmdir í Reykjavík eru látnar hafa forgang. Ráðherra viðurkenndi , það væri lögbrot hafa heilabilaða í herbergi með heilbrigðum á Sólvangi.

 

 Fjárráðin tekin af öldruðum!

 

 Ég hefi í fyrri  greinum mínum um málefni aldraðra einkum rætt um kjör aldraðra og greiðslur til þeirra frá almannatryggingum.Á því sviði er ástandið óviðunandi. En það sem segir hér framan leiðir í ljós,að algert vandræðaástand ríkir einnig í hjúkrunarmálum aldraðra. Lög varðandi vistun aldraðra eru brotin eins og  heilbrigðisráðherra hefur viðurkennt opinberlega.Þrengslin á Sólvangi eru stjórnvöldum til skammar. En þar við bætist,að stór hópur aldraðra,yfir 300 í Reykjavík,fær hvergi rými á hjúkrunarheimili enda þótt  fólkið búið greiða skatta og skyldur til hins opðinbera alla sína tíð.Það er einnig til skammar.Það hefði átt taka fjármuni af símapeningunum til þess leysa þetta vandamál,reisa hjúkrunarheimili til þess útrýma biðlista aldraðra eftir hjúkrunarrými.

 Þá þarf afnema það mannréttindabrot hjúkrunarheimili  eða Tryggingastofnun felli niður allar tryggingabætur til  aldraðra,þegar þeir vistast á  dvalar-eða hjúkrunarheimili.En síðan verði aldraðir að fara bónarveg að Tryggingastofnun og sækja um vasapeninga til stofnunarinnar.Segja má,að þeir missi fjárræði sitt með þessu fyrirkomulagi. Krafan er sú,að aldaðir fái greiddar þær bætur,sem þeir eiga rétt á en síðan greiði þeir sjálfir fyrir dvöl sína á dvalar-eða hjúkrunarheimili og haldi eftir ákveðnum hluta  í vasapeninga. Þannig er fyrirkomulagið í nálægum löndum.  

 

Margir tugir milljarða hafðir af öldruðum!

 

 Ég hefi bent á,að ríkið hefur haft marga tugi milljarða af öldruðum sl. 11 ár miðað við loforð,sem öldruðum voru gefin af ríkisstjórn  árið1995.Þar við bætist ,að algert öngþveiti ríkir í vistunarmálum aldraðra. Lög um vistun aldraðra eru brotin,sbr. Sólvang í Hafnarfirði. Ríkinu ber skylda til þess sjá öldruðum,sem ekki geta búið í heimahúsum,fyrir hjúkrunarrými. Þessa skyldu uppfyllir ríkið ekki. Það er ekki nóg fyrir ríkisstjórnina,að guma afgóðumfjárhag ríkisins oggóðuefnahagsástandi,þegar  ríkisstjórnin vanrækir algerlega leysa mál þeirra eldri borgara sem byggt hafa upp Ísland í dag.Enn er unnt bæta úr þeim málum,ef vilji er fyrir hendi.

Það eru nógir peningar til. Þetta er aðeins spurning um forgang. Það mætti láta ýmis gæluverkefni bíða.Einn eldri borgari hringdi  til mín og sagði,að  það mætti draga úr fjárveitingum  til fornleifarannsókna en auka í staðinn fjárveitingar til eldri borgara.Mál eldri borgara þyldu ekki bið en  fornleifarnar mættu bíða.

 

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Morgunblaðinu 6.nóvember 2005

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn