| 
 
 | 
 | Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!laugardagur, 4. júní 2016
 
 |  |  Fyrir alþingiskosningarnar 2013 skrifaði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins bréf til eldri borgara.Í bréfinu lofaði Bjarni að afnema allar tekjutengingar vegna aldraðra  í kerfi almannatrygginga.Þetta var stórt loforð og hefði skipt miklu máli, ef það hefði verið efnt. Bjarni varð fjármálaráðherra og hefur því verið í góðri stöðu til þess að efna loforðið en það hefur ekki verið gert enn.
Lagðar hafa verið fram nýjar tillögur um breytingar á almannatryggingum.Eru tekjutengingar afnumdar þar? Nei. Þvert á móti eru skerðingar lífeyris aldraðra  hjá TR auknar vegna atvinnutekna.En hvað með skerðingar vegna greiðslna úr lífeyrissjóði? Það er sáralítið dregið úr þeim.Til dæmis mun einhleypur  eldri borgari, sem hefur 200 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði sæta 90 þúsund króna skerðingu hjá TR á mánuði eftir skatt í nýja kerfinu en það er sama skerðing og er í dag.Ávinningur er enginn.Sá,sem hefur 300 þúsund á mánuði úr lífeyrissjóði mun fá 135 þúsund króna skerðingu á mánuði eftir skatt (einhleypur) en í dag er skerðing hjá honum 140 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Ávinningur er 5 þúsund á  mánuði.
Hjá kvæntum eldri borgara lítur dæmið svona út: Eldri borgari í  hjónabandi eða sambúð með 200 þúsund á mánuði úr lífeyrissjóði sætir 86 þúsund króna skerðingu á mánuði eftir skatt í dag en í nýja kerfinu verður skerðingin 90 þúsund á mánuði eftir skatt.Staðan versnar m.ö.o. um 4 þúsund á mánuði.Og hjá þeim,sem hefur 300 þúsund  á mánuði úr lífeyrissjóði er 124 þúsund króna skerðing hjá TR á mánuði eftir skatt.en í nýja kerfinu verður skerðingin 135 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.Skerðingin eykst m.ö.o. um 11 þúsund á mánuði.-Við þessar upplýsingar er því við að bæta að samkvæmt nýju tillögunum hefst skerðing grunnlífeyris á ný.En hún var afnumin vorið 2013 eftir harða baráttu Félags eldri borgara í Rvk og LEB.Þarna verður stigið skref til baka.
Dregið verður hins vegar úr skerðingum vegna fjármagnstekna.Skerðingin er óhemju mikil í dag,þar eð frítekjumark vegna fjármagnstekna er aðeins rúmar  8 þúsund krónur á mánuði. En nú verður skerðing 45%.Skerðing minnkar því nema á allra lægstu fjármagnstekjum. Hins vegar munu fjármagnstekjur áfram vega 100 % en ekki 50% eins og núverandi stjórn lofaði í stjórnarsáttmálanum. Um áramótin 2008/2009 var ákveðið að fjármagnstekjur mundu vega 100%  í stað 50% áður.Þetta lofaði núverand stjórn að leiðrétta.Hún stendur ekki við það.
Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðingur
Birt í Fréttablaðinu 5.apríl 2016 |  | Deila � Facebook | 
 
 
 N�justu pistlarnir: | Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
 Almannatryggingar fyrsta stoð  lífeyriskerfisins, 12.7.2017
 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
 
 | 
 
 
 
 |