Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Valdníðsla ríkisstjórnarinnar heldur áfram

miðvikudagur, 18. janúar 2006

 

 

 Stjórnarflokkarnir hafa í valdatíð sinni gerst sekir um margvíslega valdníðslu og misbeitingu á valdi.Þeir hafa skipað vini og vandamenn í há embætti og í því sambandi brotið jafnréttislög og stjórnsýslulög.Og þeir hafa tekið ákvarðanir í trássi við lög og reglur.Þar er grófasta dæmið þegar forsætisráðherra og utanríkisráðherra tóku ákvörðun um að láta Ísland lýsa yfir stuðningi við árás Bandaríkja og Bretlands á Írak án þess að leggja málið fyrir utanríkismálanefnd eða ríkisstjórn eins og lögbundið er.Hvað eftir annað hafa ráðherrar valdið ríkinu miklu fjárhagstjóni vegna  embættisafglapa,sem  kostað hafa  ríkið miklar fjárhæðir.Er þess skemmst að minnast í því sambandi, að ríkið verður að greiða margar milljónir vegna þess,að dómsmálaráðherra braut jafnréttislög,er hann gekk framhjá  Hjördísi Hákonardóttur dómstjóra við skipan dómara í Hæstarétt. Og hið sama gerðist,er félagsmálaráðherra klúðraði máli gegn Valgerði H.Bjarnadóttur hjá jafnréttisstofu á Akureyri.En ráðherra notaði vald sitt og þvingaði hana til þess að segja upp starfi sínu.Ráðherra var dæmdur til þess að greiða henni 6 milljónir kr. í skaðabætur.Nýjasta dæmið um grófa valdníðslu ráðherra ríkisstjórnarinnar er ólögmætur brottrekstur iðnaðar-og viðskiptaráðherra á Birni Friðfinnssyni úr embætti ráðuneytisstjóra.En lögmenn telja,að sú brottvikning geti bakað  ríkisstjóði mjög mikið fjárhagstjón vegna skaðabótaskyldu. Björn Friðfinnsson var skipaður ráðuneytisstjóri 1989 ævilangt.Hann fékk leyfi frá störfum   til þess að fara til starfa hjá ESA í Brussel en átti samkvæmt samkomulagi að taka við starfi sínu um . áramótin en það samkomulag var svikið. Áður hafði það verið dregið nokkrum sinnum,að hann fengi að taka við starfi sínu á ný. Hafði Björn sýnt mikinn samkomulagsvilja en samt var samkomulag við hann svikið. Björn er mjög hæfur embættismaður og hann hafði ekkert brotið af sér í starfi. Ekki var unnt að finna neitt að störfum hans.Hið eina sem ráðherrar Framsóknarflokksins gátu fundið að Birni var,að hann væri jafnaðarmaður. Þó eru mörg dæmi um það,að menn hafa gegnt háum embættum í Stjórnarráðinu þó þeir hafi ekki haft sömu stjórnmálaskoðanir og ráðherrarnir.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem iðnaðar-og viðskiptaráðherra misbeitir valdi sínu við ákvarðanir um embætti og lætur stjórnmálaskoðanir ráða skipun og brottvikningu..Skammt er síðan sami ráðherra flæmdi Georg Ólafsson frábæran forstjóra Samkeppnisstofnunar úr starfi til þess að koma rétt ættuðum Framsóknarmanni að.Það virðist ekki skipta ráðherra ríkisstjórnarinnar neinu máli,þó þeir  baki ríkissjóði mikið fjárhagstjón með embættisfærslum sínumi og embættisafglöpum.Þeir afgreiða starfslokasamninga á færibandi og senda ríkissjóði reikninginn.

.

40 milljarðar hafðir af öldruðum!

 

   Ráðherrum ríkisstjórnarinnar virðist fyrirmunað að vinna með fólkinu í landinu.Þeir eru alltaf að níðast á borgurunum og eru í stríði við þá.Þannig hafa þeir  stöðugt níðst á kjörum öryrkja og aldraðra. Öryrkjar hafa tvívegis orðið að sækja rétt sinn til Hæstaréttar vegna þess,að ríkisstjórnin braut lög  og greiddi ekki öryrkjum lögbundnar greiðslur. Skerðing á bótum öryrkja vegna tekna maka var í Hæstarétti dæmd ólögmæt vegna jafnréttisákvæða stjórnarskrárinnar.Samkomulag við öryrkja,sem gert var fyrir síðustu þingkosningar var svikið og 500 milljónir hafðar af öryrkjum. Það mál er nú komið fyrir dómstólana. Loforð  ríkisstjórnarinnar um,að kjör aldraðra yrðu ekki skert þó rofin væru sjálfvirk tengsl bóta við lágmarkslaun  var svikið. Landssamband eldri borgara telur,að lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum þurfi að vera 17000 kr. hærri á mánuði en nú er  til þess  ná því,sem vera ætti, ef staðið hefði verið við þetta loforð. Þetta þýðir,að um 40 milljarðar hafa verið hafðir af öldruðum  síðast liðin rúm 11 ár. Það eru miklir peningar. Ríkisstjórnin skuldar því öldruðum miklar bætur.Hún hefur einnig svikið loforð um aðgerðir varðandi byggingu hjúkrunarheimila. Þar er ríkjandi vandræðaástand,biðlistar langir, margir látnir vera saman á herbergi og jafnvel heilabilaðir vera með öðrum í herbergi sem er lögbrot.

 

Fátækt hefur aukist mikið

 

Fátækt og misskipting hefur aukist mikið í tíð núverandi ríkisstjórnar.

 

Í dag búa 20-30 þús manns  við fátækt á Íslandi,þ.e. hafa tekjur undir fátæktarmörkum.Ástandið er verst hjá einstæðum mæðrum en margir einhleypir karlmenn búa einnig við mikla fátækt og erfiðar aðstæður.Athugun á framtölum leiðir í ljós,að fátækt hefur aukist mikið  á valdatíma stjórnarflokkanna.

Fátækt er meiri á Íslandi en í nokkru hinna Norðurlandanna. T.d. er tvöfalt meiri fátækt á Íslandi en í Noregi.Allt að 30% ellilífeyrisþega og 31% einstæðra foreldra lifa undir fátæktarmörkum á Íslandi. Í hinum norrænu löndunum búa 6,6-13,5%  einstæðra foreldra við fátækt. Ellilífeyrir er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum og tekjutengingar bóta mikið meiri hér en þar.Hér er ellilífeyrisþegum refsað fyrir að vinna en ekki á hinum Norðurlöndunum.

Velferðarkerfið hér er mikið verra en í hinum norrænu löndunum.Kerfið hér hefur farið versnandi og fjarlægst Norðurlöndin.Það siglir stöðugt í áttina til bandaríska kerfisins.Hin Norðurlöndin eru með besta velferðarkefi í heimi en Bandaríkin eitt það versta á Vesturlöndum.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu 5.mars 2006

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn