Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Samkomulagið við öryrkja: Kostnaður að fjárhæð 1528,8 millj. lá fyrir mánuði fyrir kosningar

fimmtudagur, 11. desember 2003

 

 

 Í  umræðum um samkomulag öryrkja við ríkisstjórnina,hafa stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar  gefið í skyn,að það hafi verið eitthvað    óljóst hvað samið hafi verið um,þar eð samkomulagið hafi verið munnlegt.Á þessum forsendum hafa stjórnarliðar reynt að halda því fram,að þeir væru að efna samkomulagið með því að láta 1 milljarð í það,þegar kostnaðurinn er 1 ½ milljarður. Meira að segja Jón Kristjánsson hefur fallið í þennan pytt í röksemdafærslu.

 

 Kostnaður lá fyrir í tæka tíð

 

En það lá fyrir löngu fyrir kosningar hver kostnaðurinn yrði við það að efna samkomulagið að fullu.Heilbrigðis-og tryggingaráðuneytið ritaði Tryggingastofnun ríkisins bréf 9.apríl sl. og óskaði eftir að reiknað yrði út hvað framkvæmd samkomulagsins kostaði. Tekið var fram,að  grunnlífeyrir þeirra,sem yrðu öryrkjar 18 ára ætti að tvöfaldast. En síðan ætti hækkun grunnlífeyris að skerðast um 421 kr. fyrir hvert ár,sem aldur öryrkja hækkaði um þar til náð væri 67 ára aldri en þá yrði engin hækkun. ( Ávallt miðað við það hvenær menn yrðu öryrkjar).Þessi atriði samkomulagsins eru alveg skýr  og hafa alltaf legið fyrir. Það tók Tryggingastofnun 2 daga að reikna  út kostnaðinn. Hann lá fyrir 11.apríl og var 1.528,8 millj. kr. Kostnaður upp á hálfan annan milljarð lá því fyrir mánuði fyrir kosningar.

 

  Alger kattarþvottur

 

Jón Kristjánsson,heilbrigðisráðherra,hefur reynt að halda því fram,að um fleiri en eina útfærslu hafi verið að ræða við framkvæmd samkomulagsins. En bréfið til Tryggingastofnunar talar skýru máli um útfærsluna og Garðar  Sverrisson formaður Öryrkjabandalagsins er ekki í nokkrum vafa um hvað samið var um.Ráðherra virtist einnig í fyrstu sammála Garðari eða allt þar til Sjálfstæðisflokkurinn barði hann niður.Allt tal Jóns um aðrar útfærslur en þær sem samið var um, og koma fram í bréfinu til Tryggingastofnunar,eru alger kattarþvottur.

 

Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn