Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Tillögur stjórnarandstöðu í lífeyrismálum ganga of skammt

mánudagur, 2. október 2006

 

 

Stjórnarandstaðan,Samfylking VG og Frjálslyndir

 kynnti 2.oktober  sameiginlegar tillögur,sem fluttar verða á alþingi.Þar er m.a. að finna tillögur um umbætur í lífeyrismálum aldraðra og öryrkja.Fagna ber því, að samstaða hafi náðst með flokkum stjórnarandstöðunnar í þessu efni. En tillögur stjórnarandstöðunnar ganga of skammt. Lagt er til,að lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum hækki um 10 þúsund krónur  á mánuði um næstu áramót eða um 7 þúsund umfram það, sem tillögur ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir.Samkvæmt því færi lífeyririnn í 133 þúsund á mánuði.( Tekjutrygging á að vera 85 þúsund  á mánuði í stað 78 þúsund).Hér er átt við einstaklinga. Þetta er of lítið.Samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands eru útgjöld einstaklinga fyrir utan skatta 178 þúsund á mánuði. Það er því algert lágmark að hækka lífeyrinn í 160 þúsund á mánuði.

 

Frítekjumark 75 þúsund á mánuði

 

  Hins vegar eru ágætar umbætur í tillögum stjórnarandstöðunnar varðandi frí-

tekjumark og minni skerðingar á tryggingabótum en áður. Lagt  er til,að frítekjumark verði 75 þúsund krónur á mánuð vegna atvinnutekna, sem taki gildi strax um áramót og að skerðing  tryggingabóta vegna atvinnutekna lækki úr 45% í 35% .

 

Verður framboð eldri borgara?

 

Stjórnarandstaðan verður að bæta tillögur sínar, ef koma á í veg fyrir framboð eldri borgara við næstu alþingiskosningar.Sérstaklega verður að hækka verulega lífeyri aldraðra frá almannatryggingum.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn