Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Eitt ár frá innrásinni í Írak.Ríkisstjórn Íslands braut af sér

mánudagur, 15. mars 2004

 

 

Um þessar mundir er eitt ár frá innrásinni  í Írak. Bandaríkin og Bretland gerðu innrás í ríkið án samþykkis Sameinuðu þjóðanna. Allmörg ríki lýstu yfir stuðningi við innrásina,þar á meðal Ísland,sem fram að þeim tíma hafði alltaf verið friðelskandi þjóð. Bandaríkjamenn og Bretar heldu því fram,að Saddam Hussein einvaldur Íraks hefði yfir gereyðingarvopnum að ráða og því þyrfti að afvopna hann. Vopnaeftirlitsmenn Sþ. höfðu þó ekki fundið neinar vísbendingar um gereyðingarvopn í Írak

 

   Stríð á fölskum forsendum.

 

 Stríðið í Írak stóð tiltölulega stutt. Írakar veittu litla mótstöðu. Her þeirra virtist máttlaus  og illa búinn vopnum. Engin gereyðingarvopn fundust í landinu.Ljóst var,að frá Persaflóastríðinu hafði Írak ekki getað eflt her sinn á ný. Stríðið var því háð á fölskum forsendum. Það þurfti ekki að afvopna Saddam Hussein. Hann átti engin gereyðingarvopn. Það stóð engin ógn af honum. Ljóst var að Bandaríkin höfðu verið að blekkja heimsbyggðina. Aðrar ástæður voru fyrir árásinni en þær sem gefnar voru upp. Sennilega var aðalástæðan olíuhagsmunir en  auk þess  vildu Bandaríkin  sýna herstyrk sinn.

 

 Ríkisstjórn Íslands braut af sér

 

Ófyrirgefanlegt er,að ríkisstjórn Íslands skyldi lýsa yfir stuðningi við innrásina  í Írak. Hér var um brot á alþjóðalögum að ræða. Ríkisstjórn Íslands stóð ekki rétt að ákvarðanatöku um  að lýsa yfir stuðningi við stríðið. Hér var um mikilvægt utanríkismál að ræða og því átti að leggja það fyrir utanríkismálanefnd og alþingi. Það var ekki  gert. Og því braut ríkisstjórnin af sér. Óskilanlegt er,að þjóðin skyldi ekki refsa stjórnarflokkunum meira en gert var í síðustu kosningum.

 

Spánverjum refsað

 

Nú er talið að Al Kaida,hryðjuverkasamtökin hafi verið að verki í Madrid á dögunum,þegar  200 manns létust í hryðjuverkum. Al Kaida voru einmitt að verki þegar árásin var gerð á turnana tvo í New York. Spánverjar voru fremstir í flokki að lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak enda þótt 80-90 % þjóðarinar væri andvíg stríðinu. Í þingkosningum 14.mars sl. tapaði stjórnarflokkurinn,Þjóðarflokkurinn,miklu fylgi og er talið að það hafi verið vegna stuðnings við innrásina í Írak. Kjósendur voru að refsa stjórnarflokknum á Spáni. Mörg önnur riki, sem studdu stríðið, eru nú hrædd um að hryðjuverk verði framin hjá þeim. Danir eru t.d. hræddir um það.Spurningin er þessi: Þurfa Íslendingar að óttast hryðjuverk?

 

Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn