Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!

fimmtudagur, 2. febrúar 2017

Alþingi hefur komið saman á ný eftir jólaleyfi. Ég tel, að eitt fyrsta verk þingsins eigi að vera það að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja.Þau kjör,sem öldruðum og öryrkjum bjóðast í dag eru ekki boðleg.Þau voru úrelt um leið og þau tóku gildi um síðustu áramót. Félag eldr borgara i Reykjavík segir, að þessi lægsti lífeyrir verði að hækka. Ég er að sjálfsögðu að tala um kjör þeirra eldri borgara og öryrkja,sem eingöngu hafa lífeyri almannatrygginga. Fyrri ríkisstjórn lét undan Fyrrverandi ríkisstjón ætlaði upphaflega ekki að hækka lífeyri þessa hóps um eina einustu krónu.Það átti að hafa þennan lægsta lífeyri óbreyttan.En vegna mikilla mótmæla eldri borgara í ræðu og riti; fylgt eftir með stórum mótmælafundi í Háskólabíó, lét ríkisstjórnin undan síga og ákvað örlitla hækkun á lífeyri.Hækkunin var þessi: Hjá þeim, sem voru í hjónabandi eða sambúð, var hækkunin 12 þúsund krónur á mánuði.Lífeyrir fór í 197 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Hjá einhleypum var hækkunin þessi: 20 þúsund kr á mánuði.Lífeyrir fór í 227 þúsund á mánuði eftir skatt. Þessar upphæðir eru að sjálfsögðu alltof lágar og engin leið að lifa af svo litlum lífeyri.Það er í rauninni furðulegt, að fyrrverand rikisstjórn skyldi telja þessar upphæðir ásættanlegar. Hvað þarf eldri borgari og öryrki mikið sér til framfærslu? Hvað þarf að hækka lífeyrinn mikið til þess að hann sé sómasamlegur.Samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands ( könnun á meðaltalsútgjöldum heimila í landinu) er meðaltalsneyslan 321 þúsund kr á mánuði hjá einhleypingum.Engir skattar eru inni í þeirri tölu.Talan er þvi sambærileg upphæð lífeyris aldraðra einhleypinga eftir skatt.Fyrir skatt eru það rúmlega 400 þúsund kr.Þetta eru m.ö.o. þær upphæðir,sem ég tel hæfilegar fyrir aldraða og öryrkja. Engar ráðagerðir hjá ríkisstjórninni um hækkanir. Ríkisstjórnin hefur lagt fram á alþingi tillögu til þingsályktunar um ríkisfjármálaáætlun til næstu 5 ára.Í tengslum við framlagningu áætlunarinnar hefur komið fram hjá ríkisstjórninni, að ekki sé unnt að auka útgjöld til innviða. Það þýðir,að ekki er meiningin að verja neinu nýju fjármagni til þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja og heldur ekki til heilbrigðiskerfsins þó það heiti svo, að sá málaflokkur eigi að hafa forgang.En slík yfirlýsing án fjármagns er marklaus.Ríkisstjórnin boðar algera kyrrstöðu.Er ekki aðlilegt,að Íslendingar fái að njóta sambærilegrar samneyslu, sama velferðarkerfis og hin Norðurlöndin? Talsvert vantar á, að svo sé.Góðærið hér á að gera það kleift að ná því marki. Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn