Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Einkavæðing bankanna mistókst

þriðjudagur, 21. október 2008

Einkavæðing  bankanna mistókst.Helmingaskiptastjórn  Sjálfstæðisflokks og Framsóknar stóð fyrir einkavæðingu bankanna  og samkvæmt gömlu helmingaskiptareglunni voru bankarnir afhentir einkavinum stjórnarflokkanna.Það var ekkert hugsað um það að bankarnir lentu í höndum aðila,sem kynnu að reka banka.Þorvaldur Gylfason prófessor hefur bent á það, að  það hafi verið  mikil mistök að  tryggja ekki að bankarnir færu í hendur aðila,sem væru hæfir til þess að reka banka.Einkavæðingarnefnd var mjög óánægð með framgöngu flokksforingjanna við einkavæðinguna og sögðu lykilmenn í nefndinni sig úr henni af þeim sökum. Framkvæmd einkavæðingarinnar voru fyrstu og einhver alvarlegustu mistökin,sem gerð voru í þessu ferli, en næstu mistökin voru þau,að  bankarnir voru eftir einkavæðingu látnir dansa lausir og stofna til óheyrilegra skulda erlendis.Seðlabankinn hefur heimildir til þess að auka bindiskyldu bankanna og á þann hátt að takmarka fjárráð þeirra  og bankinn hefði einnig getað takmarkað lántökur  þeirra erlendis.En Seðlabankinn sat aðgerðarlaus með hendur í skauti og gerði ekkert til þess að takmarka umsvif bankanna og lántökur erlendis.Sama er að segja um Fjármálaeftirlitið. Það gerði ekkert  þegar umsvif bankanna erlendis margfölduðust og lántökur jukust dag frá degi
 
Fóru of hratt og óvarlega
 
Væri allt í lagi hér í fjármálakerfinu,ef framangreind mistök hefðu ekki verið gerð? Svarið er nei. Hin alþjóðlega fjármálakreppa hefði eftir sem áður farið í gang. En ef íslensku bankarnir hefðu verið reknir á ábyrgan hátt og  aðeins verið um litlar og hóflegar lántökur erlendis að ræða  hjá þeim þá hefði vandinn í dag verið lítill og viðráðanlegur..Eftirlitsstofnanir,Fjármálaeftirlit og Seðlabanki,hefðu getað tryggt,að svo hefði orðið.Og eins hefði það verið,ef bankarnir hefðu áfram verið í höndum ríkisins.Ríkisbankarnir hefðu aldrei skóflað upp öllum þessum erlendu lánum,sem einkabankarnir   tóku.Það er ljóst, að einkabankarnir fóru alltof geyst í útrás og fjárfestingar erlendis.Þeir áttu að fara varlega og ef þeir hefðu gætt þess,að skuldsetja sig ekki meira erlendis en vel var viðráðanlegt og auðvelt að endurgreiða þá væri staðan önnur í dag en hún er.
Ég var alltaf vantrúaður á  einkavæðingu bankanna. Ég taldi,að ekki hefði átt að einkavæða   meira en einn ríkisbanka en hinir hefðu áfram átt að vera í höndum ríkisins. Margir bentu á þetta sama og staðan hjá okkur væri betri í dag ef farið hefði verið að þessum ráðum.Þeir,sem bera höfuðábyrgð á  algerri einkavæðingu  bankanna, eru Davíð Odddsson og Halldór Ásgrímsson.
 
Seðlabankinn helt klaufalega á málum
 
Ég tel,að núverandi ríkisstjórn hafi tekið nokkuð vel á málum eftir að bankarnir voru  að komast í þrot.Neyðarlögin voru sett til þess að lágmarka skaðann og tryggja hagsmuni almenning og þá fyrst og fremst sparifjáreigenda, Að vísu tel ég,að Seðlabankinn hafi haldið klaufalega á málum, þegar hann neitaði  Glitni um lán til þess að greiða  erlent lán að fjárhæð 150 millj. evra.Í stað þess að veita Glitni lán ákvað Seðlabankinn að ríkið mundi kaupa 75% í Glitni á  84 milljarða   kr.og ríkisstjórnin samþykkti það. Strax eftir þessa ráðstöfnun hrundi krónan og hlutabréf hríðféllu og svo virðist sem það hafi haft örlagaríkar afleiðingar fyrir íslenskan fjármálamarkað  að  íslenska ríkið ákvað að þjóðnýta Glitni Lánshæfismat ríkisins og bankanna lækkaði mikið strax eftir ráðstöfun Seðlabankans. Ef til vill var erfitt að sjá þessar afleiðingar fyrir en inngrip ríkisins með hlutafé í einn bankanna   virðist hafa skapað hræðslu erlendis og vantrú á
islennka fjármálamarkaðnum.
 
Bankarnir verða eins og fyrir einkavæðingu
 
 Nú virðist stefnt að því að koma bönkunum að mestu í það horf,sem þeir voru í fyrir einkavæðingu,það er litla banka,sem þjóni Íslandi..Með því að færa bankana í fyrra horf er verið að viðurkenna,að einkavæðingin hafi mistekist og  að
hún hafi jafnvel verið óþörf. Það er að vísu erfitt fyrir frjálshyggjumenn,að viðurkenna að einkavæðing mistakist. Og þeir reyna að skella skuldinni alfarið á hina alþjóðlegu fjármálakreppu. En það tekst ekki. Vandinn er einnig að verulegu leyti heimatilbúinn.
Við skulum fara varlega í frekari einkavæðingu.Ríkið getur ekki alltaf komið til bjargar þegar allt er komið í óefni.
 
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Mbl. 21.okt.2008


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn