Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Verður sameining jafnaðarmanna að veruleika?

föstudagur, 12. desember 2003

      

 

  Ég hefi lengi alið þann draum með mér,að jafnaðarmenn á Íslandi gætu
 sameinast í einum sterkum flokki eins og á hinum Norðurlöndunum.
 Klofningur
 jafnaðarmanna á Íslandi hefur  komið í veg fyrir að jafnaðarmenn hér
 hefðu
 jafnmikil áhrif og þeir hafa í Vestur-Evrópu. Nú hillir undir það,að
 þessi
 draumur  sé að rætast. Skoðanakannanir síðustu mánuði hafa sýnt,að Samfylkingin
 getur
 fengið mikið fylgi í næstu þingkosningum.Ef það gengur eftir hefur
 myndast
 hér stór og sterkur jafnaðarmannaflokkur eins og á hinum Norðurlöndunum 
.Ljóst er að ef Vinstri grænir  hefðu borið gæfu til þess að taka þátt í sameiningu jafnaðarmanna hefði hér myndast  40-45 % flokkur. 

   Tilkoma Samfylkingarinnar  og mikill stuðningur við hana gerbreytir hinu pólitíska landslagi. Áður hefur Sjálfstæðisflokkurinn einn haft sérstöðu og  alltaf getað valið sér samstarfsflokka og oftast ráðið mestu um myndun ríkisstjórnar. Nú mun  Samfylkingin væntanlega geta myndað ríkisstjórn og  valið sér samstarfsaðila. Framsókn hefur getað leikið þann leik í stjórnarmyndunum að halla sér ýmist  til hægri eða vinstri  eftir hentugleikum og hefur jafnvel  getað fengið stól forsætisráðherra  eftir mikinn kosningaósigur  eins og   gerðist t.d. 1978. Ljóst er, að Framsókn hefur ætlað að leika þennan leik á ný nú,þar eð flokksþing Framsóknar samþykkti að  sækjast eftir  forsætisráðherranum í næstu ríkisstjórn!Sú ráðagerð heppnast ekki.Samfylkingin býður sjálf fram forsætisráðherraefni,Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

  Í undanförnum alþingiskosningum hafa talsmenn Framsóknarflokksins  sagt kjósendum,að þeir gætu treyst  flokknum,hann væri áreiðanlegur og traustur flokkur.Framsókn væri kletturinn í hafinu. En hver er reynslan í þeim efnum? Hefur Framsókn staðið við kosningaloforð sín? Hefur flokkurinn reynst stefnu sinni um samhjálp og félagshyggju trúr?Lítum  aðeins á staðreyndir málsins.

 Í síðustu alþingiskosningum  lofaði Framsóknarflokkurinn barnakortum,sem áttu að tryggja hverju  einasta barni 30 þús. kr. barnabætur á  ári ( verðlag 1999).Barnakortin komu aldrei. Og barnabætur hafa lækkað mikið en ekki hækkað. Í síðustu kosningum lofaði Framsókn skattalækkun. En skattar almennings,tekjuskattar einstaklinga, hafa hækkað þegar tekið er tillit til skattleysismarka,sem ekki hafa fylgt launaþróun. Félag eldri borgara hefur sýnt fram á það með tölum,að skattar aldraðra og lágtekjufólks hafa hækkað í raun í tíð núverandi ríkisstjórnar.Lífeyrir aldraðara og öryrkja hefur  rýrnað í samanburði við almenna launaþróun í landinu þrátt fyrir loforð Framsóknar og ríkisstjórnarinnar um að tryggja kjör þessara hópa.Smánarbætur aldraðra og öryrkja eru skattlagðar. Félagslega húsnæðiskerfið hefur verið lagt í rúst:Verkamannabústaðir og aðrar félagslegar íbúðir lagðar niður.Hinu rangláta kvótakerfi, sem gerir þá ríku ríkari og fátæku fátækari, hefur verið viðhaldið.Kvótakóngar fá óáreittir að selja kvóta sína og fara út úr greininni með milljarðagróða. Og þannig mætti áfram telja.

 Framsóknarflokkurinn hefur ekki staðið við kosningaloforð sín frá síðustu alþingiskosningum. Framsókn hefur heldur ekki reynst trú stefnu sinni um samhjálp og félagshyggju. Framsókn hefur lagt meiri áherslu á að halda völdum,vera í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og tryggja Framsóknarmönnum embætti en að framkvæma  stefnu  samhjálpar og félagshyggju.

 Framsóknarflokkurinn er því ekki flokkur trausts og áreiðanleika.Hann er flokkur svikinna kosningaloforða. Hann er flokkur,sem hefur svikið upphaflega stefnu sína um samhjálp og félagshyggju. Það er ekki unnt að treysta slíkum flokki.Gegnum árin hefur Framsókn einnig reynst alger hentistefnuflokkur

 

   Framkoma forustu Framsóknarflokksins við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í  Reykjavík afhjúpaði  Framsókn sem flokk valdníðslu  og kúgunar. Það átti að kúga Ingibjörgu Sólrúnu til þess að hætta við framboð til varaþingsætis í Reykjavík vegna þess að formaður flokksins  ætlaði að bjóða sig fram í Reykjavík. Ingibjörgu Sólrúnu voru settir afarkostir,þröngir tímafrestir þegar tími var nægur og þannig átti að kúga hana og brjóta niður. En hún lét ekki kúga sig. Hún taldi það mannréttindi að mega bjóða sig fram til Alþingis en  hún  var reiðubúinn til þess að gegna  embætti borgarstjóra út kjörtímabilið og  því bauð hún sig aðeins fram í varasæti. Framsókn, undir forustu Halldórs Ásgrímssonar, krafðist þess, að  Ingibjörg Sólrún hætti við framboðið. Ingibjörg  Sólrún lét ekki kúga sig til þess en kaus heldur að standa upp úr stól borgarstjóra.Með því sýndi hún mikið hugrekki.Reykvíkingar geta” þakkað” Framsóknarflokknum bolabrögðin gegn Ingibjörgu Sólrúnu  í kosningunum 10.mai n.k. Reykvíkingar geta gert varamannssætið  að aðalsæti.Þeir geta gert Ingibjörgu Sólrúnu að þingmanni Reykvíkinga.

 

 

Björgvin Guðmundsson,

fyrrverandi borgarfulltrúi

Alþýðuflokksins

 

Birt í Mbl. 2003



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn