Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Engin hækkun á lífeyri aldraðra

mánudagur, 9. júlí 2007

 

Stjórnmálaflokkarnir  lofuðu eldri borgurum margvíslegum kjarabótum fyrir kosningar.Engin hækkun hefur enn orðið á lífeyri aldraðra frá almannatryggingum.Það eina,sem hefur gerst í málefnum aldraðra er að þeir,sem eru 70 ára og eldri, geta nú farið út á vinnumarkaðinn án þess að sæta skerðingu  tryggingabóta vegna atvinnutekna.En þessi breyting tekur ekki til ellilífeyrisþega á aldrinum 67-70 ára. Þeir sæta áfram skerðingu tryggingabóta,ef þeir eru á vinnumarkaðnum.

 

Lífeyririnn verður að hækka

 

Flestir,sem ná eftirlaunaaldri,þ.e. 67 ára aldri, hætta að vinna þá  vegna þess að þá vilja þeir fara að taka það rólega eftir að hafa unnið langa starfsævi  en einnig vegna þess að það fer svo mikið í skatt af atvinnutekjunum.Það eru litlar líkur á því,að þeir sem hætta að vinna 67 ára fari að vinna á ný 70 ára.Það er ágætt að stuðla að því að þeir eldri borgarar sem eru heilsugóðir, geti verið á vinnumarkaðnum.En  það er ekki aðalatriðið í kjaramálum eldri borgara. Aðalatriðið er að  lífeyrir eldri borgara frá almannatryggingum sé það hár,að hann dugi til sómasamlegrar framfærslu.Þess vegna verður lífeyririnn að hækka.Því var lofað fyrir kosningar,að svo yrði. En það kosningaloforð hefur ekki verið efnt.

 

Staðið verði við kosningaloforðin

 

Eldri borgarar krefjast þess,að staðið verði við kosningaloforðið. Það eru engar efndir að reka eldri borgara út á vinnumarkaðinn.Eldri borgarar eru búnir að skila sínu vinnuframlagi til þjóðfélagsins. Þeir eiga rétt á sómasamlegum lífeyri.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn