Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Veiðiheimildirnar fari á frjálsan uppboðsmarkað

fimmtudagur, 8. mars 2012

Enn er eftir að afgreiða á alþingi annað frumvarpið um sjávarútvegsmál.Aðeins tókst að afgreiða frumvarpið um veiðigjaldið fyrir sumarleyfi og stjórnarflokkarnir þurftu að lækka veiðigjaldið mikið eða ofan í 13 milljarða til þess að koma því í gegn. Veiðigjaldið er eftir þá breytingu orðið of lágt. Samt lætur LÍÚ eins og veiðigjaldið sé alltof hátt og jafnvel ofviða útgerðinni.Það er alveg sama hvað veiðigjaldið hefði verið lækkað mikið.LÍÚ hefði samt hamast gegn því.Í greinargerð með frumvarpinu um veiðigjaldið kom fram, að sérstaka gjaldið væri áætlað 20 milljarðar á ári, ef afkoma sjávarútvegsins væri eins góð og hún er í dag.Það var lækkað á alþingi um 7 milljarða frá þeirri áætlun.Í ríkisfjármálaáætlun fyrir 2012-2015 er veiðigjald áætlað 11 milljarðar á ári.Hækkun gjaldsins verður því aðeins 2 milljarðar á ári frá þeirri áætlun og minni fyrstu 2 árin.Það eru öll ósköpin.Afkoma sjávarútvegsins er mjög góð í dag, meðal annars vegna lágs gengis krónunnar.Almenningur ber byrðarnar vegna lágs gengis en útgerð og útflutningur hagnast á því. Undanfarin ár hefur útgerðin hirt nær allan arðinn af sjávarauðlindinni og ekki greitt neitt alvöru veiðigjald eða auðlindagjald til ríkisins. Hagstofan reiknaði út, að hreinn hagnaður sjávarútvegsins hefði numið 44 milljörðum 2010.Áætlanir sýna, að afkoma útgerðarinnar hefur enn batnað 2011 og 2012.Útgerðin fer því létt með að greiða veiðigjaldið.LÍÚ getur farið að gefa grátkórnum frí.

Á að afhenda útgerðinni kvótana á silfurfati?

Enn er eftir að afgreiða frumvarpið um rétt til nýtingar á sjávarauðlindinni.Frumvarpið, sem lagt var fram um það efni, kveður á um yfir 20 ára nýtingarrétt og möguleika á að framlengja nýtingarréttinn. Í kosningunum 2009 lofuðu stjórnarflokkarnir að innkalla kvótana á 20 árum eða fara svokallaða fyrningarleið.Sú leið hefur breytst í það að afhenda kvótakóngunum veiðiheimildirnar á silfurfati til meira en 20 ára.Það eru alger svik á kosningaloforðinu frá 2009.Með því, að útgerðarmenn eru hundóánægðir með bæði veiðigjöldin og nýtingarréttinn er skynsamlegast fyrir ríkisstjórnina að breyta um stefnu og setja veiðiheimildirnar á frjálsan uppboðsmarkað í áföngum.Þetta mætti gera til dæmis í 3 eða 4 áföngum með hæfilega löngum tíma á milli til þess að milda áhrif breytingarinnar gagnvart útgerðarmönnum.Eigandi sjávarauðlindarinnar fengi þá markaðsverð fyrir veiðiheimildirnar en það var sú leið, sem stjórnlagaráð vildi fara.Setja yrði reglur um það, að enginn einn aðili mætti kaupa of mikið af veiðiheimildum og taka yrði frá veiðiheimildir fyrir landsbyggðina ( setja í potta).Þetta er réttlátasta leiðin og tryggir, að allir sitji við sama borð en það er sú krafa, sem mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gerði.

Frumvarpsleiðin er ófær

Sú leið að afhenda útgerðarmönnum veiðiheimildirnar til meira en 20 ára er ekki fær.Það verður jafnmikil óánægja í landinu með þá leið eins og núverandi kvótakerfi.Það er misskilningur hjá ríkisstjórninni að halda að nóg sé að hækka veiðigjaldið örlítið til þess að lægja óánægjuöldurnar.Það dugar ekki.Eina færa leiðin er uppboðsleiðin.Kvótarnir eiga að fara á frjálsan uppboðsmarkað og allir að sitja við sama borð.Það er eina réttláta leiðin.

Björgvin Guðmundsson

Birt i Mbl. 3.ágúst 2012

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn