Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Er Davíð Oddson að hætta í pólitík?

mánudagur, 15. desember 2003

 

 

Fjölmiðlar hafa undanfarið velt vöngum yfir því hvort Davíð Oddsson,forsætisráðherra muni hætta í stjórnmálum,er hann lætur af embætti forsætisráðherra næsta haust. Eru  flestir þeirrar skoðunar,að svo muni verða. Telja fjölmiðlar að  “ eftirlaunamálið” sé til marks um það,að Davíð sé að hætta. Hann vilji tryggja sér góð eftirlaun er hann hætti í stjórnmálum!

 Þegar Davíð tilkynnti fyrst,að hann mundi víkja fyrir Halldóri Ásgrímssyni sem forsætisráðherra  haustið 2004 gaf hann í skyn,að hann mundi þó halda áfram í pólitík. Töldu þá flestir,að hann hygðist verða utanríkisráðherra eða fjármálaráðherra,er Halldór tæki við embætti forsætisráðherra. Nú telja flestir,að Davíð muni hætta í stjórninni og þess vegna hafi verið lögð áhersla  á   það að knýja í gegn eftirlaunafrumvarp  ráðherra og þingmanna til þess að  tryggja Davíð betri eftirlaun.

 

  Hvað gerist?

 

Ef Davíð hættir í ríkisstjórninni mun Geir Haarde væntanlega taka við embætti utanríkisráðherra. Næsta spurning er sú hvort Davíð muni þá einnig láta   af embætti formanns flokksins. Geri hann það tekur Geir Haarde einnig við því,  þar eð hann er varaformaður. En hugsanlegt er að Davíð haldi formennskunni um sinn þó hann fari úr stjórninni. Alla vega er þó ljóst,að  það styttist í að Geir Haarde taki við starfi leiðtoga Sjálfstæðisflokksins. Hvaða afleiðingar mun það hafa? Það  mun geta valdið miklum breytingum. Geir Haarde verður ekki eins harður leiðtogi og Davíð hefur verið. Það verður ekki eins mikill agi undir hans stjórn. Geir Haarde er heldur ekki eins vinsæll og Davíð enda þótt Geir hafi unnið mikið  á  og styrkt sig verulega í sessi að undanförnu

 

 Hvers vegna nú?

 

Fréttablaðið skrifar langa grein um eftirlaunafrumvarpið og veltir vöngum yfir því hvers vegna Davíð hyggist hætta á næsta ári. Gerir blaðið því skóna,að ef til vill sé það vegna þess,að  Davíð hafi tapað kosningunum og/eða vegna þess að hann hafi samið af sér við Halldór og misst forsætisráðherrastólinn.Hvað sem þeim vangaveltum líður er ljóst,að Davíð er búinn að vera mjög lengi í stjórnmálum og lengi forsætisráðherra og sjálfsagt farinn að þreytast. Það  getur  enginn verið nema ákveðinn tíma í þessum störfum. Davíð hefur því sjálfsagt orðið hug á því að breyta til.

.

 Afstaðan til ESB

 

Sumir telja,að afstaða Sjálfstæðisflokksins til ESB muni breytast við leiðtogaskipti. Ólíklegt er að það gerist í einu vetfangi. En þó er líklegt,að Geir Haarde muni hafa jákvæðari afstöðu til ESB en Davíð hefur haft og sennilega muni hann fljótlega sveigjast til aðildar að Evrópusambandinu. Í öllu falli er ljóst,að leiðtogaskipti  í Sjálfstæðisflokknum munu hafa verulegar breytingar í för með sér.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn