Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hvers vegna mátti Alþingi ekki sjá skýrslu Gríms?

laugardagur, 2. september 2006

 

 

Miklar umræður hafa átt sér stað í fjölmiðlum undanförnu um Kárahnjúkavirkjun. Hefur verið  deilt um það hvort  fyrrverandi iðnaðarráðherra,Valgerður Sverrisdóttir, hafi stungið undir stól mikilvægri skýrslu frá Grími Björnssyni jarðeðlisfræðingi um sprungur við og undir stíflustæðunum við Kárahnjúka..Skýrslu þessa ritaði Grímur í febrúar 2002 eða áður en Alþingi tók ákvörðun um reisa Kárahnjúkavirkjun.Alþingismenn hafa gagnrýnt, skýrsla þessi skyldi ekki lögð fyrir Alþingi áður en ákvörðun var tekin um virkjun.Skýrslan var lögð fyrir orkumálastjóra,sem skýrði iðnaðarráðuneytinu frá henni, svo og Landsvirkjun.Skýrslan var talin mjög mikilkvæg, m.a. vegna jarðhræringa á stíflustæðinu. Stjórnarandstaðan telur, iðnaðaráðherra hefði átt leggja þessa skýrslu fyrir Alþingi áður en ákvörðun var tekin um virkjun. Valgerður Sverrisdóttir segir, hún hafi aldrei séð skýrsluna. Embættismenn í ráðuneyti hennar hafi fjallað um hana en hún hafi ekki komið inn á borð til sín.Össur Skarphéðinsson,aþingismaður Samfylkingarinnar segir, Valgerður hafi vitað af skýrslunni og hún beri ábyrgð á því, skýrslan var ekki lögð fyrir Alþingi. Er Össur mjög þungorður í garð Valgerðar út af máli þessu og telur hann, Valgerður hafi sem iðnaðarráðherra borið fulla ábyrgð á máli þessu og ekki þýði skýla sér á bak við embættismenn í ráðuneytinu í málinu.

 

Deilur um málið í iðnaðarnefnd

 

  Iðnaðarnefnd alþingis hefur fjallað um málið og telja stjórnarliðar í nefndinni,að fullnægjandi skýringar hafi komið fram varðandi skýrslu Gríms en stjórnarandstæðingar í nefndinni telja málinu hvergi nærri lokið. Þeir telja,að leggja hefði átt skýrsluna fyrir Alþingi. Stjórnarliðar halda því fram, ekki hafi verið svo mikilvæg efnisatriði í skýrslunni, nauðsynlegt hafi verið leggja hana fyrir Alþingi. Öll atriði skýrslunnar utan eitt hafi verið upplýst eða gefin nægileg skýring á þeim 2002.

 

Ráðherra varð á í messunni

 

 Mér virðist, í þessu máli hafi iðnaðarráðherra þáverandi orðið á í messunni. Kárahnjúkavirkjun er einhver mikilvægasta framkvæmd Íslandssögunnar og mjög dýr framkvæmd. Nauðsynlegt er, fyllsta öryggis gætt við allar framkvæmdir virkjunarinnar og ekki síst við stíflugerð. Sambærilegar stíflur erlendis hafa lekið meira en ásættanlegt hefur verið.Þegar Grímur Björnsson lagði fram skýrslu sína um sprungur í stíflu Kárahnjúkavirkjunar,hættu á stíflurofi o.fl.og sendi orkumálastjóra orkumálastjóri strax, málið var mjög alvarlegt.Hann merkti skýrsluna sem trúnaðarmál en hann lagði skýrsluna þegar fyrir Landsvirkjun og iðnaðarráðuneytið. Hann sinnti þar embættisskyldu sinni.Embættismenn iðnaðarráðuneytis fóru yfir athugasemdir Gríms Björnssonar í skýrslu hans. Það var ekki þeirra ákveða hvort skýrslan  færi fyrir alþingi eða ríkisstjórn. Það var iðnaðarráðherra ákveða það.Fyrrverandi iðnaðaráðherra segir, athugasemdir  Gríms hafi ekki verið taldar mjög mikilvægar og fjallað hefði verið um flestar þeirra áður. En ráðherra lagði sjálfur ekkert mat á skýrsluna. Þar brást ráðherra. Hann  hefði átt  leggja skýrsluna fyrir Alþingi og jafnvel fyrir ríkisstjórn áður en Alþingi tók ákvörðun un virkjun.

 

Víkur þrisvar Alþingi

 

 En átti skýrsla Gríms erindi inn á Alþingi. ,ég tel svo vera. Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur virðist skrifa athugasemdir sínar beinlínis vegna þess, Alþingi var taka virkjunina  til afgreiðslu. Á þremur stöðum í skýrslunni  víkur hann afgreiðslu Alþingis og segir,   hann leggi athugasemdir sínar fram vegna væntanlegrar afgreiðslu Alþingis. Grímur segir m.a.: “(Því) telur undirritaður hættumat það, sem kynnt er í matsskýrslu Landsvirkjunar algerlega óviðunandi, líkur á stíflurofi séu umtalsverðar og meðan svo er eigi virkjunin ekkert erindi inn á Alþingi.”Þetta eru þung orð og alvarleg. Ljóst er af þeim, þarna er Grímur vara við því Alþingi afgreiði virkjun Kárahnjúka miðað við þær aðstæður,sem hann taldi þá vera.Með tilliti til þess,að Grímur vísar beinlínis til væntanlegrar afgreiðslu Alþingis á máli þessu bar iðnaðarráðherra skylda til þess leggja skýrslu hans fyrir Alþingi. Það var ekki ráðherra eða starfsmanna hans ákveða hvort athugasemdirnar ættu erindi við alþingismenn. Alþingismenn áttu sjálfir tækifæri til þess meta athugasemdirnar. Það er ljóst,að skýrslu Gríms var haldið frá Alþingi. Skýrslan þótti óheppileg þegar átti fara samþykkja virkjunina. Ríkisstjórninni hefur þótt hætta á því , skýrslan gæti valdið því, einhverjir þingmenn sem voru hlynntir virkjun, mundu snúast gegn henni vegna athugasemda Gríms.Iðnaðarráðherra,fyrrverandi,ber fulla ábyrgð á þessum vinnubrögðum.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn