Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Á fyrrum samgönguráðherra að segja af sér sem forseti?

sunnudagur, 30. september 2007

Hver er niðurstaðan af miklum umræðum um kaup á notaðri Grímseyjarferju og endurnýjun hennar?  Niðurstaðan er þessi: Kostnaður hefur farið mörg hundruð milljónir fram úr áætlun og fram úr heimild alþingis. Fyrrverandi samgönuráðherra, Sturla Böðvarsson, ber ábyrgð á   öllu málinu og þar á meðal á óheimilum greiðslum úr ríkissjóði til ferjunnar.

 

Ónógur undirbúningur

 

Ríkisendurskoðun hefur skilað skýrslu um mál þetta og gagnrýnir þar harðlega  óheimilar fjárveitingar upp á mörg hundruð milljónir til  viðgerða og kaupa á ferjunni.Ríkisndurskoðun gagnrýnir sérstaklega   ónógan undirbúning að kaupum ferjunnar. Telur ríkisendurskoðun að undirbúningi hafi verið verulega ábótavant.Siglingamálastofnun vildi að mun ítarlegri athugun færi fram á ferjunni en ekki var farið eftir þeirri ábendingu..Ríkisendurskoðun kemst að þeirri niðurstöðu, að mun  ódýrara og skynsamlegra hefði verið að gera við gömlu ferjuna í stað þess að

 

Fjármálaráðherra verður að lúta alþingi

 

Bent hefur verið á það í umræðum um málið, að fjármálaráðherra hafi samþykkt  að greiða mætti stórar fjárhæðir úr ríkissjóði umfram fjárlagaheimildir.Hafi þar verið um að ræða að nýta    vannýttar  fjárheimildir Vegagerðarinnar og að túlka rúmt heimild alþingis til þess að selja gömlu Grímseyjarferjuna og kaupa aðra notaða í staðinn. Fjármálaráðherra, þó valdamikill sé, hefur enga heimild til þesss að  heimila fjárrveitingar  úr ríkissjóði

 umfram heimild alþingis.Samkvæmt stjórnarskránni  má ekki ráðstafa neinum fjármunum úr ríkissjóði

án heimildar alþingis.

 

Ekki búið að selja gömlu ferjuna

 

 Ríkisendurskoðandi bendir á, að ekki sé  einu sinni búið að selja gömlu ferjuna  enn. En auk þess fást aðeins langt innan við 100 milljónir fyrir hana.Eyðslan vegna notuðu ferjunnar, sem keypt var og vegna viðgerðar á  henni, er komin yfir 500 millj. Kr.

 

Hvað verður gert  í þessu máli? Verða þeir sem bera ábyrgðina látnir sæta ábyrgð? Fyrrum samgönguráðherra er ekki lengur í því embætti og því er ekki unnt að vikja honum úr starfi. Hann er nú forseti alþingis.Hann  ætti að segja því embætti af sér vegna máls þessa.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í  Morgunblaðinu 30.september   2007

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn