Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hefur Framsókn yfirgefið stefnu sína?

sunnudagur, 4. júní 2006

 

 

Hvers vegna myndaði borgarfulltrúi Framsóknar ekki meirihluta með andstöðuflokkum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn? Voru það fyrirmæli ofan frá,að Framsókn ætti að vinna með íhaldinu?

 Þegar R-listasamstarfið rofnaði, sögðu margir fulltrúar R-listans, að  R-listaflokkarnir gætu unnið saman og myndað meirihluta enda þótt R-listinn byði ekki fram saman.Hvers vegna var ekki látið reyna á það til fulls? Var kippt í spotta af forustumönnum stjórnarflokkanna? Líklegt er, að svo hafi verið. Það tók aðeins 1 klukkutíma fyrir íhald og framsókn að mynda meirihluta og engu líkara en það hafi áður verið búið að ákveða slíkan meirihluta fyrirfram.

 

Vilji er allt sem þarf

 

Gunnar Thoroddsen sagði einhvern tímann,þegar hann ræddi stjórnmál: Vilji er allt sem þarf.(Hann var hér að vitna í Einar Benediktsson skáld). Og þetta eru orð að sönnu. Þegar vinstri flokkarnir mynduðu meirihluta í borgarstjórn 1978 vissu þeir allir hvað þeir vildu.Þeir vildu mynda nýjan meirihluta og koma íhaldinu frá völdum.Allir flokkarnir voru samstíga. Framsókn var jafn áfram um að koma íhaldinu frá völdum eins og hinum vinstri flokkunum. Það hvarflaði ekki að neinum  vinstri flokkanna að mynda stjórn  með íhaldinu.Það er sama hvað íhaldið  hefði boðið. Því hefði verið vísað á bug. Það hjálpaði mjög til,að vinstri flokkarnir höfðu þróað með sér samstarf áður en þeir náðu meirihlutanum. Þeir fluttu sameiginlegar breytingatillögur við afgreiðslu fjárhagsáætlana og komu fram sem einn flokkur. Þegar meirihlutinn var myndaður 1978 gekk ekki hnífurinn á milli vinstri flokkanna. Hvers vegna var framsókn gerbreytt 2006 frá því sem verið hafði 1978? Var það stjórnarsamvinnan með íhaldinu,sem hafði breytt framsókn? Er hér ef til vill að finna skýringuna á fylgistapi framsóknar? Hefur framsókn yfirgefið stefnu sína og tekið upp íhaldsstefnu í staðinn? Það er sennilegasta skýringin á lánleysi framsóknar. Það er ekki nóg að komast í meirihluta í einhverjum sveitarstjórnum, ef fylgið hverfur frá framsókn og fólkið treystir ekki flokknum.

 

 Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn