Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Minningarorð: Gylfi Þ.Gíslason

föstudagur, 27. ágúst 2004

 

 

 

 

Það er ekki ofmælt,að Gylfi Þ.Gíslason hafi verið áhrifamesti leiðtogi Alþýðuflokksins þann tíma,sem hann var í forustu fyrir flokkinn.Hann var kjörinn þingmaður Alþýðuflokksins aðeins 29 ára gamall og sat á þingi fyrir flokkinn í rúma 3 áratugi.Hann var ráðherra Alþýðuflokksins í 15 ár og formaður flokksins í 6 ár.Hann var um langt skeið helsti fræðimaður flokksins á sviði jafnaðarstefnunnar og stefnumála Alþýðuflokksins.Hann skrifaði bókina Jafnaðarstefnan en einnig fjölda rita og blaðagreina um jafnaðarstefnuna og málefni Alþýðuflokksins.

 Ég kynntist Gylfa árið 1949,er ég gekk í Alþýðuflokkinn.Gylfi var þá róttækur ungur þingmaður og við  ungir jafnaðarmenn litum upp til hans. Jafnaðarstefna Gylfa varð okkar biblía.Hann gaf sér ávallt tíma til þess að ræða við unga jafnaðarmenn  og hafði mikil áhrif,ekki aðeins sem stjórnmálamaður heldur einnig sem fræðari.

  Ég átti þess kost að vinna mjög náið með Gylfa um langt skeið.Sem blaðamaður á Alþýðublaðinu  frá árinu 1953 hafði ég nær daglegt samband við hann sem þingmann og forustumann flokksins.Og sem starfsmaður í viðskiptaráðuneytinu um langt árabil var ég í daglegu sambandi við Gylfa sem viðskiptaráðherra. Auk þess áttum við mikið og náið samstarf innan Alþýðufloksins.Það var unun að vinna með Gylfa.Betri samstarfsmann var ekki unnt að hugsa sér.

Gylfi var mjög flínkur stjórnmálamaður.Hann var mjög vel að sér á öllum sviðum stjórnmála, en starfaði einkum á sviði efnahagsmála og menntamála.  Hann var hagfræðingur að mennt.Hann var góður ræðumaður, mjög ritfær og afkastamikill.En þó hann starfaði mikið að viðskipta- og efnahagsmálum var hugur hans einnig mikið bundinn við listir og menningarmál.Hann var mjög listrænn í sér og hafði mikinn áhuga á tónlist. Hann var góður lagasmiður og samdi nokkur mjög falleg lög. 

 Áhrif Gylfa á íslensk stjórnmál voru mjög víðtæk.Víða má sjá spor hans í stjórnmála-og viðskiptasögu þjóðarinnar. Hann hóf afnám innflutningshafta sem viðskiptaráðherra  í viðreisnarstjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins 1959-1971.Hann átti stærsta þáttinn í því,að Ísland sótti um inngöngu í EFTA 1970 og gekk frá aðild Íslands að þeim samtökum sem viðskiptaráðherra.Segja má því,að Gylfi Þ.Gíslason hafi átt stóran þátt í því að innleiða viðskiptafrelsi hér á landi. Hann hafði einnig mikil áhrif  á mennta- og menningarmál sem menntamálaráðherra og átti m.a. mikinn þátt í endurheimt handritanna frá Danmörku en þau komu hingað til lands í menntamálaráðherratíð hans. Sem formaður Alþýðuflokksins og forustumaður um langt skeið hafði Gylfi mjög mikil áhrif. Hann átti verulegan þátt í því að gera Alþýðuflokkinn að nútímalegum jafnaðarmannaflokki.

Gylfi var prófessor í rekstrarhagfræði við viðskiptadeild Háskóla Ísland um langt skeið. Hann var mjög góður kennari og fræðimaður. Átti ég þess kost að njóta kennslu hans við viðskiptadeild Háskólans.

 Með fráfalli Gylfa Þ.Gíslasonar er fallinn frá mjög merkur stjórnmálamaður og fræðimaður.Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa átt þess kost að starfa með Gylfa og eignast vinskap hans.Ég og Dagrún, kona mín, vottum eftirlifandi eiginkonu hans,Guðrúnu Vilmundardóttur og  fjölskyldu innilega samúð okkar. Drottinn blessi minningu Gylfa Þ.Gíslasonar.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu 27.ágúst 2004

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn