Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Skattalækkun má ekki skerða velferðarkerfið

miðvikudagur, 15. desember 2004

 

 

Ríkisstjórnin tilkynnti 19.nóvember sl.,að tekjuskattur einstaklinga mundi lækka um eitt prósentustig næsta ár og að frumvarp þar um yrði lagt fram.Er þetta tilkynnt einu ári síðar en lofað var í þingkosningunum 2003 en þá var því lofað,að mál þetta yrði lagt fyrir alþingi strax haustið 2003. Við þessa breytingu lækkar tekjuskattur einstaklinga úr 38,5% í 37,5%.En tekjuskattur fyrirtækja er mikið lægri eða 18% Þessar tölur tala sínu máli. Ríkisstjórnin hlífir fyrirtækjunum á kostnað almennings.Ríkisstjórnin lét það hafa forgang að stórlækka tekjuskatt fyrirtækja á meðan tekjuskattur einstaklinga var í raun hækkaður.En það er það sem gerst hefur undanfarin ár.Tekjuskattur einstaklinga hefur í raun hækkað ár frá ári,þar eð skattleysismörkin hafa ekki fylgt þróun verðlags og kaupgjalds.Það er vissulega kominn tími til þess að skila til baka einhverju af þeim hækkunum.

 

Á að skera niður velferðarkerfið?

 

 Tekjuskattslækkun ríkisstjórnarinnar er mjög umdeild meðal hagfræðinga.Sumir þeirra hafa varað við henni á þenslutímum eins og nú ríkja á  Íslandi.En aðrir eins og Tryggvi Þór Herbertsson segja,að ef útgjöld ríkisins séu skorin niður á móti,sé skattalækkun réttlætanleg og til góðs. En það er einmitt það,sem margir óttast nú,að skorið verði niður í velferðarkerfinu vegna skattalækkunar ríkisstjórnarinnar.Vinstri grænir óttast það mjög. Á meðan kjaradeila kennara og sveitarfélaganna stóð töluðu ráðherrar mikið um það,að ekki mætti ógna “ stöðugleikanum” í efnahagsmálum með of miklum kauphækkunum eða of mikilli útgjaldaaukningu hins opinbera.Mörgum þykir það því skjóta skökku við,að um leið og búið sé að semja við kennara þá geti ríkisstjórnin tilkynnt,að hún ætli að  auka útgjöld ríkisins á næstu 3 árum um 22 milljarða.Er hætt við,að þetta þýði stórfelldan niðurskurð í velferðarkerfinu.

 

Lítil leiðrétting á skattleysismörkum

 

  Ætlunin er að  hækka skattleysismörkin lítillega samhliða lækkun tekjuskatts einstaklinga. Eiga skattleysismörkin að hækka úr 71.270 kr. í 85.837 kr. á mánuði  árið 2007. Er þetta mjög lítil hækkun.Ef skattleysismörkin hefðu fylgt verðlagshækkunum frá árinu 1988 væru þau í dag  99.557 kr. en ef þau hefðu fylgt launahækkunum ættu þau að vera 114.956 kr. í dag. Boðuð hækkun skattleysismarka nær því ekki einu sinni hækkun vegna verðlagshækkana.Enn eiga skattgreiðendur því mikla leiðréttingu inni hjá stjórnvöldum.Þó ber að fagna þessu litla skrefi til leiðréttingar. En betur má ef duga skal.

 

Barnabætur:Hluta af ránsfengnum skilað

 

 Eins er með breytingar á barnabótum. Boðað er,að barnabætur eigi að hækka um 2,4 milljarða í áföngum en  ríkisstjórnin hefur skert barnabætur um 11,5 milljarða  frá árinu 1995 þegar núverandi stjórnarflokkar tóku við völdum. Ríkisstjórnin er því aðeins að skila litlum hluta af ránsfengnum.Kosningaloforð Framsóknarflokksins  um að afnema tekjutengingu barnabóta  allra barna innan 18 ára aldurs hefur enn ekki verið efnt og það verður ekki efnt með boðuðum breytingum.Sama er að segja um barnakortin,sem Framsókn lofaði.Það kosningaloforð var svikið.

 Boðað er,að tekjuskattur einstaklinga eigi að lækka um 1% 2006 og síðan um 2% 2007, á kosningaári.

 Kemur þeim tekjuhæstu best

 

 Miklar umræður hafa orðið að undanförnu um boðaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar. Bent er réttilega á,að prósentulækkun á tekjuskatti komi þeim efnamestu  og tekjuhæstu  best. Þeir fái mesta lækkun á tekjuskatti en þeir efnaminnstu,er hafa lágar tekjur, fái minnsta lækkun og jafnvel enga.Réttlátasta skattabreytingin sé því sú,að stórhækka skattleysismörkin og lækka virðisaukaskatt á matvælum. Ég er sammála þessu sjónarmiði.Hins vegar ber að líta á það,að ríkisstjórnin lofaði prósentulækkun á tekjuskatti fyrir síðustu kosningar og á því að standa við það.  Framsóknarflokkurinn lofaði því jafnframt fyrir kosningar,að skera ekki niður í velferðarkerfinu.Ég tel,að ekki megi skera neitt niður í heilbrigðiskerfinu,tryggingakerfinu eða menntakerfinu. Þvert á móti þarf að auka framlög til þessara málaflokka. Það verður að bæta kjör aldraðra og öryrkja og leysa fjárhagsvanda Landsspítala Háskólasjúkrahúss. Menntun þarf að efla í landinu og tryggja kennurum mannsæmandi laun. Það er alger forsenda skattalækkana að staðið sé vörð um þessa málaflokka og þeir efldir.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu 15.des. 2004

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn