Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kosningaloforðin hafa verið svikin

fimmtudagur, 1. apríl 2004

 

 

Fyrir alþingiskosningarnar á sl. ári gáfu stjórnarflokkarnir,Sjálfstæðisflokkur og Framsókn,  mikil kosningaloforð. Það voru stærri kosningaloforð en dæmi voru til um áður í kosningum. Mun ekki ofsagt,að þessi stóru loforð hafi tryggt stjórnarflokkunum áframhaldandi völd í stjórnarráðinu. Kjósendur eiga heimtingu á því  að fá skýr svör strax að loknum kosningum um efndir kosningaloforða.Þau  svör eru ekki komin enn.

 

  20 milljarða skattalækkun svikin?

 

Stærsta kosningaloforðið fyrir síðustu kosningar gaf Sjálfstæðisflokkurinn: Tekjuskattar einstaklinga skyldu lækka um 20 milljarða kr. Svo stórt kosningaloforð hafði enginn stjórnmálaflokkur gefið áður. Var dregið í efa,að þetta yrði nokkru sinni framkvæmt. En Sjálfstæðisflokkurinn stóð fastur á því,að þetta yrði efnt og því til staðfestingar var sagt,að það yrði upplýst og ákveðið á alþingi strax haustið 2003 hvernig skattalækkunin yrði framkvæmd.En ekki var stafur um skattalækkunina í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2004. Og ekkert var ákveðið á haustþinginu um það hvernig framkvæma ætti umrædda skattalækkun. Það var svikið.Er nú allt útlit fyrir,að 20 milljarða skattalækkunin verði svikin.Að vísu tala Sjálfstæðismenn um að málið verði tekið upp að loknum kjarasamningum en ekki er mikið að treysta á það.Stærstu kjarasamningarnir hafa þegar verið gerðir en ekkert gerist í skattamálum.Helst má búast við,að einhver hluti þessarar skattalækkunar komi í lok  kjörtímabilsins en þó er það engan veginn víst.

 

 Í staðinn: Skattahækkun og niðurskurður

 

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn boðaði 20 milljarða skattalækkun sögðu ýmsir og þar á meðal Vinstri grænir,að svo mikil skattalækkun væri ekki framkvæmanleg án niðurskurðar velferðarkerfisins.Á þeim forsendum lögðust Vinstri grænir gegn þessari skattalækkun.VG virðast hafa haft nokkuð til síns máls í þessu efni.Am.k. er niðurskurður velferðarkerfsinis þegar hafinn enda þótt engin skattalækkun hafi átt sér stað. Ríkisstjórnin ákvað að skera útgjöld Landpítala háskólasjúkrahúss niður um  1 ½ milljarð. Liggur nú við neyðarástandi á spítalanum af þeim orsökum.Sagt er,að engir peningar séu til svo komast megi hjá neyðarástandi en á sama tíma er talað um milljarðaskattalækkun! Sjúklingagjöld voru hækkuð um sl. áramót svo og bensíngjald,þungaskattur o.fl.Það má því segja,að í stað skattalækkana hafi fólk fengið skattahækkanir og niðurskurð á velferðarkerfinu.Þannig efnir ríkisstjórnin þetta stærsta kosningaloforð sitt!

 

  90 % lánin svikin

 

Annað stærsta kosningaloforðið í kosningabaráttunni sl. vor  var loforð Framsóknarflokksins um að hækka húsnæðislánin í 90%. Var hamrað á því loforði í kosningabaráttunni og sagt,að þessi hækkun mundi einkum koma ungu fólki  vel.Er líklegt,að þetta loforð hafi dregið eitthvað af ungu fólki   að Framsóknarflokknum.Þetta stóra kosningaloforð getur því hafa skipt sköpum fyrir Framsókn í kosningunum og fært flokknum þau atkvæði sem vantaði til þess að tryggja áframhaldandi meirihluta ríkisstjórnarinnar. Þetta kosningaloforð verður trúlega svikið. Það bólar ekkert á framkvæmd þess.Til málamynda var örlítil hækkun húsnæðislána ákveðin fyrir skömmu. Er nú helst reiknað með að  það verði farið að athuga  einhverja hækkun  lána vegna kosningaloforðsins seint á kjörtímabilinu. Seðlabankinn og fjöldi hagfræðinga hefur varað við  90% hækkun  húsnæðislána. Þessir aðilar hafa sagt,að svo  mikil hækkun húsnæðislána gæti valdið þenslu og verðbólgu.Ríkisstjórnin veit því ekkert í hvorn fótinn hún á að stíga í málinu. Talið er,að ríkisstjórnin muni ef til vill samþykkja að hækka lánin að hluta til seint á kjörtímabilinu. En það teljast ekki efndir á kosningaloforðinu.

 

Svikin við öryrkja

 

Segja má,að  loforð Framsóknar um að stórhækka lífeyri öryrkja hafi einnig verið kosningaloforð. Heilbrigðisráðherra Framsóknar samdi við Öryrkjabandalag Íslands í mars 2003 um sérstakar,tilteknar hækkanir til handa öryrkjum frá og með 1.janúar sl. Þessar hækkanir mundu hafa  kostað ríkissjóð  1 ½ milljarð kr. Á síðustu stundu ákvað ríkisstjórnin að svíkja loforðið við öryrkja og  láta þá aðeins fá 1 milljarð í hækkanir um sl. áramót í stað  1 ½ milljarð . Er  hér ef til vill um svívirðilegustu svikin að ræða.

Kosningaloforðin,sem ríkisstjórnin hefur svikið eru mikið fleiri. Vikið verður nánar að þeim síðar.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

Birt í Mbl. 1.apríl  2004

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn