Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Stefna Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum er óbreytt

sunnudagur, 30. nóvember 2003

 

Ræða Össurar Skarphéðinssonar,formanns Samfylkingarinnar, um heilbrigðismál á landsfundi flokksins fyrir skömmu hefur valdið misskilningi hjá mörgum.Össur kvaðst vilja,að kannað yrði hvort  opna ætti fyrir þann möguleika,að einkarekstur yrði reyndur að takmörkuðu leyti innan heilbrigðiskerfisins með þeim fyrirvara,að  allir sjúklingar hefðu jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu án tillits til efnahags.Kvaðst hann vilja ætla 1 ár til athugunar á málinu en að þeim tíma loknum ætti að  leggja málið undir alla flokksmenn í póstkosningu svipað og gert var varðandi afstöðu Samfylkingarinnar til ESB. Margir hafa skilið þetta svo,að Samfylkingin hefði nú þegar breytt stefnu sinni í heilbrigðismálum  en svo er ekki. Stefnan er enn óbreytt.

 Ég hefi þegar í grein lýst mig andvígan því, að Samfylkingin styðji einkarekstur innan heilbrigðiskerfisins í ríkari mæli en nú á sér stað.Ég hefi stutt þá skoðun mína rökum. En ég tel þó ekki nauðsynlegt  að afnema þann einkarekstur,  sem nú þegar á sér stað. Og ég er hlynntur því,að félagssamtök reki hjúkrunarheimili og takmarkaða aðra heilbrigðisþjónustu.Í þessu efni geri ég mikinn greinarmun á félagssamtökum og sjálfseignarstofnunum,sem reka sjúkrastofnanir án hagnaðarvonar  og einstaklingum,sem reka slíkar stofnanir með ágóða í huga.Ég vil ekki,að opnað sé fyrir þann möguleika, að unnt sé að græða á sjúkrastofnunum.Ef það er gert þurfa sjúklingarnir að greiða hærra fyrir  sjúkraþjónustu  einkaaðila en á sjúkrahúsum hins opinbera og félagssamtaka.

 

Björgvin Guðmundsson

  



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn