Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Svikin bitna harðast á eldri öryrkjum.Öryrkjar 40 ára fá aðeins 2 þús. kr. hækkun. Ráðherra ber ábyrgðina

föstudagur, 5. desember 2003

 

 

Það  liggur nú fyrir hvernig ríkisstjórnin  hagar svikunum við öryrkja. Svikin munu bitna harðast á öryrkjum  49 ára og eldri,þ.e þeim,sem urðu öryrkjar 49 ára eða eldri. Grunnlífeyrir þeirra átti samkvæmt samkomulaginu,að hækka úr 20.630 kr. á mánuði í 28.000. En samkvæmt svikafrv.  ríkisstjórnarinnar mun hann hækka í 21000!Þeir,sem verða öryrkjar 40 ára fá 2 þús. kr. hækkun á mánuði. Öryrkjar,  35 ára og eldri, áttu að hækka í rúmlega 34.000 ( grunnlífeyrir á mán.)  en þeir hækka samkvæmt svikafrv. aðeins í  29.000. Grunnlífeyris yngstu öryrkja mun hins vegar tvöfaldast.Ávallt er miðað við hvenær menn urðu öryrkjar. Ungir öryrkjar eru vel komnir að þeirri hækkun en spurning er hvort þessi aðferð stenst jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Er unnt að hækka  grunnlífeyri sumra öryrkja um 100% en annarra um nokkrar krónur aðeins af því þeir eru eldri? Ég dreg það mjög í efa,að það fái staðist. Athuga ber,að hér er ekki verið að mismuna samkvæmt læknisfræðilegu mati heldur samkvæmt pólitískri ákvörðun.

Upphaflega var ráðgert,að hækka alla um 2/3 samkomulagsins nú  en síðan átti 1/3 að koma til framkvæmda eftir 1 ár. Þetta var tillaga starfshóps,sem vann að undirbúningi frumvarps.Heilbrigðisráðherra ákvað hins vegar að láta yngstu öryrkjana fá tvöföldun grunnlífeyris strax en þá eldri fá sáralitla hækkun. Ráðherra hefur ef til vill haldið,að hann gæti slegið ryki í augu öryrkja með því að láta þá yngstu fá tvöföldun grunnlífeyris á   kostnað þeirra eldri.En það tekst ekki.

 Nú liggur fyrir ,að Tryggingastofnun ríkisins hafði þegar  í  febrúar sl. reiknað út að samkomulagið við Öryrkjabandalagið mundi kosta  1 ½ milljarð kr. en ekki rúman milljarð. Sagt er að útreikningur þessi hafi mislagst í heilbrigðisráðuneytinu! Hvað sem því líður er ljóst,að heilbrigðisráðherra ber ábyrgð á þessu klúðri og hann ber ábyrgð á svikunum við öryrkja. Það er sama hvaða orðhengilsháttur er viðhafður og hvaða útúrsnúningar. Það liggur fyrir,að samkomulagið við öryrkja er svikið.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn