Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Samkeppnislög nægja fyrir fjölmiðla

föstudagur, 30. apríl 2004

 

 

Það mál,sem er efst á baugi í þjóðmálunum í dag er frumvarp forsætisráðherra um eignarhald á fjölmiðlum. Segja má,að þjóðfélagið hafi bókstaflega farið á hvolf vegna máls þessa. Almenningi finnst  svo mikið offors í málinu,að það veldur undrun. Taka þurfti málið fyrir á aukafundi í ríkisstjórn á sunnudegi eins og lífið lægi við. Og nú þarf að hespa málinu af á Alþingi.

 Hvers vegna liggur svona mikið á? Er yfirleitt einhver þörf á lögum um eignarhald á fjölmiðlum? Ég fæ ekki séð,að svo sé. Ástandið á fjölmiðlamarkaðnum hefur batnað, ef eitthvað er.Áður voru hér mörg flokksblöð. Þau voru ekki hlutlaus. Þau hömpuðu sínum flokkum.Og lengi vel réðu Sjálfstæðismenn yfir sterkustu fjölmiðlunum, Morgunblaðinu, DV og Stöð2.Þá var ekki talin þörf á neinni löggjöf um fjölmiðla. Morgunblaðið var hér áður mjög litað af áróðri fyrir Sjálfstæðisflokkinn. En síðan var blaðið opnað fyrir öllum sjónarmiðum og  enda þótt blaðið hafi um langt skeið verið sterkasta blaðið á markaðnum hefur það ekki verið misnotað í þágu eigenda sinna mörg undanfarin ár. En hvað um nýju fjölmiðlasamsteypuna,Norðurljós og  fjölmiðlana,sem það fyrirtæki gefur út og rekur? Er þeir misnotaðir í þágu eigenda  sinna. Þess verður ekki vart. Fréttablaðið er orðið mjög faglegt og gott blað,sem flytur hlutlausar fréttir af mönnum og málefnum og greinar um ýmis efni,m.a. aðsendar greinar frá ýmsum þekktum mönnum. Sumir finna það helst að Fréttablaðinu í dag,að það sé orðið of líkt  Morgunblaðinu! DV er allt annars konar blað,nokkurs konar æsifréttablað ( Tabloid).Ég er ekki ánægður með það.En þegar stjórnmálamenn kveinka sér undan DV verða þeir að gera sér það ljóst,að DV er ekki aðeins að birta óþægilegar fréttir fyrir stjórnmálamenn heldur einnig fyrir  óbreytta einstaklinga,sem lenda í einhverju. Stöð 2 er mjög sambærileg stöð og Sjónvarpið. Þess verður ekki vart að Stöð 2 sé misnotuð í þágu eigenda sinna.

En hvers vegna er þá verið að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. Jú,það virðist vera vegna þess að ríkisstjórninni eða forsætisráðherra sé eitthvað í nöp við þá Bónusfeðga. En Alþingi getur ekki sett lög gegn einu ákveðnu fyrirtæki af slíkum ástæðum. Það gengur ekki.

Við höfum ágæt samkeppnislög og ef eitthvað sterkt fyrirtæki misnotar aðstöðu sína á markaði,fjölmiðlafyrirtæki eða annað fyrirtæki þá geta samkeppnisyfirvöld tekið í taumana. Samkeppnislögin duga fyrir fjölmiðlafyrirtækin eins og fyrir önnur fyrirtæki í landinu.

 

 Björgvin Guðmundsson.

 

Birt í Fréttablaðinu 30.apríl 2004



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn