Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ellilaunin: Ekki hægt að hrópa hátt húrra

miðvikudagur, 9. ágúst 2006

Ellilaunin hækkuðu um 1258 kr: ” Ekki til  hrópa hátt húrra fyrir

Mikil eftirvænting ríkti hjá mörgum eldri borgurum 1.ágúst, þegar launaseðlar Tryggingastofnunar ríkisins bárust þeim. Það var búið tala svo mikið um það í fjölmiðlum, ellilaunin mundu stórhækka, aldraðir áttu von á góðum glaðningi. Morgunblaðið sagði með stríðsletri þvert yfir forsíðu 20.júlí: Þetta er veruleg aukning bótagreiðslna. Það var því von, eldri borgarar ættu von á góðum glaðningi. En hvað kom upp úr launaumslögunum? 1258 krónur.Von , Pétur Guðmundsson (LEB) segði í viðtali við NFS um hækkunina: Það er ekki hægt hrópa hátt húrra fyrir henni. Þetta var hækkunin sem hinn dæmigerði ellilífeyrisþegi fékk.Hvernig mátti þetta vera. það var eingöngu hækkun á grunnlífeyri,sem flestir fengu.Grunnlífeyririnn var hækkaður í  24.131 krónur á mánuði. Þetta er upphæð sem dæmigerður ellilífeyrisþegi fær frá Tryggingastofnun eftir hafa greitt háa skatta til samfélagsins á langri starfsævi.Síðan er tekinn skattur af þessari hungurlús.Dæmigerður ellilífeyrisþegi,sem er í lífeyrisjóði  fær enga tekjutryggingu ( Á Norðurlöndum heldur hann óskertum bótum almannatrygginga þrátt fyrir tekjur úr lífeyrissjóði.)

 

Hvað varð um 15 þúsund krónurnar?

 En hvað varð um 15 þúsund króna hækkunina, sem talað var um, ellilífeyrisþegar ættu   frá 1.júlí. Hún sást ekki nema hjá  örfáum.. Aðeins 400 manns fengu hana frádregnum skatti. Það tók því blása í lúðra og auglýsa þetta sem stórfelldar kjarabætur fyrir aldraða. Þetta virðist fyrst og fremst hafa verið auglýsingamennska.Morgunblaðið sagði 20.júlí: Hærri bætur,minni skerðingar og aukin uppbygging. En ekkert varð vart við minni skerðingu 1.ágúst.Talað er um draga eigi úr skerðingu bóta vegna tekna maka,.m.a. vegna tekna maka úr lífeyrissjóði. En það kemur ekki til framkvæmda fyrr en 1.janúar 2009. Til hvers er verið blása þetta upp í dag, sem koma á til framkvæmda eftir mörg ár. Er það til þess vekja falsvonir hjá ellilífeyrisþegum? Talað er um einfalda eigi kerfið og  hækka frítekjumark atvinnutekna en ekkert af þessu kemur til framkvæmda strax. Það líða mörg ár áður en frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega verður hækkað.

Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekkert talað um skila aftur því mikla fjármagni,sem ríkið hefur haft af öldruðum á síðustu 11 árum en það eru margir tugir milljarða.

 

 Heimahjúkrun og vistun á hjúkrunarheimilum

Í kaflanum um búsetu-og þjónustumál aldraðra er  mikið talað um stórfelldar aðgerðir í framtíðinni og aukin fjárframlög til þeirra mála en það er þó eftir leggja þau mál öll fyrir alþingi.Talað er um auka framlag til heimahjúkrunar um 200 milljónir  á næsta ári. upphæð segir lítið, ef stefnan á vera , sem flestir  aldraðir búi heima. Síðan er fjallað um fjölgun hjúkrunarrýma. Þar er stærsta atriðið úr framkvæmdasjóði aldraðra eigi í framtíðinni   renna til uppbyggingar öldrunarstofnana! Sem sagt: Ríkið hefur í mörg ár látið greipar sópa um úr framkvæmdasjóði aldraðra og notað í rekstur. En ætlar ríkið náðarsamlegast hætta því ráðslagi. Með því  á fjármagn til byggingar öldrunarheimila aukast um 200 milljónir á ári en þó verður ekki látinn nema  helmingurinn af því næsta ár,eða 100 milljónir. Það verður ekki gert stórt átak í því byggja hjúkrunarheimili fyrir 100 milljónir.Ekki er gert ráð fyrir meira fjármagni til byggingar öldrunarheimila  árið 2007. Ekkert er minnst á ríkið skili þeim 2,5 milljörðum króna,sem það hefur tekið úr framkvæmdasjóði aldraðra á síðustu 10 árum. Ef þeir peningar hefðu skilað sér til byggingar hjúkrunarheimila eins og til var ætlast í upphafi væri ástandið annað í þeim málum í dag en það er.

 Menn verða athuga það, stefnubreyting varðandi vistun aldraðra tekur langan tíma. Því verður ekki breytt í einu vetfangi vista fleiri aldraða í heimahúsum. Enn um sinn verður mikil þörf fyrir aukið rými á hjúkrunarheimilum. Það virðist ekki fylgja mikill hugur máli  hjá stjórnvöldum, ef þau ætla auka framlag til heimahjúkrunar um  200 milljónir á næsta ári. Það segir lítið.

 Það ber allt sama brunni í þessu máli. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar  og LEB í málefnum aldraðra virðist fyrst og fremst vera áróðursplagg. Það hefði mátt bíða með blása í lúðra í fjölmiðlum og sjá fyrst hvernig tækist til með framkvæmd á loforðum ríkisstjórnarinnar varðandi úrbætur í málefnum aldraðra.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn