Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%

mánudagur, 2. maí 2016

Eldri borgari , sem er í sambúð eða hjónabandi, hefur 185 þüsund krónur á mánuði eftir skatt frá almannatryggingum, ef hann hefur engar aðrar tekjur. Einhleypur eldri borgari hefur 207 þúsund krónur á mánuði eftir skatt frá almannatryggingum, miðað við sömu forsendur að því, er tekjur varðar. Þetta er það, sem ríkisstjórnin skammtar eldri borgurum. Af þessum upphæðum eiga þessir eldri borgarar að greiða allan sinn kostnað og þar á meðal húsnæðiskostnað. Leiga getur verið 150 þúsund krónur á mánuði og þá er lítið eftir fyrir öllum öðrum kostnaði. Það eru 57 þúsund krónur eftir hjá einhleypingi. Hann á m.ö.o að greiða fyrir rafmagn og hita,mat, fatnað,samgöngur,sima,tölvukostnað,lyf,lækniskostnað, gjafir o.fl af þessum 57 þúsund krónum! Ljóst er, að ekki er unnt að reka bíl af svo litlum tekjum. Og hætt við, að eldri borgarinn verði að sleppa einhverjum fleiri útgjaldaliðum. Mikil skerðing vegna lífeyrissjóðs Ef einhleypur ellilífeyrisþegi hefur 50 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði heldur hann 18 þúsund kr á mánuði af þeirri upphæð eða ígildi þess. Tryggingastofnun skerðir lífeyri þessa eldri borgara um 32 þúsund á mánuði, einungis vegna þess að hann greiddi í lífeyrissjóð.Þessa skerðingu verður að stöðva. Það á auðvitað ekki að refsa þessum eldri borgara fyrir að hafa greitt í lífeyrissjóð. Eldri borgarinn á að halda lífeyri sínum hjá Tryggingastofnun óskertum. Hann var einmitt að greiða í lífeyrissjóð til þess að njóta þess að fullu, þegar hann væri kominn á eftirlaunaaldur. Ef einhleypur eldri borgari hefur eitt hundrað þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði heldur hann helmingi þeirrar fjárhæðar eða ígildi .TR tekur helminginn.Það er svipuð skerðing og í fyrra tilvikinu.Ég segi það sama og áður: Það verður að stöðva þessa skerðingu.Það verður að afnema hana. Þetta er siðlaus skerðing. Hvað hækkaði lífeyrir mikið 2016? Nú hefur "methækkun"allra tíma komið til framkvæmda! Lífeyrir einhleypra ellilífeyrisþega hækkaði um 15 þúsund krónur eftir skatt.Lífeyrir þeirra eldri borgara,sem eru í sambúð hækkaði um 13 þúsund krónur.Tölurnar í þessari grein eru eftir hækkun um áramót.Hækkunin breytir engu.Þetta voru í kringum 200 þúsund krónur á mánuði áður og þetta eru áfram í kringum 200 þúsund á mánuði. 300 þúsund á mánuði eða rúmlega það er lágmark.-Lífeyrisþegar fengu miklu meiri hækkun um áramótin 2008/2009 en nú.Almannatryggingar voru einnig efldar miklu meira 1946 við stofnun trygginganna (breytingu frá alþýðutryggingum) og 1960, þegar viðreisnarstjórnin tók við. 30% hækkun yrði viðunandi um skeið Ef lífeyrir aldraðra og öryrkja verður hækkaður um 30% vegna kjaragliðnunar hækkar lífeyrir um 73800 kr á mánuði og færi í tæp 320 þúsund krónur á mánuði. Það er sama tala og kemur út í neyslukönnun Hagstofunnar.Yrði viðunandi um skeið. Björgvin Guðmundsson formaður kjaranefndar FEB


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn