Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kjör aldraðra eru til skammar

föstudagur, 9. júlí 2004

 

 

Einn stærsti bletturinn á stefnu ríkisstjórnarinnar er slæm kjör aldraðra og öryrkja.Á því tímabili,sem góðæri hefur ríkt í landinu og  auðvelt hefði átt að vera að bæta kjör þessara hópa hafa kjör þeirra versnað í samanburði við kjör láglaunafólks á almennum vinnumarkaði. Aldraðir og öryrkjar hafa dregist aftur úr í launaþróun hinna lægst  launuðu

 

Skerðingin verði leiðrétt

 

 

 Árið 1995 var skorið á tengsl milli elli-og örorkulífeyris og lágmarkslauna á vinnumarkaði. Fram að þeim tíma hækkuðu bætur aldraðra og öryrkja sjálfvirkt um leið og lágmarkslaun hækkuðu. Frá 1990  hefur kaupmáttur lágmarkslauna hækkað um 52% en á sama tímabili hefur kaupmáttur lífeyris aldraðra einstaklinga aðeins aukist um 25%.Það er skilyrðislaus krafa aldraðra,að þessi skerðing verði leiðrétt. Árið 1990 nam ellilífeyrir einstaklinga ásamt tekjutryggingu 83,3% af lágmarkslaunum verkafólks.Í dag nemur ellilífeyrir einstaklinga ásamt tekjutryggingu aðeins  66,5% af  lágmarkslaunum. Þessar tölur tala sínu máli.Þær leiða í ljós,að  þegar bæta hefði átt kjör aldraðra og öryrkja voru kjörin skert í samanburði við kjör láglaunafólks. Þetta er ótrúlegt á góðæristímum.Skattar aldraðra hafa einnig hækkað á sama tíma og ríkisstjórnin segist hafa lækkað skatta.Tekjuskattur af 100 þús kr., tekjum nemur í dag 11,1% en nam  árið 1990  5,5%. ( sambærilegar tekjur að teknu tilliti til  verðlagsbreytinga).Lyf hafa einnig hækkað en það bitnar þungt á öldruðum.

 

Vantar 40 þús. á mánuði

 

  Aldraður einstaklingur,sem einungis hefur bætur frá Tryggingastofnun ríkisins hefur í dag í kringum 100 þús kr. á mánuði í lífeyri.Af þeirri fjárhæð greiðir hann 11 þús kr. í skatt.Harpa Njáls, félagsfræðingur,sem ritaði bók um fátækt  Íslandi, telur í bókinni,að það vanti 40 þús. kr. á mánuði til þess að unnt sé að framfleyta sér á bótum Tryggingastofnunar.Það er sem sagt verið að skammta öldruðum skammarlega lágar bætur sem ekki duga til framfærslu. Og þetta gerist á góðæristímum.  Bæturnar þyrftu því að vera a.m.k 140 þús kr. á mánuði. Einn stærsti útgjaldaliður fólks er húsnæðiskostnaður. Algengt er að aldraðir einstaklingar þurfi að greiða 50 þús. kr á mánuði  fyrir húsnæði.Sjá þá allir hversu  lítið er eftir fyrir mat,fatnaði og öllum öðrum kostnaði.Krafan er sú,að aldraðir,sem byggt hafa upp þetta þjóðfélag,geti lifað með  reisn á efri árum.

 

Smánarsamningur í nóv. 2002

 

Í nóvember 2002 samþykkti ríkisstjórnin,að gera örlitlar lagfæringar á kjörum aldraðra samkvæmt samkomulagi við samtök aldraðra.. En þetta voru smánarlega litlar breytingar á bótum. Ólafur Ólafsson,formaður Félags eldri borgara í Reykjavík,sagði á síðasta aðalfundi félagsins,að samningamenn aldraðra hefðu verið of undanlátssamir í samningum við ríkisstjórnina. Og það er rétt. Þessar breytingar á bótum vigta sáralítið. Meira munaði um það,sem samið var um til lagfæringar á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða.En ríkisstjórnin getur enn tekið sig á í lífeyrismálum aldraðra og öryrkja. Stjórnin getur ákveðið að hækka bætur um 40 þús á mánuði svo þær dugi til framfærslu. Stjórnin ætti að sjá sóma sinn í að gera það.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn