Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Framsókn: Sami grautur í sömu skál

þriðjudagur, 22. ágúst 2006

Framsókn hafnaði kynslóðaskiptum við val á forustu á nýafstöðnu flokksþingi. Hún kaus í staðinn pólitíska framlengingu á fyrrverandi formanni eins og Þorsteinn Pálsson orðar það í forustugrein í Fréttablaðinu. Flokksþingið kaus með 54% atkvæða þann formamannskandidat,sem fráfarandi formaður hafði handvalið. Sif Friðleifsdóttir  fékk 44% atkvæða. Hún sýndi mikið hugrekki með því að bjóða sig fram til formennsku og  hún bauð þannig birginn foringjaræðinu í Framsókn. En hún var of sein. Hún hikaði þar til vika var eftir fram að flokksþingi. Að hika er sama og að tapa,segir máltækið. Sennilega hefði hún sigrað, ef hún hefði ákveðið sig fyrr,þ.e. áður en Halldór Ásgrímsson var búinn að binda rúman helming þingfulltrúa á Jón Sigurðsson. Þetta var síðasti greiðinn, sem fráfarandi formaður bað flokksmenn að gera sér, þ.e. að kjósa gamlan vin hans sem formann. Og það voru aðeins 44% sem stóðust það að gera fráfarandi formanni þennan greiða.

 Jón Sigurðsson er sjálfsagt ágætis maður. En hann verður fulltrúi þess Framsóknarflokks, sem Halldór Ásgrímsson mótaði. Það er flokkurinn,sem innsiglaði langvarandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og varpaði  hugsjón samvinnu og jafnaðar fyrir róða. Sif Friðleifsdóttir gaf til kynna, að hún mundi  innleiða gömlu jafnaðargildin á ný, ef hún yrði kosinn formaður. Ég hygg, að hún hefði fært Framsóknarflokkinn aðeins til vinstri, ef hún hefði komist til valda og var ekki vanþörf á. Hún hefði tekið upp róttækari stefnu en Halldór  hafði mótað enda þótt hún væri varkár í tali fyrir flokksþingið og gætti þess að styggja ekki Halldór eða fylgismenn hans um of.

 Eins og við var að búast hilltu Framsóknarmenn sinn gamla formann á flokksþinginu. Í kveðjuræðu fráfarandi formanns voktu mesta athygli ummæli hans um, að Bandaríkjunum væri  ekki lengur treystandi í varnarmálunum.Bragð er að þá barnið finnur.Um leið og Halldór hættir virðist hann orðinn sammmála Samfylkingunni um, að  Ísland eigi nú að halla sér að Evrópu í varnarmálum.Bandaríkin hafi brugðist.Hins vegar minntist Halldór ekkert á Íraksstríðið í kveðjuræðu sinni. Ákvörðun hans  og Davíðs Oddssonar um að styðja innrásina í Írak er ljótasti bletturinn á stjórnmálaferli þeirra tvímenninganna. Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, baðst afsökunar á því að hafa lagt falsaðar upplýsingar um hryðjuverkavopn í Írak fyrir Öryggisráð Sþ. Powell er maður að meiri eftir þá afsökunarbeiðni. Halldór hefur hins vegar ekki beðið íslensku þjóðina afsökunar á stuðningi við innrásina í Írak. Hann segir aðeins, að sennilega hefði ákvörðun hans orðið önnur, ef réttar upplýsingar um hryðjuverkavopn í Írak hefðu legið fyrir.( Viðtal í Mbl.).

 Það er ekki nóg. Þessir menn skulda íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni.

 Það voru miklar vonir bundnar við Halldór Ásgrímsson sem ungan stjórnmálamann áður en hann gekk í björg hjá íhaldinu.En íhaldsvistin breytti honum. Mbl. segir, að mesta afrek hans hafi verið að halda Framsókn svo lengi við völd,sem raun ber vitni. Það er enginn vandi að halda flokki við völd í samsteypustjórn, ef hann slakar alltaf á stefnu sinni og samþykkir stefnu samstarfsflokksins. Það voru mikil mistök hjá Halldóri  að framlengja samstarf við íhaldið eftir síðustu kosningar. Þar réði ferð hégómi um að fá stól  forsætisráðherra um stutt skeið.

 Halldórs verður  lengst minnst fyrir  þátt hans í lögleiðingu kvótakerfisins  svo og fyrir að beita sér fyrir Kárahnjúkavirkjun. Steingrímur Hermannsson skýrir frá því í ævisögu sinni, að LÍU  og Fiskiþing hafi beitt sér fyrir einhvers konar kvótakerfi og  Halldór,sem  sjávarútvegsráðherra, hafi lagt tillögur þar um fyrir alþingi. Það má því segja, að Halldór sé nokkurs konar faðir kvótakerfisins. En sjálfur kveðst Steingrímur hafa verið á móti þessu kerfi. Að sjálfsögðu hafa margir stjórnmálamenn lagt blessun sína yfir kvótakerfið en mesta ábyrgð bera Framsókn og íhaldið í því efni. Þetta kerfi  er eitthvað það ranglátasta,sem innleitt hefur verið  hér á landi. Tiltölulega fáum útvöldum  voru fengin yfirráð og nýting fiskauðlindarinnar án endurgjalds, en lögum samkvæmt er fiskurinn í sjónum sameign allar þjóðarinnar. Þessir aðilar hafa síðan stöðugt braskað með auðlindina. Nýting  hennar hefur gengið kaupum og sölum og þessir aðilar hafa grætt stórfé á braskinu, sumir  hafa hagnast um marga  milljarða. Gífurlegir fjármunir hafa flutst til í þjóðfélaginu við þessi viðskipti og hinir fáu útvöldu hafa hagnast gífurlega.Þetta er mjög ranglátt kerfi, sem verður að afnema eða leiðrétta. Það er enginn heiður fyrir Halldór að vera guðfaðir þessa kerfis. Kárahnjúkavirkjun  og álverksmiðjan á Reiðarfirði munu verða lyftistöng fyrir atvinnulíf Austurlands. Margir Austfirðingar munu því þakklátir Halldóri fyrir forgöngu hans í því máli. En ágreiningur er mikill meðal þjóðarinnar um þessar framkvæmdir allar. Margir telja, að spjöll á náttúrunni séu of mikil og að atvinnuuppbyggingin eystra sé of dýru verði keypt. Athyglisvert er, að þau mál sem helst halda nafni Halldórs Ásgrímssonar á lofti, kvótakerfið og Kárahnjúkavirkjun (og Íraksstríðið)  hafa ekkert með samvinnustefnu eða jöfnuð að gera enda hefur Framsókn undir forustu Halldórs snúið baki við stefnu samvinnu og jafnaðar.  Þorvaldur Gylfason, prófessor, segir, að kvótakerfið eigi stærsta þáttinn í aukinni misskiptingu,auknum ójöfnuði hjá þjóðinni. Í stjórnartíð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks síðustu 11 árin  hefur auðgildið verið tekið fram yfir manngildið og græðgisstefna hefur verið innleidd í samfélagið.Því miður er ekki að vænta neinnar stefnubreytingar hjá Framsókn með nýjum formanni. Þetta er sami grautur í sömu skál.

Björgvin Guðmundsson 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn