Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ekki má hvika frá fyrningarleiðinni

miðvikudagur, 30. mars 2011

Miðað við þær fregnir,sem lekið hafa út um fiskveiðistjórnarmálið er Jón Bjarnason,sjávarútvegsráðherra,á hröðu undanhaldi frá fyrningarleiðinni,stefnumáli ríkisstjórnarinnar í málinu.Unnið hefur verið að smíði frumvarps um málið  í sjávarútvegsráðuneytinu.Og lausafregnir herma,að í drögum að frumvarpi sé lagt til,að útgerðarmennj fái fiskveiðiheimildir til 15 ára.Ca.8 % verði i pottum til úthlutunar til byggða úti á landi og til nýrra aðila.Hlutdeild potta í heildinni geti ef til vill aukist eitthvað á nokkrum árum.Ef þessar lausafregnir eru réttar  er ætlunin að svíkja kosningaloforð Samfylkingar og VG um fyrningu aflaheimilda á allt að 20 árum og úthlutun á ný á sanngjarnan og réttlátan hátt.
Liðónýt lausn-svik
Að mínu áliti kemur ekki til greina að fara þá leið,sem hér er lýst.Það er mikið nær að fresta málinu en að leggja fram liðónýta lausn,sem gengur í berhögg við kosningaloforð stjórnarflokkanna.Rifjum upp hvað er að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi.Það,sem er að er, að nokkrir stórir aðilar hafa megnið af fiskveiðiheimildunum.Þeir geta valsað með þær að vild,framselt þær og jafnvel selt þær og hætt útgerð eins og mörg dæmi eru um og grætt stórfé á því..Fiskveiðiheimildum var upphaflega úthlutað frítt.Útgerðarmenn hafa kvótana á leigu til eins árs í senn en þeir hafa haft þá  svo lengi,að þeir eru farnir að líta á þá sem sína  eign.Leigugjaldið,sem útgerðarmönnum er gert að greiða fyrir afnot af kvótunum er hlægilega lágt.Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur gagnrýnt fiskveiðistjórnarkerfið og sagt að það sé ósanngjarnt og ranglátt kerfi sem hleypi engum nýjum aðilum að.Nefndin segir,að  kerfið feli í sér mannréttindabrot.Enda þótt nokkur ár séu síðan þessi  úrskurður Mannréttindanefndar Sþ. birtist hafa íslensk stjórnvöld ekkert gert til þess að breyta kerfinu og afnema mannréttindabrotin.
Á að festa ranglátt kerfi í sessi?
Ef ætlunin er að afhenda útgerðarmönnum kvótana til 15 ára eða lengri tíma er verið að festa hið rangláta kerfi í sessi og verðlauna stórútgerðirnar fyrir misnotkun á kvótunum.Það kemur ekki til greina.Það væru hrein svik á kosningaloforð Samfylkingar og VG um að fara fyrningarleið.Tillaga Samfylkingar um fyrningu( innköllun) aflaheimilda á 20 árum er mjög mild leið  gagnvart útgerðarmönnum.Það væri þá aðeins verið að innkalla 5% á ári.Útgerðirnar þyldu það vel. Síðan á að úthluta veiðiheimildum á ný á sanngjarnan og réttlátan hátt og þannig,að nýir aðilar komist að.Hugmyndin um potta fyrir landsbyggðina er ekki slæm en hlutdeild potta þyrfti að vera mun meiri en 8%,sennilega 20-25%.Ef pottar væru aðeins 8% væri það svipuð hlutdeild og er utan kerfisins í dag.Þá þarf að hækka leigugjaldið ( auðlindagjaldið).Íslenska þjóðin á fiskveiðiauðlindina,kvótana,og hún á að fá hæfilegt gjald fyrir afnot útgerðarmanna af þessari auðlind.Ekki kemur til greina,að  hafa gjaldið óbreytt.
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Morgunblaðinu 30.mars 2011


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn