Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Bið verður á 90% lánum!

föstudagur, 2. janúar 2004

 

 

Þeir,sem höfðu  búist við, að 90 % lán tækju gildi nú um áramót urðu fyrir vonbrigðum. Efndir á þessu kosningaloforði Framsóknarflokksins láta á sér standa. Nú er sagt, að beðið sé eftir áliti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA og það komi ekki fyrr en næsta vor. Ljóst er, að ríkisstjórnin er að tefja málið,þar eð það mælist illa fyrir hjá Seðlabanka og hagfræðingum almennt,að hækka lánin upp í  90% af verði fasteigna.Ríkisstjórnin ætlar að tefja málið eins mikið og mögulegt er og síðan verður það hugsanlega framkvæmt í áföngum. Þetta kosningaloforð Framsóknar virðist vera orðið vandræðabarn  ríkisstjórnarinnar.

 Til þess að gera eitthvað  og sefa óánægju þeirra,sem  trúðu kosningaloforði Framsóknar er nú ákveðið að hækka  húsnæðislánin lítillega. Lán vegna kaupa á eldra húsnæði hækka í 9,2 millj. og lán vegna kaupa á nýjum íbúðum hækka í 9,7 millj. kr. Fyrir kosningar lofaði  Framsókn að hækka lánin í 18 millj. kr. Breytingin nú er lítil miðað við það loforð. Virðist Framsókn ætla að svíkja kosningaloforð sín í húsnæðismálum. Jóhanna Sigurðardóttir,alþingismaður segir,að breytingarnar nú og 1.júlí n.k. séu fyrsta skrefið í þá átt að flytja íbúðalánin í bankana. Sjálfstæðisflokkurinn stefni að því og  sé það athyglisvert,að breytingarnar nú voru samdar  í fjármálaráðuneytinu.

Vextir lækka lítillega nú.  Ætlunin er að afnema húsbréfakerfið 1.júlí n.k. og taka upp peningalán  í staðinn.

 

Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn