Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Grunnlífeyrir hér aðeins þriðjungur slíks lífeyris í grannlöndunum

föstudagur, 1. janúar 2016

Grunnlífeyrir almannatrygginga hér er 40 þúsund krónur á mánuði.Í grannlöndum okkar,Noregi,Danmörku,Svíþjóð og Bretlandi er hann 3 sinnum hærri . Íslendingar voru í fararbroddi almannatrygginga fyrst eftir stríð.En síðan hefur Ísland stöðugt dregist aftur úr á þessu sviði og í dag rekur Ísland lestina.Hvað veldur?Ástæðan er skeytingarleysi stjórnmálamanna á sviði almannatrygginga.Framámenn í íslenskum stjórnmálum í dag virðast telja, að misskilningur.Vissulega má lífeyrir aldraðra vera hærri en lágmarkslaun.Það sýnir einfaldlega, að þjóðfélagið vill gera vel við sína eldri borgara.Röksemd Bjarna Ben.um, að lífeyrir megi ekki vera hár, þar eð þá sé enginn hvati til þess að fara út á vinnumarkaðinn, á ekki við eldri borgara.Eftirlaun verða hins vegar að vera það há, að þau dugi til framfærslu hjá þeim ,sem einungis hafa tekjur almannatrygginga.En svo er ekki i dag.Þar vantar mikið upp á.Sú hungurlús,sem ríkisstjórnin skammtar lífeyrisþegum frá 1.janúar breytir hér engu.Lífeyrir aldraðra á að sjálfsögðu að vera svipaður hér og hann er í grannlöndum okkar. Jafnhliða stórhækkun grunnlífeyris aldraðra þarf að afnema skerðingu lífeyris hjá TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Bjarni fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins lofaði því fyrir síðustu alþingiskosningar að afnema þessa skerðingu. Hann hefur ekki efnt þetta loforð. Það er alvarlegt mál.Stjórnmálamenn geta ekki gefið kjósendum slík loforð án þess að standa við þau. Ef Bjarni efnir ekki þetta loforð strax á hann að segja af sér. Svo einfalt er það.Tekjutengingarnar fara mjög illa með aldraða og öryrkja.Eldri borgari,sem hefur 100 þúsund krónur á mánuði í lífeyri frá lífeyrissjóði, missir sem svarar helmingi þessarar upphæðar frá almannatryggingum. Hvaða réttlæti er í því? Hvers vegna var þessi eftirlaunamaður að greiða i lífeyrissjóð i, ef hann nýtur þess ekki , þegar hann er hættur að vinna? Það verður að afnema þessa skerðingu og það verður að afnema hana strax Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar FEB+ Birt i Fréttablaðinu 31.des. 2015 .


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn