Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



ASÍ styður kjarabaráttu aldraðra

laugardagur, 3. september 2011

Samtök aldraðra hafa undanfarin ár fjallað mikið um það hvernig  unnt væri að ná eyrum stjórnenda landsins.Gerðar hafa verið ályktanir um kjaramál,mótmælt hefur verið kjaraskerðingu aldraðra af hálfu stjórnvalda  og rætt við ráðherra en allt hefur komið fyrir ekki.Ályktunum  Landssambands eldri borgara hefur verið stungið undir stól.Ráðamenn landsins hafa ekkert gert með ályktanir eldri borgara enda þótt því hafi verið heitið að haft yrði samráð við hagsmunasamtök um aðgerðir  í ríkisfjármálum.Af þessum sökum ákváðu Félag eldri borgara í Reykjavík og Landssamband eldri borgara að snúa  sér til verkalýðshreyfingarinnar og biðja hana að taka upp kjaramál eldri borgara í væntanlegum kjarasamningum.Félag eldri borgara í Reykjavík gerði út sendinefnd á fund verkalýðsfélaga í Reykjavík til þess að ræða kjaramálin og kjaranefnd Landssambands eldri borgara  gekk á fund Gylfa Arnbjörnssonar forseta ASÍ til þess að ræða þetta sama mál.Gylfi Arnbjörnsson var strax mjög jákvæður í málinu enda hefur verkalýðshreyfingin gegnum árin gætt hagsmuna eldri borgara í kjaramálum
Lífeyrir hækki í takt við hækkun launa
ASÍ kynnti kjarakröfur sínar fyrir ríkisstjórninni  12.janúar sl. Þar er mörgum mikilvægum kjaramálum hreyft.En það sem vekur einkum athygli eldri borgara er, að ASÍ segir,að  lífeyrir aldraðra og öryrkja verði að hækka í samræmi við hækkun lægstu launa. Einnig vill ASÍ að sett verði nýtt frítekjumark tryggingabóta vegna tekna úr lífeyrissjóði.Hér hefur ASÍ tekið upp tvær mjög mikilvægar kröfur eldri borgara.Og ég á von á því að ASÍ muni knýja þessar kröfur fram.Það var lengi svo,að lífeyrir hækkaði sjálfvirkt þegar lágmarkslaun hækkuðu.Þegar það var afnumið var sett í lög,að taka  ætti mið af breytingum á verðlagi og kaupgjaldi við breytingar á lífeyri aldraðra.Eftir þessu lagaákvæði hefur ekki verið farið í rúm 2 ár.Verðlagsbætur voru greiddar á lífeyri um áramótin 2008/2009.Þeir lífeyrisþegar,sem voru á strípuðum bótum fengu  þá  fullar verðlagsbætur en hinir fengu aðeins hálfar verðlagsbætur.Eftir þetta var lífeyrir aldraðra og öryrkja frystur.Síðan hefur lífeyrir verið að rýrna að raungildi til, þar eð verðbólga hefur verið talsverð en engar verðlagsbætur verið greiddar.Á þessu tímabili hefur kaup láglaunafólks hækkað um 16%.Lífeyrir hefði að sjálfsögðu átt að hækka samsvarandi en svo varð ekki.Lífeyrisþegar máttu sæta kjaraskerðingu á sama tíma og launþegar á lágum launum fengu verulega kauphækkun.
Verulegar kauphækkanir væntanlegar
Reikna má með því,að samið verði um talsverðar kauphækkanir í þeim samningaviðræðum um kaup og kjör,sem nú standa yfir. Einstök verkalýðsfélög hafa krafist 200 þús. kr. mánaðarlauna.Það er umtalsverð kauphækkun.ASÍ leggur áherslu,að kaupmáttur aukist.Ekki er nóg að fá hækkun í krónutölu.Lífeyrir aldraðra og öryrkja mun væntanlega hækka samsvarandi þeim launahækkunum,sem samið verður um. Ekki er áfram unnt að skilja lífeyrirþega eftir, þegar samið er um kauphækkanir fyrir launþega.Lífeyrir aldraðra og öryrkja er ígildi launa.Þegar laun hækka á lífeyrir að hækka.
Núverandi ríkisstjórn hefur haft þann hátt á,að  frysta lífeyri aldraðra og öryrkja  og einungis hækkað allra lægsta lífeyri ,ef eitthvað hefur verið hækkað.Þannig voru um sl. áramót aðeins hækkaðar lágmarksframfærsluuppbætur aldraðra og öryrkja.Með þessari aðferð hækkar ríkisstjórnin aðeins lífeyri hjá mjög fáum,þar eð aðeins mjög lítill hópur ellilífeyrisþega nýtur lágmarksframfærsluppbótar. Hækkunin um áramót var einnig mjög lítil eða aðeins 2,3%.
Tímabært,að eldri borgarar fái kjarabætur
Lífeyrisþegar eru búnir að taka á sig nægilegar byrðar vegna kreppunnar.Þeir hafa sætt verulegri kjaraskerðingu í 2 ár.Auk þess töpuðu margir lífeyrisþegar verulegum fjármunum í bankahruninu. Þeir eldri borgarar,sem höfðu sparað einhverja fjármuni og lagt  í peningamarkaðssjóði töpuðu  miklum fjármunum.Það er því tímabært að stjórnvöld breyti afstöðu sinni til aldraðra og veiti þeim sanngjarnar og eðilegar kjarabætur.Eldri borgarar eiga að geta lifað með reisn á efri árum og ekki að þurfa að skera allt við nögl sér.
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Morgunblaðinu 9.mars 2011


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn