Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Reynt að knésetja Baug.Hver togaði í spotta?

laugardagur, 1. október 2005

 

Baugsmálið svokallaða mun vera eitthvert sérstæðasta og undarlegasta sakamál,sem komið hefur fram hér á landi.Stjórnendur Baugs eru sakaðir um að hafa stolið frá fyrirtækinu.En engir fjármunir hafa horfið.Engra fjármuna er saknað og þeir,sem sakaðir eru um fjárdrátt halda enn um stjórnvöl fyrirtækisins. Venjan er sú,þegar fjárdráttarmál koma upp,að þá er sá,sem sakaður er um fjárdrátt, látinn hætta störfum,annað hvort um stundarsakir eða til frambúðar. En svo er ekki í þessu máli.Forstjóri Baugs,sem sakaður er um fjárdrátt frá fyrirtækinu, heldur áfram störfum og fyrirtækið hefur lýst fullu trausti á hann.Jón Ásgeir,forstjóri Baugs,

 segir: Ég upplifi  þetta eins og lögreglan  bankaði upp á heima hjá mér og segði:” Það var brotist inn til þín”.Þótt ég mótmæli og segi að allt sé í lagi þá segir lögreglan “víst” og ryðst svo inn og rústar heimilinu og segir síðan:”Sérðu ekki maður,heimilið er í rúst.”.

 

Aðför gegn fyrirtækinu?

 

  Forráðamenn og aðaleigendur Baugs þeir feðgar,Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson segja,að hér sé um aðför  gegn fyrirtækinu að ræða.Ætlunin hafi verið að knésetja fyrirtækið.Ráðamönnum hér á landi hafi þótt fyrirtækið orðið of stórt og valdamikið og ef yfirtakan á Arcadia hefði gengið eftir hefði Baugur orðið stærsta fyrirtæki landsins með meiri hagnað en allur sjávarútvegur landsins.Hér er um mjög alvarlegar ásakanir að ræða.Í þessu sambandi nefna  Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir fyrrverandi forsætisráðherra og segja,að hann hafi boðað að herjað yrði á Baug.Og Jón Ásgeir segir,að fyrrverandi forsætisráðherra hafi kallað þá feðga mestu skattsvikara Íslandssögunnar. Öllum er löngu orðið ljóst,að fyrrverandi forsætisráðherra hefur verið mjög í nöp við Baug og er fjölmiðlafrumvarpið fræga m.a. til marks um það Spurningin er sú hvort  fyrrverandi forsætisráðherra hafi  haft eitthvað með það að gera,að  fyrirvaralaust fékk ríkislögreglustjóri að beiðni Jóns Steinars Gunnlaugssonar lögmanns  húsleitarheimild hjá Baugi,gat ruðst þar inn út af einum reikningi og tekið allt bókhald fyrirtækisins. Sú innrás varð til þess að Baugur missti af kaupunum á Arcadia.Ljóst er,að þarna fékk Jón Steinar algera flýtimeðferð.Yfirleitt hafa mál hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra  tekið langan tíma og ekki hefur verið nóg að veifa einum reikningi.Það hefur heldur ekki verið venja að lögreglan gerði innrás í fyrirtæki af ekki meira tilefni en hér um ræðir.

 

Eru menn ekki jafnir fyrir lögunum?

 

Tökum dæmi: Segjum, að einhver viðskiptamaður Íslenskrar erfðagreiningar eða Landsbankans lenti í útistöðum við annað hvort fyrirtækið,kærði það til ríkislögreglustjóra og  legði  fram reikning,sem ætti að sýna, að  eigendur fyrirtækisins hefðu látið  það greiða fyrir sig kaup á bát ( til sjóstangveiða) eða t.d. smíði eða kaup á veiðikofa ( vegna laxveiða).Halda  menn þá að ríkislögreglustjóri mundi rjúka upp til handa og fóta,gera innrás í Íslenska erfðagreiningu eða Landsbankann og  taka allt bókhaldið til 3ja ára rannsóknar? Ég held ekki. Eru menn þá ekki jafnir fyrir lögunum á Íslandi? Er nóg að einhverjir ráðamenn togi í spotta til þess að setja lögregluna af stað gegn þeim,sem ekki eru þóknanlegir. Er Ísland orðið eins og Sovetríkin undir stjórn Stalins? Er Ísland orðið eins og bananalýðveldi í Suður-Ameriku? Þessar spurningar vakna hjá óbreyttum borgurum.

 

Upphaflega sakarefnið úr sögunni

 

 Eins og menn muna fór þetta mál af stað vegna þess,að Jon Gerald Sullenberger viðskiptafélagi Baugs í Bandaríkjunum kærði stjórnendur Baugs. Það gerðist eftir að

Baugur sagði honum upp störfum!Sullenberger rak fyrirtækið Nordica í Bandaríkjunum og vann þar ýmis störf fyrir Baug.Sullenberger kærði stjórnendur Baugs fyrir að hafa látið Baug greiða  hluta kaupverðs skemmtisnekkju,sem Sullenberger var skráður  eigandi að en hann segir Bónusfeðga hafa átt í raun með sér. Sem aðalsönnunargagn í málinu lagði Sullenberger fram nótu,reikning,sem átti að sýna,að Baugur hefði greitt hluta snekkjunnar og þeir Bonusfeðgar tekið fé út úr Baugi til einkaþarfa.En ríkislögreglustjóri   misskildi þennan reikning. Hann var vegna afláttar,sem Baugur veitti Nordica,fyrirtæki Sullenberger, vegna viðskipta þeirra í milli.  Jónatan Þórmundsson prófessor,sem fór yfir öll sakarefnin fyrir lögfræðistofu Hreins Loftssonar segir,að sakarefnið,sem Sullenberger bar fram og hratt málinu  af stað, sé ekki lengur fyrir hendi.Forráðamenn Baugs hafi gefið fullnægjandi skýringar á því og náðst hafi sættir milli Baugs og Sullenberger um ágreiningsefnin.Jónatan Þórmundsson kemst að þeirri niðurstöðu að ekki séu efni til þess að dæma stjórnendur Baugs fyrir nein auðgunarbrot.

 

Grafið í 3 ár

 

  En enda þótt upphaflega sakarefnið sé ekki lengur fyrir hendi lét ríkislögreglustjóri ekki staðar numið. Hann hélt áfram að rannsaka,hélt áfram að grafa til þess að reyna að finna ný sakarefni og hann hefur verið að grafa í 3 ár. Þetta minnir á bandaríska sakamálamynd,þegar skúrkurinn segir: Reyndu að grafa eitthvað upp. Það hlýtur að finnast eitthvað

 Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs sagði í kastljósi sjónvarpsins,að það væri pólítík í  aðförinni að Baugi,ofsóknum ríkislögreglustjóra og  stjórnvalda gegn stjórnendum  Baugs.Hann sagði,að lögmaðurinn,Jón Steinar Gunnlaugsson, væri hægri hönd fyrrverandi forsætisráðherra. Og þessi lögmaður hefði krafist lögreglurannsóknar á Baugi.Í Bretlandi þætti þetta tortryggilegt.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu í sept. 2005

 

 

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn