Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Verið að níðast á öldruðum og öryrkjum

miðvikudagur, 16. desember 2015

Svo virðist sem ríkisstjórn og alþingi ætli að bregðast öldruðum algerlega á þessu ári.Við afgreiðslu fjáraukalaga fyrir 2015 var tillaga um kjarabætur lífeyrisþega felld. Sýnt hefur verið fram á með mörgum dæmum, að ekki er unnt að lifa af lægsta lífeyri aldraðra frá TR. Þessi lífeyrir dugar ekki fyrir framfærslukostnaði út mánuðinn.Lyf eða læknishjálp mætir því afgangi. Og stundum eru matarkaup látin sitja á hakanum. Þetta er mjög gróft mannréttindabrot og stríðir gegn 76. grein stjórnarskrárinnar.En þetta virðist ekki skipta meirihluta Alþingis neinu máli. Ríkisstjórnin hreyfir sig ekki í þessu máli og ekki meirihluti alþingis heldur.Til þess að kóróna ranglætið og misréttið í þjóðfélaginu gerist það nú fyrir skömmu, að hálaunamenn, ráðherrar, alþingismenn og embættismenn ríkisins fá mjög miklar kjarabætur, ekki frá 1.janúar n.k eins og eldri borgarar og ekki frá 1.mai sl eins og verkafólk, nei frá 1.mars s!. Ráðherrar og alþingismenn hafa verið taldir svo illa haldnir, að þeir yrðu að fá góða summu í vasann strax! Ráðherrarnir fengu rúmar 900 þúsund greiddar nú þegar! En um leið og þeir taka við þessum upphæðum segja þeir nei við aldraða og öryrkja! Aldraðir fái sömu hækkun og verkafólk og frá sama tíma Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fyrir alþingi til annarrar umræðu, var ekki að sjá í því neinar lagfæringar á kjörum aldraðra og öryrkja umfram þá hungurlús, sem var boðuð í upphafi og á ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári. Það er ófrávíkjanleg krafa kjaranefndar eldri borgara (og LEB) að eldri borgarar fái nákvæmlega jafn mikla hækkun á sínum lífeyri og verkafólk fékk á sínum launum (14,5%).Og það hefur verið ófrávikjanleg krafa eldri borgara, að aldraðir fengju þessa hækkun frá sama tíma og verkafólk, þ.e. frá 1.mai sl .Nú væri réttlættismál, að aldraðir fengju þessa hækkun frá 1.mars eins og ráðherrar, alþingismenn og embættismenn.Það er meiri þörf á, að hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja frá TR gildi frá 1.mars heldur en hækkun á launum þessara hátekjumanna. Hækkun lífeyris ekki í samræmi við launaþróun Ríkisstjórnin boðaði 9,4% hækkun á lífeyri aldraðra, sem tæki gildi næsta ár.Þetta eru rúmar 10 þús. kr á mánuði eftir skatt.Þessi hungurlús er það,sem forsætisráðherra kallar mestu hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja í sögunni! Á sama tíma hækka laun ráðherranna um meira en 100 þúsund krónur á mánuð og afturvirkt frá 1.mars eða um meira en 900 þúsund kr strax.Ríkisstjórninni er gjarnt að tala um met. Þetta er áreiðanlega met í ranglæti og misrétti. Á þessu ári hafa laun margra stétta hækkað óvenju mikið. Meðaltalshækkun á þessu ári hefur verið í kringum 14% en einstaka stéttir hafa hækkað um 18%, aðrar um 25% og fiskvinnslufólk, sem er að byrja störf, hækkar um 30%. Samkvæmt lögum á lífeyrir að taka mið af launaþróun. Það er alveg ljóst,að það er verið að brjóta lögin með því að ákvarða hækkun lífeyris langt fyrir neðan hækkun launa flestra stétta.Það er verið að níðast á öldruðum og öryrkjum. Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Birt í Fréttablaðinu 16.des. 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn