Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum)

fimmtudagur, 3. nóvember 2016

Er rétt að kalla lífeyri aldraðra frá almannatryggingum bætur? Ég tel ekki. Þetta er lífeyrir. Einnig mætti kalla þetta laun, a.m.k. eftirlaun.Bætur er ekki réttnefni. Aldraðir, sem komnir eru á eftirlaun, hafa greitt skatta til ríkisins alla sína starfsævi. Þeir hafa greitt til almannatrygginga og eiga rétt á lífeyri eða eftirlaunum frá almannatryggingum.Þegar þeir síðan fá lífeyri frá almannatryggingum heldur ríkið áfram að skatteggja þá þó þeir séu hættur störfum. Ríkið tekur 20% til baka af lífeyrinum. Þannig að eldri borgari sem fær 200 þúsund krónur á mánuði frá almannatryggingum verður að greiða ríkinu til baka 40 þúsund krónur! Með öðrum orðum: Á sama tíma og lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum dugar ekki til sómasamlegrar framfærslu hrifsar ríkið til baka 1/5 af lífeyrinum! Orðið bætur er neikvætt En er rétt að kalla lífeyri öryrkja bætur? Nei. Ég tel heppilegra að halda sig við orðið lífeyrir.Það er eitthvað neikvætt við orðið bætur. Og ekki hefur núverandi fjármálaráðherra bætt ímynd orðsins. Hann hefur ítrekað talað niður til „bótaþega“ sem hann kallar svo. Fjármálaráðherra talar niðrandi um það að vera á bótum og segir, að vissir stjórnmálamenn vilji, að allir séu á bótum! Það er að sjálfsögðu fráleitt að halda slíku fram. Þegar menn slasast alvarlega eða fá langvinna sjúkdóma geta þeir misst starfsorkuna að fullu eða hluta hennar og orðið öryrkjar. Enginn kýs sér það hlutskipti.Atvinnulífið hefur verið fjandsamlegt öryrkjum.Nauðsynlegt er að aðstoða sem flesta öryrkja við að komast út í atvinnulífið á ný. En til þess að svo geti orðið þurfa atvinnurekendur að vera jákvæðir gagnvart öryrkjum og þeim, sem misst hafa starfsorkuna að einhverju leyti. Æskilegt væri, að atvinnurekendur byðu öryrkjum hlutastörf. Það gildir það sama um öryrkja og eldri borgara: Lífeyrir almannatrygginga, sem öryrkjar fá, er of lágur og dugar ekki til framfærslu. Hverjir eru að fá bætur? Ég tel, að lífeyrisþegar séu ekki með bætur heldur lífeyri.En það eru hins vegar aðrir á Íslandi,sem eru að fá bætur í dag: Fyrst og fremst eru það þeir, sem fá afnot af auðlindum þjóðarinnar án þess að greiða fullt afgjald fyrir. Þar vil ég fyrst nefna útgerðarmenn, sem greiða alltof lágt afgjald fyrir afnot af sjávarauðlindinni.Veiðigjöldin voru lækkuð mikið.Á sama tíma og fjármuni vantar til þess að greiða öldruðum og öryrkjum nægilega háan lífeyri er ótækt að létt sé gjöldum af útgerðinni.Afgjöldin voru síst of há.Íslenska þjóðin á að fá eðlileg afgjöld af auðlindum sínum. Björgvin Guðmundsson Viðskiptafræðingur


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn