Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Utanríkismálanefnd vaknar!

fimmtudagur, 8. febrúar 2007

 

 

Formaður utanríkismálanefndar,Halldór Blöndal,hefur tilkynnt að hann  vilji boða forsetaritara á fund nefndarinnar til þess að ræða skipan forseta Íslands í  þróunaráð Indlands. Í viðtali við Stöð 2 lét hann orð falla um það, að forsetinn hefði ekki mátt taka sæti í þróunarráði Indlands.Alla vega hefði þurft að hafa samráð við utanríkisráðuneytið um það mál.

 

 Íraksmálið ekki lagt fyrir utanríkismálanefnd!

 

 Það mun aldrei hafa gerst áður að fulltrúi forseta Íslands hafi verið boðaður á fund utanríkismálanefndar enda heyrir forseti Íslands ekki undir alþingi. Hann hefur umboð sitt beint frá þjóðinni.Menn undrast það mjög, að utanríkismálanefnd skuli nú allt í einu vakna af værum blundi. Nefndin hefur sofið værum svefni og ekki sinnt þeim málum sem undir hana heyra heldur látið þau afskiptalaus. Kemur mönnum þar helst í hug innrásin í Írak og stuðningur Íslands við hana. Það mál átti að  leggja fyrir utanríkismálanefnd lögum og reglum samkvæmt en var ekki gert. Málið var heldur ekki lagt fyrir ríkisstjórn  en lögum samkvæmt átti einnig að leggja það mál fyrir ríkisstjórn. Tveir menn í ríkisstjórninni,þeir Davíð Oddsson,þá forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson,þáverandi utanríkisráðherra, ákváðu upp á sitt eindæmi að lýsa yfir stuðningi Íslands við  árás á annað ríki.Þeir lögðu málið hvorki fyrir ríkisstjórn né utanríkismálanefnd og þaðan af síður létu  þeir ræða málið á alþingi. Utanríkismálanefnd vissi,að málið heyrði undir nefndina en það hvarflaði ekki að þáverandi formanni nefndarinnar að taka það fyrir þar.

 

Óvild í garð forseta Íslands

 

En hvers vegna er formanni utanríkismálanefndar nú mikið í mun að ræða mál forseta Íslands í utanríkismálanefnd.? Jú,það er vegna óvildar formannsins í garð forsetans. Það er óásættanlegt,að  þingmenn Sjálfstæðisflokksins láti gamla óvild í garð  Ólafs Ragnars Grímssonar  koma fram í störfum sínum í dag.

 

Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn