Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kennaradeilan:Ríkisstjórninni liggur ekkert á!

föstudagur, 22. október 2004

 

 

Ekki er unnt að segja,að viðbrögð ríkisstjórnarinnar í kennaradeilunni séu snögg,þegar upp úr viðræðum hefur slitnað og allt er komið í harðan hnút. Forsætisráðherra vildi ekkert tjá sig um deiluna á fimmtudag,þegar viðræður höfðu stöðvast. Hann sagði,að málið yrði rætt í ríkisstjórninni á föstudag. Það var gert og þar var samþykkt að  forsætisráðherra mætti halda fund með deiluaðilum. Varla hefur þurft fund í ríkisstjórn til þess að ákveða það. Sennilega getur forsætisráðherra haldið fund án þess að fá leyfi ríkisstjórnarinnar til þess!Og ekki er forsætisráðherra að flýta sér mikið. Hann tilkynnir á föstudag að fundur verði haldinn á mánudag,þ.e. eftir 3 daga.Hvaða leikaraskapur er þetta? Hvers vegna er ekki haldinn fundur strax í dag,föstudag? Allir eru sammála um að deilan sé grafalvarleg og að hún sé komin í óleysanlegan hnút. En menn haga sér ekki í samræmi við það. Það er eins og mönnum liggi ekkert á. Verkfallið er búið að standa í 1 mánuð. Næsti samningafundur með sáttasemjara verður ekki fyrr en eftir 2 vikur.Einhvern tímann hefði nú verið hafður meiri hraði á í kjaradeilu. Einhvern tímann hefði verið haldinn fundur strax í dag og helgin notuð einnig.Maður fer að halda,að þetta sé eins og  hjá Spaugstofunni, að það sé allt í lagi þó skólarnir séu lokaðir!Það virðist vera álit stjórnarherranna,bæði hjá ríki og sveitarfélögum.

 Ljóst er,að  ríkisstjórnin vill,að sem mest öngþveiti skapist áður en hún grípi inn í deiluna.Það á að koma vel fram,að ríkisstjórnin bjargi málum,þegar algert vandræðaástand hefur skapast. En þetta er óábyrg afstaða. Deilan leysist ekki nema ríkið láti einhverja peninga til sveitarfélaganna til þess að leysa málið. Og hún hefði getað látið þessa peninga af hendi strax í upphafi  deilunnar í stað þess að bíða með það þar til allt er komið í öngþveiti og þar til skólabörnin hafa orðið fyrir alvarlegum skaða.

 

Björgvin Guðmundsson

 

" Einhvern tímann hefði verið haldinn fundur strax í dag og helgin notuð einnig. Maður fer að halda að þetta sé eins og hjá Spaugstofunni,að það sé allt í lagi þó skólarnir séu lokaðir! Það virðist vera álit stjórnarheranna,bæði hjá ríki og sveitarfélögum."

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn