Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin skerðir prentfrelsið

þriðjudagur, 25. maí 2004

 

 

Frumvarp forsætisráðherra um eignarhald á fjölmiðlum var samþykkt sem lög frá Alþingi í dag. Þar með hefur ríkisstjórnin samþykkt lög um skerðingu prentfrelsis á Íslandi. Það er því ekki lengur frjáls  “pressa” á Íslandi eins og í löndum hins vestræna heims. Ástandið hér er fremur orðið líkara  því sem var í Sovetríkjunum gömlu.

Það hefur verið aðalsmerki Íslands,að hér hefur ríkt fullt tjáningarfrelsi og fullt einstaklingsfrelsi. Prentfrelsi hefur verið hér algert. Hver, sem er, hefur mátt gefa út blað. Nú er því tímabili lokið. Sá,sem á ljósvakamiðil má ekki gefa út blað. Útvarp Saga má ekki gefa út blað og heldur ekki Skjár 1.Og að sjálfsögðu ekki Stöð 2 eða Norðurljós.

 

Stefnt gegn einu fyrirtæki

 

 Þetta eru furðuleg lög. Eins og margoft hefur komið fram  er þessum lögum stefnt gegn einu fyrirtæki,Norðurljósum. Það að setja lög gegn einu fyrirtæki er einnig brot á  jafnræðisreglu og því sennilega brot á stjórnarskránni.

  Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins upplýsti um síðustu helgi í viðtali við Bylgjuna,að Sjálfstæðisflokkurinn hefði talið,að Baugur væri orðinn of sterkur og ef ekki yrðu sett lög á hann yrði ekki neitt við ráðið. Þetta sagði Pétur,að hefði verið rætt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins sl. vetur.Er hér komin alger staðfesting á því,að lögunum um fjölmiðlana var stefnt gegn einu fyrirtæki.

 

  

Til skammar fyrir Sjálfstæðisflokkinn

 

Mál þetta verður Sjálfstæðisflokknum til ævarandi skammar.Flokkurinn sem alltaf hefur kennt sig við frelsi lögleiðir hér höft og frelsistakmörkun einungis vegna þess að forustu flokksins líkar ekki við eigendur Baugs.Slíkt er fáheyrt. Forustumenn  í stjórnmálum geta ekki látið afstöðu sína til einstakra manna ráða lagasetningu í mikilvægum málum.

 

Þingmenn múlbundnir

 

Það,sem hefur þó vakið enn meiri furðu,er það,að ekki einn einasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins skuli  hafa haft sjálfstæða skoðun á fjölmiðlafrumvarpinu. Svo virðist sem einn maður hafi hugsað fyrir þá alla.Er engu líkara en óbreyttir þingmenn þori ekki að taka sjálfstæða afstöðu af ótta við forustuna.

 

 

 

 

Frelsinu úthýst í Sjálfstæðisflokknum

 

 Ellert Scram fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í viðtali við Skjá 1,í þættinum Maður á mann sl. sunnudag,að Sjálfstæðisflokkurinn hefði villst af réttri braut. Frelsi einstaklingsins væri ekki lengur aðall flokksins. Þingmenn flokksins og almennir flokksmenn  hefðu ekki lengur frelsi til þess að hafa sjálfstæðar skoðanir.Þar með hefði því dýrmætasta,frelsinu,verið varpað fyrir róða í þeim flokki.

 

Birt í Fréttablaðinu

 

25.mai  2004

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn