Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Framsókn fórnar ráðherra

miðvikudagur, 1. september 2004

Framsóknarflokkurinn fórnar einum ráðherra 15.september n.k. Það er gjaldið,sem flokkurinn verður að greiða fyrir að fá fundarstjóra ríkisstjórnarinnar. Í rauninni er gjaldið þó enn hærra því Framsókn verður að fórna tveimur ráðuneytum,utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti og fær aðeins í staðinn Hagstofuna,sem er sjálfstæð stofnun. Utanríkisráðuneytið og umhverfisráðuneytið eru mikilvæg og valdamikil ráðuneyti  en fundarstjóri ríkisstjórnar ( forsætisráðherra ) er nánast valdalaus nema hann hafi eitthvert  fagráðuneyti undir sinni stjórn.

 

Staða Framsóknar mjög veik

 

Ríkisstjórnin er fjölskipað stjórnvald. Það vill segja,að hver ráðherra ræður sínum málaflokki.Ráðherrar kynna sín mál á fundum ríkisstjórnar en þeir þurfa ekki að taka við neinum  fyrirmælum frá ríkisstjórnarfundum.Forsætisráðherra hefur ekkert vald yfir fagráðherrum.Völd og áhrif Davíðs Oddsonar hafa byggst á því,að hann hefur verið formaður stærsta stjórnmálaflokks landsins.Sem slíkur hefur hann getað beitt áhrifum sínum gagnvart öðrum ráðherrum Sjálfstæðisflokksins.

 Staða formanns Framsóknarflokksins í ríkisstjórninni verður allt önnur en formanns Sjálfstæðisflokksins.Hún verður mjög veik. Framsókn er mjög veikur aðili í stjórnarsamstarfinu.Og fylgi Framsóknar fer minnkandi. Flokkurinn mælist nú aðeins með 7,5% fylgi.Framsókn er í ríkisstjórn  algerlega undir náð og miskunn Sjálfstæðisflokksins komin.

 

Umbun fyrir dygga þjónustu við íhaldið

 

Það er heiður og viðurkenning fyrir stjórnmálaleiðtoga að fá umboð frá forseta Íslands til þess að mynda ríkisstjórn. En það er lítill heiður að fá slíkt umboð frá öðrum stjórnmálaleiðtoga sem umbun fyrir dygga þjónustu í stjórnarsamstarfi áður.En þannig er því varið með Framsókn.Sjálfstæðisflokkurinn er að launa Framsókn dygga þjónustu undanfarandi  8-9 ár með því að samþykkja  að Framsókn fái fundarstjóra ríkisstjórnar  hluta kjörtímabilsins.

 

Dýrkeyptur hégómi

 

Það er undarlegt,að Framsókn skuli leggja svo mikla áherslu á það,að fá fundarstjóra ríkisstjórnar. Þetta er dýrkeyptur hégómi. Þetta er aðallega táknrænt.Fundastjórinn mætir hér og þar við hátíðlegar athafnir  og í veislum en völd  hans eru lítil sem engin.Það hefði verið mun mikilvægara  fyrir Framsóknarflokkinn að halda utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti að ekki sé nú talað um þá fórn flokksins að þurfa að láta mann fyrir borð,þ.e. að missa einn ráðherra.

 

Stjórnarflokkarnir töpuðu fylgi

 

Ef allt hefði verið með felldu hefðu stjórnarflokkarnir átt að fara frá völdum eftir síðustu kosningar. Þeir töpuðu báðir fylgi,Sjálfstæðisflokkurinn þó mun meira eða úr rúml. 40% í  33%. En Framsókn hafði tapað miklu fylgi  í kosningunum  1999,fór þá úr 23,3% í 18,4% og tap flokksins hélt áfram nú.Flokkurinn tapaði tæplega einu prósentustigi í kosningunum í fyrra. En flokkarnir vildu ekki una úrslitum kosninganna. Þeir vildu hanga áfram við völd þrátt fyrir dóm kjósenda. Þess vegna beitti Sjálfstæðisflokkurinn fyrir Framsókn,og bauð  fundarstjóra ríkisstjórnar,forsætisráðherra, aðeins ef Framsókn vildi styðja áframhaldandi stjórnarsetu. Og Framsókn beit á agnið.Hún stóðst ekki freistinguna.Það skipti flokkinn engu þó fórna þyrfti einum ráðherra og tveimur ráðuneytum! Hégóminn varð yfirsterkari.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu  1.september 2004

 

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn