Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Aldraðir eiga að fá að fullu sömu kjarabætur og launþegar

fimmtudagur, 26. maí 2011

Í tengslum við nýgerða kjarasamninga ákvað ríkisstjórnin,að bætur aldraðra og öryrkja ættu að hækka hliðstætt hækkun launa.Samkvæmt ósk kjaramálanefndar Landssambands eldri borgara tók ASÍ það upp við ríkisstjórnina,að bætur yrðu hækkaðar jafnmikið og samhliða launahækkunum.Það gerðist ekki við gerð kjarasamninga fyrir 3 árum og það gerðist heldur ekki við gerð stöðugleikasáttmálans.Þá “gleymdust “ lífeyrisþegar. Aldraðir eru þakklátir verkalýðshreyfingunni fyrir stuðninginn nú og þeir þakka einnig ríkisstjórninni góðar undirtektir. Lágmarksframfærslutrygging á að hækka um 18400 kr. 1.júní En nú er eftir að útfæra þær kjarabætur,sem lífeyrisþegar eiga að fá í kjölfar kjarasamninganna.Ég legg áherslu á,að aldraðir og öryrkjar fái að fullu hliðstæðar kjarabætur og launþegar fá samkvæmt kjarasamningum og að þeir fái þær strax.Helstu atriði kjarasamninganna eru þessi: Laun hækka um 11,4% á 3 árum hjá þeim sem hafa meira en 260 þús. kr. á mánuði.Hjá þeim,sem hafa lægri laun er hækkunin hlutfalllega meiri.Fyrsti áfangi hækkunar kemur til framkvæmda 1.júní n.k. en þá hækka laun um 4,25%. Einnig fá launþegar þá 50 þús.kr. eingreiðslu vegna dráttar á gerð kjarasamninga.Þeir,sem hafa verið í fullu starfi, fá eingreiðsluna.Ég tel,að allir eldri borgarar (67 ára og eldri) eigi að fá 11,4% hækkun bóta á 3 árum eins og launþegar.Þeir eiga því að fá 4,25% hækkun lífeyris um næstu mánaðamót.Þá eigi þeir einnig að mínu mati að fá 50 þús. kr. eingreiðslu um næstu mánaðamót, þ.e. þeir sem hafa verið á bótum. Láglaunafólk fær samkvæmt kjarasamningunum 24 % hækkun á 3 árum.Það fær 10% hækkun 1.júní n.k. en þá hækkar lágmarkskaup úr 165 þús. kr. á mánuði í 182 þús. kr. á mánuði.Eftir 3 ár á lágmarkskaupið að vera komið í 204 þús. kr. á mánuði. Þeir lægst launuðu meðal eldri borgara eiga samkvæmt þessu að fá 24% hækkun á 3 árum og þeir eiga að hækka um 10% um næstu mánaðamót. Það vill segja,að þeir aldraðir,sem njóta lágmarksframfærslutryggingar og eru með 184 þús. kr. brútto á mánuði í dag eiga að hækka um 18.400 kr. á mánuði 1.júní að mínu mati.Auk þess tel ég,að þeir eigi að fá 50 þús.kr. eingreiðslu um næstu mánaðamót. Við skulum athuga,að eingreiðslan er uppbót vegna dráttar á gerð samninga. En aldraðir og öryrkjar hafa orðið að bíða mikið lengur en launþegar eftir leiðréttingu kjara. Aldraðir fengu enga hækkun á lífeyri sínum frá ársbyrjun 2009- ársloka 2010 en á því tímabili fengu launþegar (láglaunafólk) 16% hækkun launa. Launþegar fá 10 þús. kr. uppbót á orlof og 15 þús. kr. hækkun desemberuppbótar. Ég tel,að lífeyrisþegar eigi að fá hvort tveggja. Mikil kjaraskerðing lífeyrisþega- þurfa fulla leiðréttingu Mér er það ljóst,að það kunna að vera einhver álitaefni,þegar kannað er hvaða kjarabætur lífeyrisþegar eiga að fá til samræmis við kjarabætur launþega.En aðalatriðið í því sambandi er, að ríkisstjórn og Tryggingastofnun hafi vilja til þess að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja að fullu til jafns við leiðréttingu á kjörum launþega.Lífeyrisþegar hafa sætt mikilli kjaraskerðingu á krepputímanum.Um áramótin 2008/ 2009 fengu aðeins þeir lægst launuðu meðal lífeyrisþega ( sem voru á strípuðum bótum) fulla verðlagsuppbót á lífeyri. Hinir fengu aðeins hálfa verðlagsuppbót.Síðan liðu 2 ár og engin hækkun fékkst á lífeyri aldraðra og öryrkja en kjörin voru skert 1.júlí 2009.Um síðustu áramót fékk lítill hluti aldraðra algera hungurlús í hækkun,sem varla tekur að nefna ( 2,3%) Það er því vissulega eðlilegt og tímabært,að lífeyrisþegar verði nú látnir njóta vafans,þegar kjarabætur þeirra eru ákveðnar vegna nýrra kjarasamninga. Björgvin Guðmundsson Birt í Morgunblaðinu 26.mai 2011


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn